Archive for December, 2006
Anal ball 42nd street
Það var hefð hjá samtökum iðnaðarins í kringum áramótin að halda stjórnarfundi frá 12 á miðnætti til klukkan 8 að morgni nýársdags. Það er víst svo, að fólk sem stundar viðskipti á vegum samtaka iðnaðarins er þessi tími alveg sérstaklega erfiður. Í hugum landsmanna stendur í óskrifuðum lögum að ALLIR, sama á hvaða [...]
Ný og betri nálgun
Ég er kominn á þá niðurstöðu að það sé nauðsynlegur þáttur í mannlegum samskiptum að kunna að berja á fólki. Ég hef síðustu ár leitast við að efla sjálfan mig í samskiptum við fólk. Þetta átak mitt hefur mælst misvel fyrir, og stundum eru þessi svokölluðu samskipti sem ég á við fólk, alveg [...]
Lífsstíll
Undanfarnar tvær vikur hef ég legið húðlatur í dvala og ekki gert neitt sem skrifað verður á spjöld sögunnar. Sem er nýbreytni í mínu lífi, því yfirleitt hreyfi ég hvorki legg né lið, sé ekki einhver von um það að einhver taki eftir því og helst hrósi mér fyrir ómakið.
Ég kýs að [...]
My heroes are falling apart
Rétt í þann mund sem mér þótti orðið ægilega leiðinlegt að vera til(gerist af og til), uppgögvaði minn kall Kimya Dawson sem er æðisgengilegur snillingur. Þvílík sæla og gleði sem tekið hefur af mér hús.
Ég er ástfanginn upp fyrir haus. Amy Goodman er þróttlaus aukvisi í samanburði við Kimya Dawson. Og hvað [...]
fíklar í kvikmyndum
Sjónvarpsþættir eða kvikmyndir, þar sem ein eða fleiri sögupersónur þjást af eiturlyfjafíkn eða alkóhólisma, er eitt af því þreyttasta og drepleiðinlegasta sem ég horfi á.
Undanskilin er að sjálfsögðu Requiem for a Dream, en það er ein af betri myndum sem búin hefur verið til um fíkn.
Ég á þá við myndir þar sem rauði [...]
Vinalegir karlmenn með sjúkdóm í heilanum
Hætturnar leynast víða og ekki vanþörf á að hafa á gát. Karlmenn sem jafnvel koma fyrir sem dagfarsprúðir menn, gætu hugsanlega verið haldnir sjúkdómi sem kallast samkynhneigð. Þennan tengil “Sometimes you’ve got to wonder about the 50s, especially with its anti-gay propaganda” fékk ég rétt í þessu sendan frá kaupsýslukonunni henni fröken [...]
Jón Gnarr
Jón Gnarr er óumdeilanlega einn af fyndnari mönnum sem þessi ísklumpur hefur alið af sér. Fyrir tilstilli hans, Óskars Jónasonar og Sigurjóns Kjartanssonar hefur orðið alger kúvending í fyndni á Íslandi. Ég kann þeim þakkir fyrir. Ef þeirra hefði ekki notið við, hefðum við öll haldið áfram að sætta okkur við Spaugstofuna sem [...]
Gamlir veflókar
Það að skrifa veflóka er orðið tískufyrirbæri. Mér hefur til þessa verið lífssins ómögulegt að leggja stund á eitthvað sem þykir fínt og flott. Ekki vegna þess að ég legg allan mín metnað í að vera hallærislegur, heldur vegna þess að ég er þjakaður af afbrigðilegum kreddum.
Sumar af þessum kreddum eiga sér engan [...]
be nice to people on your way up
because you’ll will meet them on your way down.
Þetta er lögmál.
Ég er búinn að missa tölu á því hversu oft ég hef þurft að beygja mig niður í duftið og viðurkenna fyrir sjálfum mér að ég sé stútfullur af kjaftæði.
Já, það er merkilegt til þess að hugsa, en ég var einu sinni hrokafullur [...]
Súkkulaði og Ís
Eftir umtalsvert sukk á ferðalagi mínu til Kanaríeyja, hef ég ákveðið að setja sjálfan mig enn og aftur í súkkulaði og majonesbann.
Hvað þetta snertir, er mér óhætt að fullyrða að ég og hún Oprah mín erum eitt.
Ég er búinn að vera í aðhaldi frá því ég nánast man eftir mér. Aukakíló þóttu [...]