Archive for October, 2007
Dauðataflið
Árið 1991 var Twin Peaks vinsælasta þáttaröðin í sjónvarpi, Jón og Gulli voru með útvarpsþátt sem ég hataði, Kópavogshælið var ennþá til, sígarettur þóttu töff, Kaupþing hét Búnaðarbankinn og var banki niðursetninga, sjávarútvegur var stærsta tekjulindin og Hemmi Gunn þótti ótrúlega fyndinn.
Á þessu prýðilega ári tókum við okkur saman nokkrir framúrskarandi Kópavogsbúar og [...]
In: Veflókar, Videoverk · Tagged with: Kópavogur, kvikmyndir
Bæjarmelir
Fyrir hartnær tuttugu árum síðan mætti ég með VHS upptökuvél í Bæjarvinnuna í Kópavogi. Þetta var á þeim árum sem Kópavogur var sveitarfélag afmarkað tveimur skítalækjum; einum fyrir norðan bæinn og öðrum sunnan meginn. Nú er Kópavogur á stærð við Nýju Jórvík og í stað skítalækjanna, rennur í gegnum bæinn lækur með eitt [...]
In: Bláa Eyjan, Veflókar, Videoverk
tharmastytting.blog.is
En að halda úti bloggi, sem heitir tildæmis “þarmastytting.blog.is”, eða “gyllinæð.blog.is” og skrifa þar níð um gyðinga, eða búddista. Er það ekki hipp og kúl?
Kleppur er víða, ekki aðeins spítali, ekki aðeins höll, heldur mynstur ofið úr þráðum svo fínum að enginn greinir þá, hvorki keisarinn né börnin, hvorki ég né þú.
Gordon Cole
Ég var staddur í gleðskap um daginn, þegar góðvinur minn fór að sleikja smettið á sinni heittelskuðu. Við sem sleikjum aldrei smettið á einum né neinum, né erum sleikt, varð um og ó yfir þessum kynferðislegu tilburðum. Hneykslanin og viðbjóðurinn gerði það að verkum að við gleymdum öllu því góða og fallega sem [...]
Mónólókar
Mónólókur er afskaplega áhugaverð tegund af manneskju. Mónólókurinn er aldrei fyllilega sáttur í samskiptum sínum við aðra, nema hann nái að yfirgnæfa viðmælendur sína með misskemmtilegu orðagjálfri.
Orðaforði Mónólóksins inniheldur oft framandi orð sem sótsvartur almúginn getur ekki einu sinni stafað í gúgúlleit. Orð eins og quintessential og debat; “áhugavert debat það” [...]