Archive for March, 2008
A man with face like harðfisk
Af engu sérstöku tilefni langar mig til að skrifa lítinn fallegan pistil um þurrkuntulegt viðmót okkar Íslendinga. Í þessum pistli reyni ég eftir fremsta megni að hljóma eins og maður sem er skör ofar en allir aðrir, og þess vegna vel til þess fallinn að koma auga á það sem betur mætti fara í [...]
Þegar sjúkdómurinn verður persónan
Orri Harðarson skrifar pistilinn: Ertu maður, eða ertu sjúkdómur? Hann skrifar skýrt og skilmerkilega um málefni sem ég kaffærði í orðaskrúða og slæmri málfræði í færslu frá 19. október, 2006: fallacius pluralibus. Ég veit reyndar ekki hvað þessi titill átti að fyrirstilla, en mér sýnist þetta hafa verið máttlaus tilraun mín til að [...]
Kexklikkaður í félagsvist
Ég hugsa ekki bara mikið um dauðann og eilífðarmálin, því ég hugsa einnig töluvert um ellina og hvernig ég kem til með að verða þegar ég er orðinn gamall kall. Mig hálft í hvoru langar til að verða snargeðveikur kall sem brúkar kjaft við samtíðarmenn sína. Ég vill því biðja fólk á mínu [...]
Líkræður
Fátt er jafn frískandi á föstudagskvöldi og hafa til tei, smurbrauð og hlusta á líkræður. Sumir drekka sig fulla. Aðrir maula kartöfluflögur og glápa á raunveruleikasjónvarp. Ég hinsvegar, drep tímann með að hlusta á líkræður. Svona er nú lífið oft á Óðinsgötunni.
Draumar – Fyrir lengra komna
Ég hef setið síðustu tvær vikur við eftirvinnslu á þessu glæsilega tónlistarmyndbandi, sem er við lagið Draumar af frumraun Sævars/Poetrix: Fyrir lengra komna.
Á einhverjum punkti eftirvinnslunnar tóku á mér hús, tónlistarmaðurinn, myndatökumaðurinn og framleiðandinn. Ég bauð upp á sékursnúða, espressó, tei og gamanmál. Klukkan hefur verið rétt rúmlega níu að [...]
In: Tónlist, Veflókar, Videoverk
Eftirfarandi gerir mig sjóðbullhoppandivitlausan
Sem hér segir:
Fyrirtæki eins og 66° Norður, sem var lítið sætt og vel virt, en gat ekki látið sér nægja að stunda heilbrigð og heimilisleg viðskipti, heldur varð upptekið af að fitna og græða meira, jafnvel þó það bryti í bága við allt siðgæði. Nei, skítt með fólk, fallegt gildismat, og þá hugsun að [...]
Vínsmökkunarferð lífsins
Stundum finnst mér lífið vera eins og vínsmökkunarferðin sem átti að vera innifalin í sólarlandarpakkanum sem ég keypti, en var svikinn um. Eins og sönnum íslenskum túrhest sæmir gef ég mig umsvifalaust á tal við fararstjórann og segi með þjósti, þannig að allir heyra: “Ég stóð í þeirri meiningu að farið yrði í [...]
Með vor í hjartanu
Vertu til, er vorið kallar á þig,
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út því að sólskinið vill sjá þig
sveifla haka og rækta nýjan skóg.
Þennan vorsöng hef ég flautað og sungið síðan ég vaknaði í morgun. Lífið kemur fram við mig af sérstakri virðingu þessa daganna. Ég heyri Bylgjulestina nálgast.
Hvatvísi og óskrifaðar reglur í asnalegri tilveru
Gott þykir í lok vinnuvikunnar að sturta í sig brennivíni og bregða sér niður í miðbæ til að sinna félagslegum þörfum. Ölvað fólk, sem undir öðrum kringumstæðum hefði engan áhuga á að kynnast, ruglar saman reitum sínum og fer jafnvel í sleik. Þegar þetta sama fólk hittist svo seinna á götu úti allsgáð, [...]