Archive for April, 2008
Mary Poppins og lyfjafíkn
Einu sinni át ég reiðinnar býsn af pillum í öllum regnbogans litum. Það þótti mér prýðilegt. Ég átti pillur við öll tækifæri: ef ég var leiður, ef ég var reiður, ef ég var hress, ef ég var að fara á ættarmót, ef ég dansaði diskó, ef ég fór í skóla, ef ég hætti [...]
Söknuður
Undanfarið hefi ég ekki mikið skrifað um hefðarköttinn Þórkötlu, enda hefur ekkert til hennar spurst í þrjár vikur. Ég verð að viðurkenna að ég sakna hennar sárgrætilega og má segja að líf mitt hafi verið þrungið harmi frá því að hún hvarf sporlaust. Sálarlausa kvikindi! Ef hún vissi hvað mér var farið [...]
Jimmy Scott
Hinn þjóðsagnakenndi og jafnframt gullfallegi Jimmy Scott skemmtir gestum meðan þeir bíða eftir að þeim sé sinnt.
Þessi færsla er flokkuð undir flokknum:trít.
Hamsa
Það er lítið gaman að heita Sasson Ben Yehuda og vera fúlasti maðurinn í öllu hverfinu. Sasson þýðir nefnilega á hebresku kæti, gleði, fögnuður, en kátína var það síðasta sem Sasson kom til hugar þar sem hann sat eins og klessa fastur í hjólastól, ekki einu sinni fær um að kasta af sér vatni án [...]
Netið
Ef moggabloggari heldur því fram að hann hafi rétt fyrir sér, þá óumflýjanlega verður til annar moggabloggari sem hefur rangt fyrir sér. Moggabloggarinn sem hefur svo rangt fyrir sér er þess fullviss að hann hafi rétt fyrir sér, en hinn hafi rangt fyrir sér. Hver hefur þá rétt fyrir sér?
Er mín [...]
Indiana Jones með liðagigt og æðagúlp
Ég var staddur á Austurvelli, þegar ég heyrði nafn mitt kallað: Siggi! Siggi! Ég leit í kringum mig og sá enga nema nokkra róna sitjandi á bekk. Siggi! Siggi! Hver var að kalla á mig? Ég pírði augun í átt að rónahópnum, en kallið virtist koma þaðan. Í hópi kraftgallaklæddra [...]
Orðið “fokking” í daglegu máli
Ég var að átta mig á að undanfarið hefi ég ekki sett mér neinar lífsreglur. Jú, að vísu reyni ég að halda aftur af mér í neyslu á sékri og majonesi, og kem reglulega með alvöruþrungnar yfirlýsingar, rétt eins og líf mitt sé í húfi, um að ég sé í sékur og majones straffi. [...]
Mary Poppins og rækjusalat
Ég hef verið sérstaklega heimilislegur í dag. Snurfusað og puntað. Sett í vél. Lagað hummus. Keypt í matinn. Svo brá ég mér út með vaskafat og þreif eldhúsgluggana. Nú sjá allir frá götunni þegar ég á adamsklæðunum stíg trylltan dans við tónlist úr Mary Poppins, smurður rækjusalati frá toppi til [...]
Það er ekki ég, barnið mitt
Joan Baez er í þessu myndbandi jafn yfirlýsingaglöð og þóttafullur moggabloggari. En mikið ægilega er hún sjarmerandi. Hér má sjá hana syngja lag Bob Dylans: It aint me. Í kynningu á laginu, lýsir hún því yfir að hún sé mótfallin hjónabandi. Ekki líða þó nema þrjú ár frá þessum tónleikum þartil [...]
Öll skítum við í sama holræsakerfi
Þjóðarsálin er full af réttlátri reiði um þessar mundir. Fólki er uppálagt að taka afstöðu og koma sér fyrir á öðrum hvorum básnum. Skoðanalaus maður er dauður maður. Netskrifarar leggja sig fram um að koma sínum viðhorfum á framfæri, í þeirri von að þeir hljóti viðurkenningu meðbræðra sinna fyrir stórkostlega sýn á [...]
Eldur gakk með mér
Lokaatriðið í Eldur gakk með mér er hjartnæmt. Dale Cooper og Laura Palmer, undir angurværri tónlist Angelo Badalamenti, virðast sátt við sín hlutskipti: Laura Palmer dauð og doppelganger(tvífari samkvæmt þýskri þjóðsögu) Dale Cooper gengur laus í mannheimum. Sorg og sálarfriður. David Lynch hefur verið hrifinn af englum á þessum tíma, því engill kemur [...]
Gólfefni
Ef ég einhvern tímann byggi mér hreiður, þá verður þetta gólfefni fyrir valinu.