Archive for July, 2006

Kjölturakkar

Mér er það minnistætt, hérna endur fyrir löngu. Á þeim tíma þegar lífið var í svart hvítu og allt var mun betra en það er núna. Þegar ég var hluti af heild. Þegar ég réri ekki einn fleyi mínu í lífsins ólgusjó. Þegar mér var vel tekið sem manni á uppleið [...]

Posted on July 29, 2006 at 13:26 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Philip Seymour Hoffman

Án efa fallegasta parið í Hollywood. Já, ég les stundum um fína og fræga fólkið. Ég er aðdáandi Philip Seymour Hoffman og hef verið í nokkur ár. Útslagið fyrir mig var leiksigur hans í Love Liza þar sem hann lék mann heltekinn af sorg, eftir sjálfsmorð eiginkonu sinnar. Ég hef síðan [...]

Posted on July 28, 2006 at 00:16 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Þögn

Ég sat með fyrirfólki og snæddi hádegisverð á einu af því mest hipp og kúl veitingastað sem er að finna í menningarborginni Reykjavík. Þennan veitingastað sækja flottasta og frægasta fólkið á þessum guðdómlega ísklump.
Ég man að fyrir 6 árum síðan sótti ég barstaðinn Hland Rokk á smiðjustíg. En guð sé oss [...]

Posted on July 26, 2006 at 23:57 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Regína mín Spektor

Guð sé oss næstur hvað hún er mikið fyrirtak hún Regina mín Spektor. Þessi rússneska yngismær. Ég hef ákveðið að gera við hana kaupsamning. Ég vill eiga hana sem kvonfang. Alveg þangað til að stóra feita kellingin flautar lítinn lagstúf.

Ég hef undanfarna daga, milli þess sem ég hef drekkt sjálfum [...]

Posted on July 24, 2006 at 20:58 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

The smartest guys in the room

Eins og sjá má á skrifum mínum undanfarna daga er illt í efni. Ég geri þetta reglulega. Endrum eins þegar ég þarf nauðsynlega á því að halda að dreifa huga mínum, marinera ég sjálfan mig upp úr þykkum og súrum legi heimsmála. Ég er ekki að ýkja. Síðust fjóra daga er hef [...]

Posted on July 23, 2006 at 17:42 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Yonatan Shapira

Samkvæmt 800 manna úrtaki er öll ísraelska þjóðin sögð vera hlynnt aðgerðum hersins í Líbanon, eða um 95%. Ísrael telur einungis u.þ.b 7 milljónir manna. Ég veit ekki mikið um það hversu hátt hlutfall af hóp þarf til að ákvarða það að hópurinn í heild sinni hafi tekið einhverja ákveðna afstöðu gagnvart því [...]

Posted on July 21, 2006 at 17:51 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Total eclipse of the heart

Er ég vafraði um töfraheima alnetsins rakst ég á sönglagatexta sem minnti mig óþyrmilega á ömurleg unglingsár mín. Tónlistarmaðurinn sem á þennan texta heitir Bonnie Tyler og var afar vinsæl þegar ég var að umbreytast úr krakkaskrípi yfir í alvöru karlmenni.
Lagið, Total Eclipse Of The Heart. Á þeim tíma sem ég hélt einna [...]

Posted on July 20, 2006 at 00:05 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Sandkassinn

Það er mikið við að vera í sandkassanum þessa daganna. Eitthvað hefur farið úrskeiðis í uppeldinu á villingunum í henni Palestínu fínu og fallegu. Og hvernig er heimilishaldi eiginlega háttað hjá pörupiltunum í hinum sívinsæla félagsskap Hezbollah. En prúðmennin í Ísrael eru alltaf til fyrirmyndar, nema þegar þau eru hreint og beint [...]

Posted on July 17, 2006 at 19:45 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Endrum eins

Það kemur fyrir að ég verð uppgefinn á internet-inu hinu prýðilega.

Posted on July 15, 2006 at 22:20 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Magni

Ég tek aftur orð mín um hann Magna okkar. Hann virðist vera prýðispiltur. Hann er ekki sú viðurstyggð sem ég hélt hann væri. Nei, þvert á móti.
Það liggur ljóst fyrir mér að ég á nokkuð til af hleypidómum. Ég hef þó margsinnist sæst á það með sjálfum mér að [...]

Posted on July 14, 2006 at 00:38 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Sögnin að sofa er falleg sögn

Ég er rétt í þann mund að fara að leggja ástund á eftirlæti mitt, sem er að sofa. Það er hafið yfir allan heimsins vafa að svefn trjónir á toppi athafna á vel ígrunduðum vinsældalista mínum. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að athöfnin að vakna tel ég til þeirra athafna [...]

Posted on July 12, 2006 at 23:39 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

RockStar

Ég er komast á þá skoðun að ég sé alveg töluvert meðvirkur. Þannig er mál með vexti að fyrr í dag komst ég yfir eppisóða í raunveruleikaseríunni RokkStjarna Súpunóva frá vikunni sem leið. Nú vill svo skemmtilega til að það er ekki stingandi strá á hausnum á mér. Það er ekki nóg til [...]

Posted on July 11, 2006 at 22:53 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar