Archive for January, 2008

Þingholtin

Þingholtin eru yndisleg. Ein ferð út í kjörbúð verður auðveldlega að mikilli ævintýraferð. Til að ég geti kallað labbitúr um Þingholtin ævintýri, þarf ekki neina sérstaka viðurhöfn. Það þarf ekki að kalla út neinn mannskap sem sérhæfir sig í ævintýrum til að ég geti orðið fyrir andans upplyftingu.
Í kjörbúðinni Þingholt, er [...]

Posted on January 19, 2008 at 19:50 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Blaðberabíó

Ég heyrði þetta lag fyrst í blaðberabíói, þegar ég var krakki. Þeir krakkar sem báru út Þjóðviljann heitinn, fengu vikulega senda bíómiða í Regnbogann, þar sem sýndar voru æsispennandi krakkamyndir á borð við Sinbað sæfara, 20.000 League under the sea, Töfragarðinn, ásamt fleiri titlum sem festust mér ekki í minni. Á undan einni [...]

Posted on January 18, 2008 at 19:50 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Tónlist, Veflókar

Hvað veit maður hvað fólk er að hugsa?

Stundum þegar ég er umkringdur fólki sem mér finnst hafa skarað fram úr í lífinu, eða hefur sýnt ótrúlega yfirburði á sínu sviði, legg ég mig sérstaklega fram um að líta gáfulega út. Ég brýni fyrir sjálfum mér í huganum að koma ekki upp um mig með að segja einhverja grábölvaða andskotans vitleysu, eins [...]

Posted on January 17, 2008 at 23:26 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Með holu í hjartanu

Eins og lesendum er kunnugt framdi klarinettið mitt sjálfsmorð. Var það eitthvað sem ég sagði, eða gerði?
Með hjálp nútímatækni hef ég pantað mér þetta fallega rauða klarinett. Mér fannst við hæfi að hafa nettið rautt, því að skærir litir hafa til þessa hjálpað mér að halda karlmönnum með anorexískt gáfnafar í [...]

Posted on January 16, 2008 at 15:20 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Þórkatla snæðir hamingjusaman kjúkling

Henni Þórkötlu minni þykir kjúklingur alveg ægilega góður. Hún kætist aldrei meira, en þegar ég geri mér ferð inn í Nóatún til að festa fé í grilluðum transfitukjúkling. “Var þessi kjúklingur hamingjusamur meðan hann lifði?”, spyr ég starfsmann í kjötborði. “Tja……”, umlar starfsmaðurinn. Ég geri mér samstundis grein fyrir að ég [...]

Posted on January 15, 2008 at 20:40 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Melankólía

Ég hef verið hryggur í hjarta mínu í dag. Ástæðuna rek ég til þess að í gær át ég köku sem innihélt egg úr óhamingjusamri hænu og tel ég fullvíst að blámi hænunnar hafi skilað sér í eggin og að lokum út í blóðrás mína sem varð til þess að lífslöngun mín þvarr [...]

Posted on January 14, 2008 at 19:57 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Stefnumót

Stefnumót er ekki ólíkt því að fara á viðskiptafund, þar sem tveir einstaklingar leggja kapp á að selja hvoru öðru eigið ágæti. Ef vel til lukkast, girða þeir niður um sig og bera á sér kynfærin. Ef samningar takast hinsvegar ekki, er annar viðskiptafundur ákvarðaður, með öðrum aðila.
Ég var spurður að því í vikunni, [...]

Posted on January 13, 2008 at 23:24 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Nína & Geiri – Auðunn & Lilja

Hjartaknúsarinn og ástsælasti sprellikarl íslensku þjóðarinnar Auðunn Blöndal og unnusta hans til fimm ára Lilja Björk, eru hætt saman. Ég verð að segja að þetta er mikið áfall fyrir okkur stuðningsmenn ástarinnar. Þegar ég fékk þessar fréttir brotnaði ég saman, eitthvað innan í mér dó og rotnaði á örskömmum tíma. Vonleysið [...]

Posted on January 12, 2008 at 15:47 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Góðar hægðir

Það gleður hjarta mitt ósegjanlega að ef leitað er með leitarstrengnum: “góðar hægðir” á gúgúl, þá birtist vefurinn minn á fyrstu síðu. Er þetta enn ein dalían í þéttskipað internetblómabeð mitt. Og ég er þarna ekki í slæmum félagsskap, því málbeinið, Anna Helga og Baggalútur raðast þarna upp með mér í kærleik og harmoníu. [...]

Posted on January 11, 2008 at 17:34 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Superman brýtur reglurnar

Í fyrrinótt dreymdi mig að ég væri búsettur í Nýju Jórvík. Í draumnum var ég ekki aukvisinn sem ég er í vakanda lífi, heldur sjálfur Superman. Ég átti snotra litla þakíbúð í 50 hæða stórhýsi. Eitthvað óskilgreint gerist í draumnum, sem verður til að ég hef sjálfan mig til flugs fram af [...]

Posted on January 9, 2008 at 01:10 by siggi · Permalink · 20 Comments
In: Veflókar

moggblogg

Þrátt fyrir að hafa hugleitt í rúma klukkustund fyrr í kvöld, spúði ég eldi og brennistein þegar ég las bloggfyrirsagnirnar við þessa frétt. Fréttin greinir frá þegar Hillary Clinton varð uppvís að mannlegri hegðan á framboðsfundi. Nú þarf ég að bregða mér af bæ með exi í farteskinu. Í rassaborugat með heimsfrið.
Eftirmáli: [...]

Posted on January 7, 2008 at 21:35 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Borgin brennur

Fyrir nokkrum árum síðan lærði ég á snilldarforritið Photoshop. Það kom sér ákaflega vel á þeim tíma, þar sem mér var í nöp við fjölda fólks; sem er eitthvað annað en í dag: nýkrýndur verndari ástarinnar.
Þeir sem urðu fyrir photoshop-barðinu á mér voru meðal annarra deildarstýra á deild sem ég var að vinna [...]

Posted on January 5, 2008 at 05:22 by siggi · Permalink · 15 Comments
In: Animation, Veflókar, Videoverk