Archive for December, 2007
Draumablogg
Í fallega innréttuðu sálarlífi mínu dreymdi mig eftirfarandi draum, nóttina sem leið:
Ég er á leiðinni í svokallað bekkjarríjúníon. Ég finn kyrfilega fyrir því að mig langar ekki vitund til að mæta. Ríjúníonið er haldið í fallegum veislugarði með sundlaug. Þegar þangað er komið kasta ég kveðju á nokkra bekkjarfélaga og hlakka yfir [...]
Vopnabúr
Ég vaknaði til meðvitundar sönglandi og trallandi, sjálfum mér og kettinum sem sefur mér til fóta til sérstakrar ánægju. Meðan ég saup á mjólkurkaffinu mínu, las ég nokkur moggablogg, fáeina þræði á barnalandi og horfði á eitt til tvö myndbönd með Erpi á jútjúb. Hægt og bítandi, án þess að ég fengi við [...]
Stigatafla himinhæða
Hvort skorar meira í himinhæðum: Að vera auðmaður sem gefur yfirnáttúrulegar fjárhæðir til góðgerðamála og þegir yfir því, vitandi að hann uppsker ekki aðdáun pöpulsins og deyr jafnvel í minningunni sem sjálfshyggjurunksvín, eða þá að vera auðmaður sem gefur stórar fjárhæðir til góðgerðamála, mætir í fjölmiðla og röflar um hugsjónir sínar, sér og þeirri maskínu [...]
Að haga sér eins og maður
Reyndu að haga þér eins og maður, var sagt við mig í gær, er ég brá á leik. Ég lét mér fátt um finnast, sem er frávik frá reglunni, því samkvæmt öllum kúnstarinnar reglum, hefði ég átt að verða miður mín. Hvað þýðir það nákvæmlega? Það að haga sér eins og maður? [...]
Marmarakúlur
Ég á von á því þegar ég hef leyst lífsins gátu að ég heyri ég svona smell í hausnum á mér, rétt eins og síðasta pússlið í pússluspilinu sé komið á sinn stað.
Þetta gerðist hjá Eckhart nokkrum Tolle. Hann sér til mikillar armæðu vaknaði upp einn morguninn, hafði sig til, setti á sig vellyktandi [...]
Nef dagsins
Ég hef verið aðdáandi PJ Harvey síðan ég heyrði Rid Of Me. Því í ósköpunum er enginn búinn að ferja hana hingað til tónleikahalds í rassaborugati alheimsins?
Þeir sem mig þekkja, vita að ég er mikill áhugamaður um nef. Ég veit ekki því í ósköpunum ég er svona hrifinn af stórnefja kvenfólki. [...]
Minnispunktur #2
Ekki kaupa 350gr af súkkulaðismákökum, ef þú átt ekki von á gestum.
Minnispunktur #1
Ekki horfa á heimildakvikmyndir um fitusog, meðan þú borðar.