Archive for March, 2008

Aspartame

Ég kom heim í eftirmiðdaginn og lagði mig. Þegar ég hafði fest svefn, dreymdi mig draum þar sem ég átti í töluverðum útistöðum við mann, sem ég hef lítið hugsað um undanfarið.
Þegar ég vaknaði var ég harðákveðinn í að gera mér sérstaka ferð til að pissa á leiðið hjá honum og fleirum sem [...]

Posted on March 31, 2008 at 23:46 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Hvað er málið með hvað er málið?

Á google.com ef leitað er að “Hvað er málið?”, innan gæsalappa, skilar leitin 74,800 niðurstöðum. Ef gæsalappir eru notaðar í leit á google, veit leitarvélin að hún á eingöngu að skila þeim niðurstöðum þar sem leitarstrengurinn kemur orðrétt fyrir. Mér dettur því í hug að þetta sé ein ofnotaðasta og jafnframt hundleiðinlegasta spurning/upphrópun [...]

Posted on March 30, 2008 at 00:25 by siggi · Permalink · 21 Comments
In: Veflókar

Framhjáhald

Framhjáhald er vinsæl dægradvöl hér á landi, og með tilkomu internetsins, er hægt að kokkála meðbræður sína án mikillar fyrirhafnar. Hér á landi, er hægt að stunda stórkarlalegt framhjáhald með hjálp einkamálavefsins einkamal.is. Gárungar og öfundsjúklingar, sem ekki hafa dottið í bullsjóðandi lukkupott ástarinnar á þessum vettfangi, – kalla þetta þokkafulla vefsetur [...]

Posted on March 26, 2008 at 20:46 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Kaffibaunir

Ég hef með öllum ráðum reynt að fá hana Þórkötlu mína til að éta kaffibaunir sem ég keypti fyrir slikk. Ég hef það nefnilega fyrir víst að úr kattaskít verði fínasta uppáhelling. En mikið helvíti er kvikindið dyntótt.
Ég er ekki frá því að Þórkatla sé eigingjarnasti kötturinn í öllum Þingholtunum.

Posted on March 24, 2008 at 20:08 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Um kartöfluflögur og dauðann

Undanfarna mánuði hef ég átt rómantíska drauma um að byggja mér hreiður í hundrað og einum Reykjavík. Ég hef líka verið mjög upptekinn af að vera Íslendingur. Hvað ég á sameiginlegt með löndum mínum. Hvernig enginn nema sá sem er fæddur hér geti skilið menningu okkar. Og fleira í þá veruna.
Ættjarðarást mín vaknaði [...]

Posted on March 24, 2008 at 13:57 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

J’ai une âme solitaire.

Ég sat á Sólon Islandus fyrr í dag. Ég hef reyndar setið á einum þremur kaffihúsum í dag, sem er nokkuð mikið afrek fyrir mig á einum degi. Með mér var fólk, sem Gvuð hefur vandað sig alveg sérstaklega við að búa til. Þegar ég hugsa það, þá eru langflestir af þeim [...]

Posted on March 22, 2008 at 02:36 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Trít, Veflókar

Hryllilegir hlutir hafa gerst hér á Óðinsgötunni

Ég vaknaði upp hamingjusamur, glaður og frjáls – fékk mér espresso, las netrusl og fór því næst í sturtu. Vorið er komið og grundirnar gróa, söng ég hástöfum, meðan ég þreif mig. Ég sté út úr sturtuklefanum, þerraði mig og hugsaði með sjálfum mér: Best að stíga á vigtina, nú er ég búinn [...]

Posted on March 18, 2008 at 22:44 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Viðurstyggilegur tónlistarsmekkur

Maðurinn sem deilir með mér skrifstofu er með ógeðslegan tónlistarsmekk. Meðan ég auðga anda hans með Bob Dylan, David Bowie, Jefferson Airplane, Coco Rosie, Pixies, Cat Power, brýtur hann mig á bak aftur með endurtekinni spilun á drullukuntunni henni Enyu, Enigma, U2 og einhverjum spænskum vælukjóum sem ég til allrar guðs blessunar kann ekki [...]

Posted on March 17, 2008 at 11:13 by siggi · Permalink · 14 Comments
In: Veflókar

Bidda systir

Í síðasta bréfi sem Þórbergur skrifar Biddu systur, gerir hann sér grein fyrir að dauðinn er skammt undan og veltir því fyrir sér hvernig eftirlífið gangi fyrir sig á Bláu eyjunni. Þeir sem lesið hafa Sálminn, vita að Bláa eyjan er staðurinn sem við förum á þegar við deyjum; Bláa eyjan eða góðu sveitirnar. [...]

Posted on March 16, 2008 at 23:41 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Sumar og hamingja

Ég hef legið í Summertime útgáfum síðan í gær, og út af því að Fóstradamus vinur minn nefndi Devendra Banhart í athugasemdainfrastrúktúrindexdatabasakerfinu, – þykir mér við hæfi að kunngjöra bloggheimum þessa fínu og flottu útgáfu með þessum æðisgengilega söngvara. Hann er ekki þarna einn á báti, því þetta vidjó prýðir alveg sérstaklega hæfileikaríkur [...]

Posted on March 14, 2008 at 16:22 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: summertime, Tónlist, Veflókar

Vorhret í lofti

Í þessari bloggþurrkuntutíð, ætla ég að tefla fram tveimur útgáfum af tvö þúsund og sex hundruð mismunandi útgáfum, sem til eru af laginu Summertime eftir George Gershwin. Einnig er þetta fyrsta lag sem ég skammarlaust lærði að spila á klarinettið mitt sáluga, og því óumflýjanlega eftirlætis lag nágranna minna, sem mér er frekar hlýtt [...]

Posted on March 13, 2008 at 14:32 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: summertime, Tónlist, Veflókar

Juno og Kimya Dawson

Ég og Magga frænka Best sáum þessa dásamlegu mynd, sem er drekkhlaðin tónlist Kimya Dawson, sem ég hef áður líst aðdáun á. Loose Lips er spilað undir kreditlistanum, og er lýrikin í þessu lagi, sem og flestum hennar lögum, alveg sérstaklega hnyttin og skemmtileg.
Hér er lagið, af plötunni Remember That I Love [...]

Posted on March 11, 2008 at 00:52 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Tónlist, Veflókar