Archive for March, 2007

No Cars Go

Á nýju Arcade Fire geislaplötunni er aðeins eitt lag sem hægt er að hlusta á. Það er lagið No Cars Go. Þetta lag hefur allt sem prýða þarf sumarsmell. Í þvi er bæði “hey” og “vóvóvóvó”. Restin af Neon Bible er rusl. Eftir Funeral er þetta helaum tilraun til að [...]

Posted on March 31, 2007 at 22:45 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Og þér finnst það bara í góðu lagi?

Ég er kominn í sumar- og sólskinsskap. Það er eins og verið sé að hleypa út beljum á vorin, þannig líður mér, eins og belju. Þegar ég er hamingjusamur glaður og frjáls, syng ég og tralla. Verður þá oft fyrir valinu Bubbalag, sem hæfir veðri og vindum. Lag vikunnar er að [...]

Posted on March 29, 2007 at 00:38 by siggi · Permalink · 14 Comments
In: Veflókar

Kattalíf

Það gerðist aftur. Það sem ég óttaðist mest af öllu. Ég var á hraðferð þegar ég stormaði inn í húsakynni hins opinbera, beint í flasið á Sigurjóni Sighvatssyni, manni sem ég hef elskað og dáð úr passlegri fjarlægð. Ég fölnaði upp, þar sem ég stóð andspænis honum og áður en ég vissi af [...]

Posted on March 27, 2007 at 00:36 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Morgunblaðsveflókar

Ég fer u.þ.b 15-20 sinnum á dag inn á morgunblaðsvefinn til að afla mér fregna af því hver hafi drepið hvern. Hvernig henni Britney gangi í meðferðinni. Hversu margir hafi sofið úr sér í fangaklefum lögreglunnar, ásamt öðrum uppistöðuatriðum í menningarsamfélagi.
Nú er svo komið að það er einfaldlega ekki hægt að fara [...]

Posted on March 26, 2007 at 01:18 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Sá ég spóa in technicolor

Sá ég spóa suð’r í flóa, syngur lóa út í móa.
Bí, bí, bí, bí.
Vorið er komið víst á ný.
Ísl. þjóðlag / Höf. fáviti.
Já, blessaður veturinn er að verða búinn. Þá kemur vorið.
Þannig er það nú bara.

Posted on March 22, 2007 at 22:57 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

kíló

Ég er offitusjúklingur. Ég fæ ekkert að gert. Rétt eins og um galdra sé að ræða, þá blæs ég út eins og sautjánda júní blaðra, alveg fyrirvaralaust. Sérstaklega þó þegar ég er reglulega óhamingjusamur.
Undanfarna mánuði, hef ég talið nokkuð fleiri kíló, en ég kýs að tala um á mannamótum. [...]

Posted on March 20, 2007 at 00:45 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

superfreak

Ekki skoða þetta video, ef þú hefur í hyggju að sjá Little Miss Sunshine.

Þetta atriði er svo mikið fyrirtak. Þunglyndissjúklingurinn sem hefur verið gagnrýndur töluvert í gegnum myndina, er þarna fyrstur til að standa upp og styðja stúlkuna litlu.
Þess ber að geta að DeVotchka sá um megnið af tónlistinni fyrir þessa mynd. [...]

Posted on March 16, 2007 at 16:17 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Kvikmyndir, Veflókar

í fíkn

Ég hef ríka þörf fyrir að þusa og nöldra. Fyrir mig þá koma þus og nöldur fast á eftir því að draga andann.
Á þeim tíma sem ég átti sjónvarp, fékk ég útrás fyrir þessa einkennilegu áráttu. Ég sat þá fyrir framan kassann og reif stólpakjaft við alla þá sem að mínu mati áttu [...]

Posted on March 15, 2007 at 18:49 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Ibsen og DeVotchka

Ég hef legið í skítapest síðan á föstudag. Þetta hefur verið öllum ábúendum hér á Óðinsgötu nánast óyfirstíganleg þolraun.
Mefisto litli hefur verið miður sín yfir heilsufari húsbónda síns. Hann hefur eins og húsbóndinn leitað sér huggunar í ofáti, og farinn virkilega að láta á sjá. Samræður okkar tveggja hafa verið gefandi, [...]

Posted on March 14, 2007 at 01:14 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Let’s rock

Í tilefni af fyrirhugaðri pílagrímsferð minni til Twin Peaks.

Posted on March 13, 2007 at 01:34 by siggi · Permalink · One Comment
In: Trít, Veflókar

Nornabrenna

Blogheimur ásamt fréttamiðlum hafa lagst á eitt að úthúða og hæða ónefndan doktor við Háskóla Íslands. Ég persónulega þekki fljótfærni nokkuð vel af eigin rammleik. Þ.e að eitthvað málefni sem mér er annt um geri það að verkum að ég dragi annaðhvort rangar ályktanir, eða að ég dragi réttar ályktanir og bregðist rangt við. [...]

Posted on March 9, 2007 at 21:13 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Þetta er bara guð!

Vegna tæprar heilsu hef ég haldið mig heima undanfarna daga, eða síðan á föstudag.
Undanfarnar vikur hef ég verið frekar stúrinn, og þótt lífið alveg ákaflega leiðinlegt. Nema svo gerðust undur og stórmerki. Ég var staddur inn í eldhúsi á kærleiksríku heimili mínu í kringum 19:18 að elda þennan líka prýðilega Dahl rétt, þegar [...]

Posted on March 5, 2007 at 19:51 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Veflókar