Archive for October, 2006
útferð
Það er ekki hægt að vera mikið meira 101, en að pissa yfir samnemendur sína í listrænum tilgangi. Það er ekki hægt að kalla sjálfan sig listamann að mér virðist án þess að handfjatla annað hvort kúk eða piss í listsköpun.
Þegar ég vann hjá hinu opinbera fékk ég að sjá video af manni upp [...]
My Latest Novel
Þrátt fyrir að ég hafi ekki til að bera akademíska þekkingu á tónlist, ætla ég að leyfa mér að mæla með hljómsveit frá Skotlandinu prýðilega, sem ber nafnið My Latest Novel. Í sumum lögunum er skoskur hreimur nokkuð áberandi. Söngurinn er dásamlegur. Ég gersamlega elska bönd sem skipa bæði kyn. Samsöngur beggja kyna, [...]
Flóttasleginn
Það gerist að þrátt fyrir einlægan vilja mannskepnunnar til að vera hress og kát, að henni takist það engan veginn. Því hefur verið þannig farið hjá mér þá viku sem er brátt að renna sitt skeið á enda, að það virðist ekki skipta máli hversu margar Hemma Gunn möntrur ég hef kyrjað, mér [...]
Nick Cave
Ég var staddur á kaffihúsi snemma í morgun, þegar ég fyrirhitti Nick nokkurn Cave. Ég gerði mér lítið fyrir og pissaði bara í buxurnar mínar appelsínugulu. Þetta var ósköp vandræðalegt því ég var í beinni sjónlínu við meistarann. Sök sér hefði ég verið í gallabuxunum mínum, en að pissa í appelsínugular buxur [...]
ÉG LEITAÐI BLÁRRA BLÓMA
Ég leitaði blárra blóma
að binda þér dálítinn sveig
en fölleit kom nóttin og frostið kalt,
á fegurstu blöðin beit.
En ég gat ei handsamað heldur
þá hljóma sem flögruðu um mig,
því það voru allt saman orðlausir draumar
um ástina, vorið og þig.
En bráðum fer sumar að sunnan
og syngur þér öll þau ljóð
sem ég hefði kosið að kveða þér [...]
Svenni
Í nótt hitti ég fyrir í draumi gamlan vin minn sem andaðist fyrir tveimur árum síðan. Hann var alveg sérstaklega kjaftfor og alveg ævintýralega skemmtilegur. Við unnum saman hjá Kópavogsbæ, fyrir ríflega hálfum öðrum áratug síðan.
Í draumnum hafði ég neyðst til að fara vinna þar aftur, vegna þess að viðskiptalífið [...]
Það er sem gerst hafi í gær
Þeir örfáu dagar sem ég dvaldi í New York rjátlast mér seint úr minni. Þetta voru vægast sagt einkennilegir dagar. Ég gekk fram og aftur Manhattan eins og ég væri vanheill á geði. Ekki að það skipti nokkurn mann máli þarna. En guð sé oss næstur, hvað ég skemmti mér konunglega. Ég sat [...]
fallacius pluralibus
Mikill urmull er til af sjúkdómum sem hrjá aumt mannkynið. Sjúkdómar bera torskilin heiti sem einungis er á færi þartil útbúinna fræðimanna að skilja. Þekkjast þeir oftar en ekki á akademískri ólund sem er þrálátur fylgifiskur þess að vera langskólagenginn.
Í lífsins ólgusjó er manninum nauðsyn að kunna nafn á þeirri óhamingju sem hrjáir [...]
Innocent When You Dream
Einu sinni endur fyrir löngu varð ég ástfanginn upp fyrir haus. Í þessu sjúka ástandi sendi ég viðfangsefni númer eitt segulbandsspólu með laginu ‘Innocent When You Dream’. Ég sagði í meðfylgandi bréfi(skrifað á pappír) lag þetta minna mig dýrindis ásjónu viðkomandi. Hafði þetta lag þó ekki undir neinum kringumstæðum haft nokkuð með mig og [...]
Þeir sem minna mega sín
Ég fór í hljóðfæraverslun fyrr í dag með gleði og glaumkonunni henni fröken Sigríði. Mig vantaði blöð í nýja og fína klarinettinn minn. Ég bað mann á þrítugsaldri að aðstoða mig. Ég sagði honum að ég hefði nú marga fjöruna sopið og nú langaði mig til að læra á klarinett.
Hann horfði á [...]
Nú verður refsað
Ég hef skrifað fáeina pistla hér á vefsetri mínu um andstyggilega og gersamlega óþolandi nágranna mína. Það gleður mig í hjarta mínu að vera kominn með upp í hendurnar tól til að tækla þetta fólk. Í fyrradag barst mér nefnilega sending alla leið frá Nýju Jórvík í U and S of the A. [...]
Maðurinn sem missti kúlið
Það kemur fólki regulega á óvart en ég hef í gegnum lífshlaup mitt orðið uppvís af hroka og öðrum persónulegum vanköntum. Eftir grát gnístandi tanna í samtökum iðnaðarins, sem og úti í hinum harða heimi viðskipta hef ég gersamlega látið af hroka. Ég er ekki bara orðinn hrokalaus heldur er ég að komast á [...]