Archive for April, 2007

Fyrir átta árum

Ennþá brennur mér í muna,
meir en nokkurn skyldi gruna,
að þú gafst mér undir fótinn.
Fyrir sunnan Fríkirkjuna
fórum við á stefnumótin.
En eg var bara, eins og gengur,
ástfanginn og saklaus drengur.
Með söknuði ég seinna fann að
við hefðum getað vakað lengur
og verið betri hvort við annað.
Svo var það fyrir átta árum,
að ég kvaddi þig með tárum,
daginn sem þú sigldir [...]

Posted on April 16, 2007 at 16:21 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

martröð

Í fyrrinótt dreymdi mig andstyggilegan draum. Ég var staddur í miðri unglingahrollvekju. Mig dreymdi að ég væri með einhverju fólki í einhverri kommúnu í Kópavogi. Ekkert af þessu fólki þekkti ég.
Við vorum að leita af vinkonu okkar sem hafði ekki sést í ótilgreindan tíma. Við hófum leitina í herberginu hennar. [...]

Posted on April 14, 2007 at 16:30 by siggi · Permalink · 22 Comments
In: Veflókar

föstudagsbrauðið

Rétt í þann mund sem ég tók þennan brauðhleif úr ofninum, varð mér hugsað til þín.
Hvar ert þú núna?
Ég er hér.
Er mögulegt að þú sért kannski þarna?
Stundum finnst mér lífið flókið. Þá er gott að fá sér brauðsneið.

Posted on April 13, 2007 at 21:35 by siggi · Permalink · 31 Comments
In: Veflókar

Þjóðarsmánin

Sem ég væri moggabloggari ætla ég að segja álit mitt á afmælisveislu Björgólfs Thor og svo uppástungu háskólaprófessors um að ráðast á Ísland.
Fyrst afmælisveislan hans Björgólfs.
bla bla bla bla bla, memememe mí mí mí mí mí mí bla bla bla bla bla bla bla bla bla hahhhahhahhaa. Fa fa fa fa fa fa fa rooooop.
Víkur [...]

Posted on April 11, 2007 at 20:14 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Í dag er ég brjálaður

Ég er brjálaður yfir þessu.
Þannig er það nú bara.

Posted on April 10, 2007 at 20:31 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Hann er einn tittlingur

Ég var staddur á kaffihúsi um daginn, að fá mér molasopa. Mér finnst gott að fá mér molasopa, einstaka sinnum. Þó svo slíkar uppákomur reynist offitusjúklingi eins og mér erfiðar, ef ekki stórhættulegar.
Á borði ekki svo langt í burtu sátu tvær ungar konur í blóma lífs síns. Þær voru ekki búnar [...]

Posted on April 8, 2007 at 01:51 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Bláa Eyjan, Veflókar

Nasa

Ég skil ekki í því að ég fari ekki oftar á skemmtistaði, þegar ég fæ tækifæri til að hitta alveg sérstaklega leiðinlegt sauðdrukkið fólk úr fortíð minni. Í gær fór ég að sjá hana Kristin mína Hersch. Með mér í för var týpa, sem hafði fyrir slysni hellt heilum stauk af patchouli olíu [...]

Posted on April 6, 2007 at 13:58 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Doktor Bob

Doktor Bob er kominn heim í hlað. Ég tók afleggjara af honum, þar sem hann lá í blóði sínu eftir fólskulega árás portkonunnar Fröken Sigríðar.
Fröken Sigríður!
Ég hef vopnast. Haltu hestum þínum innan girðingar, annars skaltu eiga mig á fæti.

Posted on April 6, 2007 at 13:47 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Ma Nishtana

Ég hef reynt eitt og annað til að flýja uppruna minn. Ein af vonlausari ráðagerðum til að snúa baki við því menningarsamfélagi sem ég ólst upp í, var þegar ég ætlaði að taka gyðingstrú. Hvernig nákvæmlega mér hugkvæmdist að gera þetta, kann ég ekki fullnægjandi skýringu á. Var þessi ákvörðun mín trúarlegs eðlis, [...]

Posted on April 4, 2007 at 16:59 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

anonímýs

Á kaffihúsi sitja ónefndir aðilar. Þeir eru nýkomnir af aðalfundi samtaka iðnaðarins.
: Ég verð nú að segja að fundurinn í fyrra höfðaði meira til mín, en nýafstaðinn fundur.
: Já, mér fannst spíkerinn ekki tala nógu mikið um lausnina. Hann var alltof fastur í vandamálinu.
: Sko, það er þannig að þeir sem eru [...]

Posted on April 1, 2007 at 15:23 by siggi · Permalink · 18 Comments
In: Veflókar