Archive for August, 2006
Pizza Hut er matsölustaður djöfulsins
Ég fór með dóttur minni á Pizza Hut á sunnudaginn. Vegna þess að ég er í eilífu aðhaldi pantaði ég mér Ceasar kjúklingasalat. Ég hugsaði með sjálfum mér “prótein” og “salat” og fékk út ásættanlega útkomu. Dóttir mín sem er betur að sér í Pizza Hut fræðum pantaði sér pizzu. Ceasar salatið [...]
Það er komin vetrartíð
Þá er blessaður veturinn kominn. Hann kemur til með að endast okkur hér á ísklump, næstu 9 mánuði. Meðan við íslendingar njótum veðursins yfir vetrarmánuðina, leyfum við okkur að hlakka til, því þegar vetrartíð er lokið kemur eitthvað sem við hér í rassgati kjósum að kalla sumar. Við köllum það einungis sumar [...]
Súperkúl fyrirtæki
Í dag er sunnudagur. Samkvæmt mínum útreikningum þá er mánudagur á morgun. Þegar ég vann hjá hinu opinbera voru mánudagar ógeðslegir dagar. Núna vinn ég hjá súperkúl fyrirtæki sem kallar ekki allt ömmu sína. Þetta súperkúl fyrirtæki er stofnað til höfuðs stóru, ljótu og bólugröfnu fyrirtækjunum sem framleiða ekkert nema [...]
Ráðabrugg
Life is a sexually transmitted disease.
R. D. Laing
Þetta er mikil prýðis tilvitnun. Ég rakst á hana þegar ég var að leita að tilvitnuninni Life is just a damed thing after another! eftir Elbert Hubbard.
Ég er að hlusta á Eckhart minn Tolle. Hann er að tala um lífsviðhorf. Ég fór að hugsa það í [...]
Fóstradamus skrifar vefleiðara
Krúttíbollan hann Fóstradamus hefur hafist handa við blog. Þess ber að geta að Fóstradamus notar hið margumrædda veflókakerfi pymazine til að koma skilaboðum áleiðis á alnetinu ógurlega. Hann er enginn aukvisi og því síður eftirbátur. Ég er ekki alveg með á tæru hvort er verra, að vera aukvisi eða eftirbátur. Ég veit [...]
Downtown Laugavegur
Even though living in Laugavegur can be intolerable during the weekends, while the drunks roam the street. It has the potential to become very lively and enjoyable in the daytime. This afternoon, when returning from my office a few bands performed outside my window. The one in the picture is a band [...]
Tom Waits og Woody Allen
Ég ætlaði að skrifa veflók um það hversu ömurlegur ég er í mannlegum samskiptum, en svo þegar ég fór hugsa þetta aðeins lengra, komst ég að því með sjálfum mér að annar hver veflókur sem ég skrifa er annað hvort um það hversu ömurlegur ég er, eða hversu ömurlegur ég er í mannlegum samskiptum. [...]
Fallega og flotta fólkið
Ég og fröken Sigríður, sem er landsfræg bryggjubredda stundum saman viðskipti í hjarta Reykjavíkurborgar. Við leggjum allan okkar metnað í að vera flott og kúl. Ímynd okkar út á við skiptir höfuðmáli. Þegar ímynd sem þessi er byggð upp eða viðhaldið er gott að einangra sín samskipti við fólk sem jafn kúl [...]
At the end of the day
Galloway on Lebanon
Barbarella
Jane Fonda var mjög kynþokkafull sem Barbarella í samnefndri mynd.
Þegar ég var í kringum ellefu ára aldurinn var ég mikill áhugamaður um kvikmyndir. Ekki bara áhugamaður heldur heltekinn lúði. Á meðan bekkjarfélagar mínir styttu sér stundir með að sniffa lím á skiptistöðinni í Kópavogi, eyddi ég öllum mínum stundum í að sinna [...]
Hersluhringur
Ég hef áður skrifað pistla um sanna karlmennsku. Ég hef einnig tíundað hvernig er æskilegt að haga sínum samskiptum í karlaheimi. Ég hef hinsvegar verið eilítið afskiptur í þessum heimi. Það vill nefnilega svo óheppilega til að í gegnum lífstíð mína hef ég aldrei í raun átt karlkyns vini sem tala fjálglega [...]
Mótherjinn
Ég hef sagt sjálfum mér stríð á hendur. Ég hef í hyggju að spara engu til að vinna þetta stríð. Þessi barátta á sér hið arabíska heiti Jihad. Þegar talað er um Jihad nú á dögum er átt við heilagt stríð Múslima gegn vestrænum heimi, eða vestrænum gildum, en þessi skilningur heimsbyggðarinnar er [...]