Archive for 2006
Khaled Hosseini
Ég gerði tilraun til að horfa á tvær kvikmyndir í kvöld. Kyrrlátt kvöld í einstaklega gefandi félagsskap. Sú hin fyrri var The Black Dahlia. Ég sem alin var upp í dalíublómabeði suður í rassgati, átti kannski von á að þessi mynd höfðaði að einhverju leiti til mín, en því fór fjarri. [...]
Grátbroslegt mannkynið
Það er eitthvað alveg sérstaklega kynþokkafullt við þessar vísindaskáldsögur sem voru kvikmyndaðar á áttunda áratugnum. Hér gefur að líta Jenny Agutter, ekkert smá hot sem Jessica 6 í myndinni Logan’s run. Myndin gerist í fjarlægri framtíð, þar sem hámarksaldri er haldið í 30 árum til að sporna við offjölgun. Á 30 [...]
Að lifa
Þrátt fyrir fögur fyrirheit um að snúa aldrei aftur til föðurhúsa, á ég miða með flugleiðavél norður í ballarhaf. Ég er búinn að lenda í mörgum ævintýrum hér í landi hinna frjálsu, þar sem smjör drýpur af hverju strái. Ég dvaldi megnið af þessum tíu dögum hjá alveg sérstaklega prýðilegu fólki í Memphis [...]
Porgy and Bess
Undanfarnar vikur er ég búinn að vera að sálast úr ógeðslegum leiðindum. Af þessum sökum ætla ég að fljúga til hennar Ameríku í morgun. Þar sem smjör drýpur af hverju strái og allir eru hressir. Svo ég ætla að leyfa mér að segja við alla sem hafa haft eitthvað af mér að [...]
Ég er þráhyggjusjúklingur
Ég hef stofnað Samtök Íslenskra Þráhyggjusjúklinga, eða SÍÞ. Við ætlum að hittast 2-3 í viku til að diskútera málin. Mér finnst kominn tími til að fólk geri sér grein fyrir að þetta er áþreifanlegt vandmál, sem þarf að leysa. Ég er númer eitt þráyggjusjúklingur og númer tvö manneskja.
Það er ýmislegt sem ég þarf [...]
Skelfileg örlög
Í bók sem ég var að enda við að lesa, eru menn sem setja sig upp á móti ríkisstjórninni sendir í útlegð til Íslands. Sú tilhugsun er nóg til að fleiri milljónir manna halda sér á mottunni og lifa eftir reglum samfélagsins.
Þetta mætti kannski nota á þá sem heiminum stendur ógn af.
útferð
Það er ekki hægt að vera mikið meira 101, en að pissa yfir samnemendur sína í listrænum tilgangi. Það er ekki hægt að kalla sjálfan sig listamann að mér virðist án þess að handfjatla annað hvort kúk eða piss í listsköpun.
Þegar ég vann hjá hinu opinbera fékk ég að sjá video af manni upp [...]
My Latest Novel
Þrátt fyrir að ég hafi ekki til að bera akademíska þekkingu á tónlist, ætla ég að leyfa mér að mæla með hljómsveit frá Skotlandinu prýðilega, sem ber nafnið My Latest Novel. Í sumum lögunum er skoskur hreimur nokkuð áberandi. Söngurinn er dásamlegur. Ég gersamlega elska bönd sem skipa bæði kyn. Samsöngur beggja kyna, [...]
Flóttasleginn
Það gerist að þrátt fyrir einlægan vilja mannskepnunnar til að vera hress og kát, að henni takist það engan veginn. Því hefur verið þannig farið hjá mér þá viku sem er brátt að renna sitt skeið á enda, að það virðist ekki skipta máli hversu margar Hemma Gunn möntrur ég hef kyrjað, mér [...]
Nick Cave
Ég var staddur á kaffihúsi snemma í morgun, þegar ég fyrirhitti Nick nokkurn Cave. Ég gerði mér lítið fyrir og pissaði bara í buxurnar mínar appelsínugulu. Þetta var ósköp vandræðalegt því ég var í beinni sjónlínu við meistarann. Sök sér hefði ég verið í gallabuxunum mínum, en að pissa í appelsínugular buxur [...]
ÉG LEITAÐI BLÁRRA BLÓMA
Ég leitaði blárra blóma
að binda þér dálítinn sveig
en fölleit kom nóttin og frostið kalt,
á fegurstu blöðin beit.
En ég gat ei handsamað heldur
þá hljóma sem flögruðu um mig,
því það voru allt saman orðlausir draumar
um ástina, vorið og þig.
En bráðum fer sumar að sunnan
og syngur þér öll þau ljóð
sem ég hefði kosið að kveða þér [...]
Svenni
Í nótt hitti ég fyrir í draumi gamlan vin minn sem andaðist fyrir tveimur árum síðan. Hann var alveg sérstaklega kjaftfor og alveg ævintýralega skemmtilegur. Við unnum saman hjá Kópavogsbæ, fyrir ríflega hálfum öðrum áratug síðan.
Í draumnum hafði ég neyðst til að fara vinna þar aftur, vegna þess að viðskiptalífið [...]