Archive for May, 2007
Karlmenn
Til eru hin margvíslegustu netsamfélög. Hver og einn ætti að finna sér eitthvað við hæfi, hvað svo sem viðkomandi hefur áhuga á. Kynbræður mínir í svona netsamfélögum gera mig óneitanlega stoltan yfir því að vera karlmaður. Ég skil ekki afhverju, en það virðist eiginlega vera alveg sama hvaða netsamfélag er stundað, hvort [...]
Hátíð í bæ
Þessa vikuna held ég hátíðlega svokallaða ólundardaga. Ólundardagar er kærkomin tilbreyting frá öðrum dögum ársins, þegar ég er án undantekninga hamingjusamur, glaður og frjáls. Það kann að hljóma einkennilega, en það að vera í “sound of music” skapi daginn út og daginn inn, getur verið þreytandi til lengdar. Þetta óeðlilega og jafnframt [...]
Lítill fugl hvíslaði því að mér að……..
Það situr lítill fugl á öxl mér og hvíslar að mér mikilvægum upplýsingum. Ef ég gæti með einhverju móti þaggað niður í þessu kvikindi, tildæmis með því að sprengja helvítið í loft upp með C4 eða byrla því eitri, þá myndi ég gera það umhugsunarlaust.
Ég man ekki til þess að þessi fugl [...]
Bíddu pabbi, bíddu mín
Það leiðinlegasta sem ég veit er að hlusta á nágranna mína skrönglast. Nágrannar mínir hér á Óðinsgötu leggja svo sem ekki oft kapp á þessa iðju, en þá sjaldan sem þeir lyfta sér upp þarf ég að hlusta á það. Verð ég þó að segja að ég hef haft nágranna sem hafa staðið [...]
Meistaraverk
Roger Waters í Berlin 1990.
Blámi
Lífið er búið að vera alveg sérstaklega leiðinlegt frá því að ég gerði þau hræðilegu mistök að vakna í morgun.
Ég veit ekki afhverju ég er svona skapvondur í dag. Mig grunar þó að ólund mín gæti mögulega haft eitthvað með það að gera að það er haglél úti þegar samkvæmt öllum kúnstarinnar [...]
Um veltu og eignir
Dóttir mín til níu ára, hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig pabbi hennar hagar sínu lífi. Hún spurði mig orðrétt fyrr í dag, hvort ég væri að gera hosur mínar grænar. Ég bað hana um nánari útskýringu. “Ertu skotinn í einhverri konu?”, spurði hún óþolinmóð yfir því hversu illa áttaður ég var.
Ég [...]
Dr. Lawrence Jacoby
Dr. Lawrence Jacoby er ein af dásamlegum uppfinningum snillingsins David Lynch. Hann kemur fram í eftirlæti mínu til margra ára, Twin Peaks.
Dr. Jacoby er kolgeðveikur sálfræðingur, sem er viss um að öll vandamál mannkyns séu á einn eða annan máta tengd kynlífi. Í öll þau skipti sem hann birtist er hann með þrívíddargleraugu [...]
ástin
Að vera ástfanginn af þér, er jafn ánægjulegt og að fara í kvöldgöngu á jarðsprengjusvæði, hugsaði ég.
Ég settist upp í bílinn og keyrði á brott.
Gildi þess að vera hress
Þegar ég var um og yfir tvítugt, þá þótti fínt að vera hress. Allir, sem ekki höfðu með einhverjum ráðum komið sér á skjön við samfélagið, með því tildæmis að láta leggja sig inn á geðdeild eða loka sig inn í fangelsi, kostuðu öllu því sem þeir áttu til, í það að vera hress.
Ég [...]
cdbaby
Þennan prýðilega staðfestingarpóst fékk ég frá cdbaby eftir að ég festi fé í nýja langspilunargeisladisknum hennar Dawn minnar Landes.
Your CD has been gently taken from our CD Baby shelves with sterilized contamination-free gloves and placed onto a satin pillow.
A team of 50 employees inspected your CD and polished it to make sure it was [...]
Með ástvinum
Kosningavökunni eyddi ég með ástvinum. Þar voru samankomnir ég og allir persónuleikarnir mínir. Nokkuð merkileg samkoma það, þá kannski sér í lagi vegna þess að ekki eru persónuleikar mínir á eitt sáttir hvar þeir eru staddir í pólitík.
Guðlaugur tildæmis, sem er flokksbundinn framsóknarmaður; ekki sá hann mikla ástæðu til að gleðjast. [...]