Archive for July, 2007
Nýr andlegur leiðtogi
Við bjóðum nýjan andlegan leiðtoga velkominn til leiks. Gefum honum gott klapp.
Klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp, klapp.
Bill og Bob hvað. Djöfuls amatörar.
Og þú þarna Eckhart Tolle: vinsamlegast snáfaðu!
Bíómyndir kvöldsins eru að þessu sinni tvær
Hver man ekki eftir þessari rómantísku gamanmynd.
neochosen
Hvað þá með þessa sígildu hryllingsmynd.
moviemker
Sei sei og svei mér hvað ég hló. Það bókstaflega skríkti og brakaði í mér.
Gatan þar sem þú elur manninn
Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að birta hér myndbrot úr: Mín fagra frú. Þetta er að sjálfsögðu lagið: On the street where you live. Í aðalhlutverki er geðþekkur uppáklæddur maður sem hefur orðið ástinni að bráð. Það gerir það óhjákvæmilega að verkum að hann missir vitglóruna. Í geðsýki sinni, [...]
Ratin rottueitur við öll tækifæri
Engum þarf að leiðast, ef Ratin rottueitur er með í för.
Lækningamáttur súkkulaðis
Eftir erfiðan dag á skrifstofunni kom ég heim í hlað, sæll og glaður með dagsverkið. Ég hafði verið önnum kafinn síðan í dögun. Ég hafði framan af degi talað hátt og snjallt í símann minn, þannig að ekki fór á milli mála að ég var ekki bara að massa, heldur líka að tækla. [...]
heimur hinna fullorðnu
Það kemur fyrir að ég er staddur í umhverfi, þar sem ég beinlínis neyðist til að haga mér eins og tilheyri heimi hinna fullorðnu. Það er mér þungur róður. Í þessum aðstæðum er ekki óalgengt að að ég finni hjá mér þörf til að annaðhvort bresta í söng eða bara garga. Garga [...]
De Reszke
Hér er svo bráðfyndin sígarettuauglýsing dagsett 11. janúar 1919.
“De Reszke” er álitnar beztu cigaretturnar, sem hafa á heimsmarkaðinn; – heimsfrægir menn, svo hundruðum skiftir, hafa látið þá skoðun sína í ljós, að De Reszke séu óviðjafnanlegar að gæðum.
Baroness Orezy, hinn heimfrægi rithöfundur, segir m. a. í bréfi til verksmiðjunnar: “Ég álít að þér hafið framkvæmt [...]
Yfirsjónir unglinga
Nú er nýmóðins að halda úti moggabloggi. Þar gefst sýnihyglisjúku fólki af öllum stærðum og gerðum, tækifæri á að krækja í fréttir sem skrifaðar eru á þessum ágæta fréttavef.
Hér er úrdráttur úr grein í Morgunblaðinu frá árinu 1917 sem ber fyrirsögnina: “Yfirsjónir unglinga.” Umfjöllunarefni greinarinnar er vaxandi glæpatíðni meðal ungra manna, erlendis. [...]
Eftirlæti æsku minnar
En hverskonar nafn er Dick Van Dyke eiginlega?
And slowly, but surely they drew their plans against us.
Ég hef með aldrinum vaxið sem viðkvæm og umfram allt falleg tilfinningavera. Sem fallegt lítið blóm, sem hefur í gegnum tíðina verið troðið undir af eigingjörnum, andstyggilegum skíthúsköllum með svarta sál og stíflaðan ristil. Þið vitið hverjir þið eruð! Af sérstakri háttvísi og með fullri virðingu óska ég ykkur offitu og inngróinna [...]
Arnheiður
Um daginn sagði ég dóttur minni sögu af mér þegar ég var nemandi í viðurstyggilegum Kópavogsskólanum. Ég hef verið u.þ.b tíu ára gamall, alveg fyrirtaks nemandi sem skaraði mjög svo fram úr bekkjarfélögum mínum. Krakkarnir sem voru með mér í bekk voru nefnilega langflestir jaðarfábjánar. Þannig að vera gáfum gæddur, gerði það [...]
á líðandi stundu
Ég var á leiðinni með að skrifa enn einn veflókinn þegar ég áttaði mig á að lagið hér að neðan segir í rauninni allt sem segja þarf.Ég hef sumsé sagt allt sem mig langaði að segja.
Þannig er það nú bara.
Að því búnu steig hann niður af bálkesti hégómans, dustaði af sér kusk fortíðar og valhoppaði [...]