Archive for November, 2007

Once Upon A Time In America

Þarna má sjá Jennifer Connelly í einu af sínu fyrstu hlutverkum.
David ‘Noodles’ Aaronson njósnar um æskuástina sína, Deborah. Henni er fullkunnugt, að á sig er horft. Það vantar reyndar upp á þetta atriði, en í endann á dansinum afklæðir hún sig til að stríða Noodles.
Ennio Morrocone á í henni [...]

Posted on November 30, 2007 at 13:29 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

En

hvaða mynd er þetta?

Posted on November 29, 2007 at 23:28 by siggi · Permalink · 13 Comments
In: Veflókar

Skoðanafestublogg

Ég gæti tekið mig til og gert mér upp einhverja skoðun á málefnum líðandi stunda, en það yrði klaufalegt af minni hálfu vegna þess að ég kæri mig orðið kollóttan um flest þeirra málefna sem allir elska að fá tremma yfir, þar fyrir utan veit ég í hjarta mínu að þessum málefnum er gerð góð [...]

Posted on November 29, 2007 at 22:09 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Christine – show me

Þegar hér er komið við sögu, er Arnie Cunningham söguhetja myndarinnar Christine staddur niðurbrotinn á bílaverkstæði Will Darnell. Nóttina áður brutust drulluháleistar inn á verkstæðið og rústuðu því sem er Arnie kærast í heimi hér: Plymouth Fury 57, bifreið sem hann hefur kostað öllu sínu í að gera upp. Í atriðinu – sem [...]

Posted on November 29, 2007 at 13:02 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Títtumræddir tveir og tveir

Eftirlæti mitt á þeim árum sem myndin kom út. Ég tala ekki með óæðri endanum, þegar ég fullyrði að ég hafi séð hana minnst 50 sinnum. Ég var gersamlega hugfanginn af henni; það skal engan undra þegar lagðir eru saman títtumræddir tveir og tveir.
Hvaða mynd er þetta?

Posted on November 28, 2007 at 20:02 by siggi · Permalink · 23 Comments
In: Veflókar

Dah dah dahhh dahh dahhhhhhh

Þegar ég var strákalingur, vorum ég og besti vinur minn í gervöllum heiminum miklir kvikmyndalúðalabbar. Fátt annað komst að en kvikmyndir, tæknibrellur, framúrskarandi leikstjórar og skæslegir leikarar. Ég hafði reyndar talsverðan áhuga á stelpum líka, en ég hélt þeim áhuga algerlega út af fyrir mig, enda þótti sá áhugi veikleikamerki. Seinna [...]

Posted on November 27, 2007 at 20:12 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Veflókar

20th century fox

Þetta þykir mér fyndið.

Posted on November 26, 2007 at 22:52 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Andlegir yfirburðir

Það kemur fólki á óvart þegar það verður þess áskynja að ég er afskaplega andlega þenkjandi maður. Vegna áhuga míns á málefnum tengdum fallvaltleika lífsins var ég einu sinni staddur á ráðstefnu fólks sem lifir í andlegum vellystingum. Á ráðstefnunni var talað um Guð og hvernig hann hefði lagt hönd á plóg við [...]

Posted on November 25, 2007 at 17:43 by siggi · Permalink · 18 Comments
In: Veflókar

John Denver er dauður.

Hverju mannsbarni er fullkunnugt um hversu mikill söngfugl ég er. Ég gersamlega elska að þenja á mér raddböndin og verða þá oftar en ekki söngvar um ástina fyrir valinu. Hver sem haft hefir af mér kynni veit að ég er dyggur aðvókat ástarinnar. Ég elska að elska. Ég elska að syngja. Að [...]

Posted on November 20, 2007 at 03:10 by siggi · Permalink · 29 Comments
In: Animation, Veflókar, Videoverk

Tónaflóð

Vöxtur minn er orðinn framúrskarandi eftir að ég fór að ástunda dans.

Posted on November 13, 2007 at 20:31 by siggi · Permalink · 18 Comments
In: Veflókar

Nafnakall í gehinom

Að stíga léttan dans á jarðsprengjusvæði er eftirlætis nálgun mín við að lifa þessu lífi. Oftar en ekki kallar einhver velviljaður til mín: Sigurður minn, viltu ekki heldur hrista á þér skankana á hunangsakrinum þarna við hliðina á. Hunangsakur??? Ég hræki rafgeymasýru í augun á viðkomandi. Fullur af fyrirlitningu, þreyttur, lúinn, í köldum heimi [...]

Posted on November 12, 2007 at 22:08 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

nostalgía

Ég hef alla tíð borið í brjósti mér óskilgreindan ljúfsáran söknuð til áranna í kringum 1928-1936. Tónlist, arkitektúr, fatnaður og stemning þessa tímabils fyllir sálu mína af hlýjum og notalegum tilfinningum. Söknuður sem þessi er stundum kallaður nostalgía, þrátt fyrir að nostalgía sé upprunalegum skilningi notuð um heimþrá.
Fyrir mörgum árum [...]

Posted on November 9, 2007 at 04:44 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar