Archive for December, 2007

Ástin sigrar

Ég hef ekki ástundað það í bloggheimum að þræða aðrar bloggsíður, girða þar niður um mig og kukka. Ég beinlínis forðast moggabloggið, því ég verð dapur í hjarta mínu af að lesa sumt af því gubbi sem gengur upp úr samlöndum mínum. Ég á þó nokkra félaga á moggablogginu sem ég les. [...]

Posted on December 31, 2007 at 12:58 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Feimni

Félagsfælinn með athyglissýki, er greining sem ég bjó til þegar ég sótti sessjón í andlegri þjálfun hjá Jedi meistaranum mínum: Obi Wan Kenobi. Óskiljanleiki lífsins hefur orðið þess valdandi að um þessar mundir er ég dálítið feiminn við að öskra og garga hér á vefsetri mínu. Eftir að hafa risið hátt í sýnihyglirunki [...]

Posted on December 30, 2007 at 16:22 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

Á leið út í haf

Í dag kúka allir jólakræsingum gærdagsins og á undurfagran hátt, sama hvaða stétt við tilheyrum, sameinumst við öll í gegnum holræsakerfi borgarinnar.
Og þar sem ég bý við Óðinsgötuna, tel ég ekki ólíklegt að kúkur úr mér og kúkur úr Degi B. Eggertssyni myndi kunningsskap og bjóði hvorum öðrum gleðileg jól á leið sinni á haf [...]

Posted on December 25, 2007 at 12:33 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Millilandafrumvarpið

Til eru tvær tegundir af fólki: Fólk sem er með millilandafrumvarpinu og fólk sem er á móti því. Skiptir einu hvort þú ert falleg/ur, auðug/ur, gáfuð/aður, eða hefur til að bera aðra mannkosti, ef þú ert með millilandafrumvarpinu ertu viðbjóður og svikari. Maðurinn á myndinni er á móti millilandafrumvarpinu, þess vegna er hann [...]

Posted on December 23, 2007 at 13:46 by siggi · Permalink · 15 Comments
In: Veflókar

Hvar ertu nú?

Þetta æðisgengilega lag Gunnars læknis bergmálar í hausnum á mér. Þess ber að geta að mér og mínum vinum finnst Óttar Proppé kynþokkafyllstur allra karlmanna á Íslandi; Megas fylgir honum fast á eftir.

Posted on December 22, 2007 at 12:11 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Tónlist, Veflókar

Garland Briggs

Garland Briggs sem festur er á skotskífuna á lokaorðin á þessum sögulega degi.

Posted on December 21, 2007 at 23:53 by siggi · Permalink · One Comment
In: Trít, Veflókar

Byrði fullorðna fólksins, eða “úr einu í annað” þvaður fullvaxta karlmanns á breytingarskeiðinu.

En sú kvöð að vera orðinn fullorðinn. Það er gert ráð fyrir því að maður kominn á fertugsaldur hafi áhuga á allskyns leiðindum. Þvílík mæða. Ég neita að taka þátt í þessum sirkus mannskepnunnar. Ég nenni ekki að hafa fyrir því að gera sjálfan mig gáfulegan í framan meðan ég reyni [...]

Posted on December 21, 2007 at 01:27 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

BDD

Því er svo farið með marga mannskepnuna, að henni er ókleift að finna til gleði vegna útlitsgalla af ýmsu tagi. Í skúmaskotum sálartuðru sinnar halda sumir að ef nefið á þeim væru aðeins lögulegra, varirnar bústnari, brjóstin stinnari, typpalingurinn örlítið lengri, kílóunum færri osfrv. -þá geti þeir fyrst gengið um fjölfarnar götur, hnarreistir eins [...]

Posted on December 19, 2007 at 14:58 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Einkennilegt torfblogg

Einstaka sinnum hitti ég fyrir manneskjur sem hrífa mig með sér á annað tilverustig, þar sem gilda önnur lögmál en ég á að venjast í þessari barnalegu uppfærslu sem ég hef verið svo djarfur að kalla líf. Meiri skrúðlanglokan þessi setning. Þegar þetta gerist gleymi ég því að við erum öll fífl og fábjánar, [...]

Posted on December 18, 2007 at 17:20 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Konan með lurkinn

Hér er svo mynd af mér í litlu Tvídrangateboði sem ég hélt á Óðinsgötunni síðastliðið sumar. Teboðið var ekki fjölmennt, en góðmennt var það.

Posted on December 18, 2007 at 11:38 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Twin peaks ferð 2008

Þá get ég haldið óhindrað áfram, án þess að það sé endalaust verið að grípa fram í fyrir mér.
Hefst þá pistillinn.
Ég hef verið Twin Peaks böff síðan gamall vinur presenteraði fyrir mér þættina í kringum 1990. Við í sameiningu marineruðum í þessu gúmmilaði. Aldrei hafði sést eins frískandi sjónvarpsefni.
Áður en að hinn [...]

Posted on December 17, 2007 at 14:49 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Stangveiðiblogg

Einhverra hluta vegna fæddist ég karlkyns. Ég hef ekki neina skoðun á því hvort kynið ég hefði valið mér, hefði einhver sýnt mér þá lágmarkskurteisi að spyrja áður en mér var plantað hér á þessa jörð. Kannski var ég spurður, en hef ekki hugmynd um það. Ekki kann ég heldur á því fræðilega [...]

Posted on December 15, 2007 at 02:24 by siggi · Permalink · 32 Comments
In: Veflókar