Archive for January, 2008

Dr. Phil er ógeðskallinn

Andskoti er ég hræddur um að Gvuð hafi tekið út á sér tittlinginn og löðrungað Dr. Phil með honum. Hvern hefði grunað að þessi geðugi maður, sem borið hefur svo mikla umhyggju fyrir drulluskítugu sálarlífi mannskepnunnar, að hann sjálfur hafi verið staðinn að því að þukla á sér ógeðið, einhvers staðar þar sem hann [...]

Posted on January 31, 2008 at 01:22 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Geðheilsa

Ef undurfagurt vefsetur mitt væri notað til að gera úttekt á geðheilsu minni, þá er ekki ólíklegt að ég yrði ráðinn til embættisstarfa.

Posted on January 29, 2008 at 18:15 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Yndisleg tónlist

Mér var send þessi gersemi í flugpósti. Ég veit eftirfarandi um þessa hljómsveit: Þau kalla sig WE HAVE NO TV: NOT QUITE PUNK, eða er það nafnið á disknum? Ég er ekki viss. Kannski heitir hljómsveitin WE HAVE NO TV og diskurinn NOT QUITE PUNK, ég er tel það reyndar líklegt. Þau [...]

Posted on January 29, 2008 at 13:26 by siggi · Permalink · 20 Comments
In: Tónlist, Veflókar

Nótt í borg hinna dauðu

Á Þúskjá.
Fígúran sem lék í myndbandinu mínu Borgin Brennur hefur náð ótrúlegum vinsældum á Þúskjá fyrir tilstilli monitor.is. Hef ég því tekið ákvörðun um að hún leiki aðalhlutverk í öllum mínum myndböndum héðan í frá. Og þar sem mér dauðleiddist svo skelfilega í dag, settist ég niður við tölvuna mína fínu og bjó [...]

Posted on January 27, 2008 at 05:09 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Animation, Veflókar, Videoverk

Hugsuðurinn

Fólk sem lætur mynda sig í þessari stellingu, er einfaldlega ekki treystandi. Eiga þarna í hlut svokallaðir Sukkópatar og Mónólókar. Stórhættulegir og lítið annað að gera en að hlaupa á brott, eins og fætur toga, áður en þeir sjúga úr manni lífslöngunina með óþolandi kjaftablaðri og sjálfumgleði sem ekki einu sinni Jesúbarnið myndi [...]

Posted on January 25, 2008 at 19:23 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Þarna glittir í nefið mitt

Eins og sjá má glögglega á þessari mynd, lét ég ekki mitt eftir liggja í mótmælum dagsins. Ef vel er að gáð, má sjá í hringnum stóra fína nefið mitt, sem víðfrægt er hérlendis sem erlendis. Nefið hefur vakið athygli hvarvetna sem það hefur stungið sér niður. Mótmælin voru sérstaklega hressandi [...]

Posted on January 24, 2008 at 17:36 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Tikkun Olam

Ef einhver ofmetnast og fer að haga sér eins og snipparamenni, þá gerir Gvuð sér lítið fyrir, rífur út á sér typpalinginn og löðrungar þann með honum sem á í hlut. Ég hinsvegar trúi ekki á þennan Gvuð, sem talað er um í Biflíunni. Ef hann er til, þá er hann sjálfumglaður egótískur [...]

Posted on January 24, 2008 at 00:23 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Alla kennir til, einstaka sinnum

Fyrir nokkrum mánuðum síðan var ég afskaplega hryggur í mínu hjarta. Ég var staddur á pósthúsi niður í bæ að leysa út enn eina bókina um existensial málefni, með sérstaka áherslu á existensial. Og þarna stóð ég, flakandi sár á tveimur löppum. Blóð sálar minnar lak í poll á gólfið og ég [...]

Posted on January 23, 2008 at 00:20 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Viðtöl við íþróttamenn

Ef það er eitthvað umfram annað sem ég þoli ekki í íslenskum fjölmiðlum þá eru það viðtöl við liðsmenn boltaíþrótta. Leggjast þeir iðullega í óskiljanlegar útskýringar á því hvað þarf til að þeir nái betri árangri í sinni íþrótt.
“Já, við þurfum ekki annað en að herða okkur í sókninni. Já, þýðir [...]

Posted on January 22, 2008 at 20:33 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Veflókar

Existensial vangaveltur um sjónvarp

Með tilliti til þess að pör í nýtízkusamfélagi eyða megninu af sínum tíma fyrir framan sjónvarpið, er mikilvægt að finna sér maka sem hefur svipaðan smekk og maður sjálfur. Ef að báðir aðilar koma sér saman um sjónvarpsdagskránna eru allar líkur á að sambandið verði farsælt og endist mun lengur en fólk kannski kærir [...]

Posted on January 22, 2008 at 11:09 by siggi · Permalink · 17 Comments
In: Veflókar

Kata Strófía

Stundum leiðist mér svo ægilega að vera vakandi og veit ég þá fátt betra en að kveikja upp í rafmagnsundirbreiðslunni minni fínu og fallegu og sofa svolítið. Svefninn er óumdeilanlega það dásamlegasta sem ég tek mér fyrir hendur í þessari asnalegu jarðvist, enda hef ég öðlast sérstaka færni í að sofa.
Eftir vel [...]

Posted on January 21, 2008 at 20:55 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Kynlífshegðan í nýtízkusamlífi

Umkomulausum karlmönnum sem lyfta sér á kreik með að maka á nakið hörund sitt rækjusalati, hækka í miðstöðinni og syngja ættjarðarlög, er til allrar guðs lukku sýnt meira umburðarlyndi nú, en í árdaga. Með tilkomu internetsins fína og fallega, hefur sjóndeildarhringur mannkyns breikkað og ýmiskonar spennandi kynlífshegðan er ekki litin sama hornauga. Þær [...]

Posted on January 20, 2008 at 20:09 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar