Archive for April, 2008
Helvíti SiggaSiggaBangBang
Ég fór að hugsa um eftirlífið og hvernig er umhorfs í mínu eigin persónulega helvíti.
Ef til er helvíti, þá er helvíti í mínum huga að vera fastur allsgáður inn á Kaffi Reykjavík með blindfullu fólki syngjandi ættjarðarsöngva. Til að refsa mér fyrir jarðvistina þyrfti ég að láta sem ég væri hress, þrátt fyrir [...]
Þessi hárkolla
Þessi hárkolla er farin að gægjast aftur upp á yfirborðið. Fyrir nokkru síðan höfðu Íslendingar ímugust á henni og vildu hana burt úr sjónmáli. En sama hversu hart var lagt að eiganda hennar að taka ábyrgð og sjá sóma sinn í að hafa sig á braut – það hafði ekkert að segja, því [...]
Mezúza
Mezúza er ílangt lítið stykki sem fest er á dyrakarm á heimilum gyðinga. Stykkið er holt og inn í því er að finna litla bókrollu, sem á er skrifuð hebresk bæn. Bænin má ekki vera skrifuð af hvaða lassaróna sem er. Til þeirra verka er fenginn þartilgerður prýðisgyðingur, með áralanga reynslu í [...]
Hemma Gunn jóga
Margur Íslendingurinn kannast við hversu leiðinlegt lífið getur orðið og hvað stundum virðist heppilegra að vera bara dauður. En enginn þarf að sætta sig við leiðindi og ládeyðu í vel upplýstum nútímanum, því nú í fyrsta skipti á Íslandi er hægt að stunda Hemma Gunn jóga.
“Ég var að fara að drepa mig, þegar [...]
Gúgú Be
Megnið af uppvaxtarárum mínum áttu foreldrar mínir bláa Volswagen bjöllu með númerið Y 801. Ypsilon stóð fyrir Kópavogur í þeirri tíð. Fyrsti bíllinn sem ég eignaðist var af Trabant gerð, og keypti ég þá bifreið af föður mínum fyrir heilar 12 þúsund krónur, hann var með númerið Y 4772. Er ég eltist [...]
Hinn arabíski shuk
Fátt er eins sárgrætilegt og þegar gullin tækifæri ganga manni úr greipum. Ég persónulega hef orðið af glæsilegum viðskiptatækifærum, vegna heimskulegra hugsjóna.
Fyrir um tíu árum síðan var ég staddur á arabíska markaðnum í Jerúsalem með fyrrum ástmey minni. Arabíski markaðurinn er fullur af allskonar helvítis skrani og skrauti, sem heillar glysgjarna túrhesta. Þar [...]
Kynþokkafull rödd
Það hefir verið orðað við mig að þegar ég kveð mér til hljóðs, þá hljómi ég eins ég sé rammöfugur. Mér persónulega er nokkuð sama þó fólk dragi þá ályktun út frá talanda mínum. Ég er og hef verið í tilvistarkreppu sem spannar alla liti regnbogans, en ég veit fyrir víst hvort kynið [...]
Andlegt runk
Rétt eins og annars staðar í tilverunni leggur fólk, sem gefur sig út fyrir að vera andlega þenkjandi, sig fram um að gera sjálft sig eins óskiljanlegt og það mögulega getur – í þeirri von að það hljómi gáfulega og uppskeri þar af leiðandi virðingu. Einnig er til urmull af andlegum bókmenntum, sem gera [...]
Nágrannar mínir á Óðinsgötu
4:10AM
Þess ber að geta að það er ekki vindurinn sem feykir gardínunni til og frá, og að
um miðbik klippunnar er ekki verið að stinga prjóni í kött.
Hvernig nýju nágrannarnir mínir komust að því að ég elska ekkert meira en að hlusta á 4 non blondes, Bubba Morthens, Kizz, píkuskræki, slammdans – til að ganga 5 [...]
Hórköttur
Í morgun vaknaði ég ákaflega leiður yfir að eiga ekki Range Rover jeppa. Ég lá undir sæng í góða stund og íhugaði hvernig mér hefur mistekist að eignast allt draslið sem gott þykir að eiga, til að geta gengið um götur borgarinnar keikur og tígulegur. Ef ég ætti Plasma, væri ég ekki svona [...]
Heimilisofbeldi
Að loknum hefðbundnum vinnudegi, kom ég heim til mín, flautandi: Happy talking, talking, happy talk, sem er lagstúfur sem ég nota óspart til að tjá ánægju mína. Eftir vel lukkaðan kvöldverð, settist ég niður í græna ljóta sófann minn til að vinna örlítið að hagsmunum fyrirtækisins.
Ég hafði einungis setið við tölvuna og [...]