Archive for May, 2008

Íslensk slagorð með erlendum hreim

 
Í þetta föndur fór laugardagurinn 31. maí. Ég ét mig ekki í ómegin á meðan.
youtube

Posted on May 31, 2008 at 22:01 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Animation, Veflókar

Ár kattarins

Ég er að hugsa um að fá mér minn eigin kött.

Posted on May 30, 2008 at 14:34 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

að ibba blogg

Hér hef ég ibbað blogg síðustu sex árin og nú er svo fyrir mér komið að ég er búinn að missa sjónar af tilgangnum með þessum skrifum. Ég hef því ákveðið að breyta þessu vefsetri í átaksblogg, þar sem ég heyja dauðastríð við aukakíló og aðra annmarka í eigin fari; meðfædda og áunna. [...]

Posted on May 28, 2008 at 23:08 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Betrun, Veflókar

“Æm on his ass!”

Steinsnar frá akademíunni snæddum ég og félagi minn hádegisverð á kaffihúsi. Þegar ég stóð við hið svokallaða Buffet og jós súpu í skál, kemur maður á sextugsaldri sem mér reiknaðist til að væri eigandinn af þessum virðulega stað. “Ef þér líkar ekki þessi súpa, máttu hella henni yfir mig,” sagði hann kokhraustur. [...]

Posted on May 27, 2008 at 23:04 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Stemning

Posted on May 26, 2008 at 12:22 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Blendnar tilfinningar

Alltaf þegar ég kemst í pappírsmoggann, blaða ég fullur af eftirvæntingu í gegnum minningagreinarnar til að athuga hvort ég finni þar ekki einhvern sem ég mögulega þekki. Ef ég svo þekki ekki neinn, sem er yfirleitt reglan, þá verð ég örlítið vonsvikinn og fýldur innan í mér. Þetta finnst mér skrítið, því samkvæmt [...]

Posted on May 25, 2008 at 19:33 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Það vex eitt blóm fyrir sunnan skítalæk

Einhverjir vilja halda því fram að sólblóm vaxi ekki í náttúrunni hér á norðurslóðum – en það er mikill misskilningur. Myndbandið tók ég á kvöldgöngu fyrir sunnan skítalæk. Kannast einhver við húsið?

Posted on May 17, 2008 at 23:59 by siggi · Permalink · 17 Comments
In: Animation, Veflókar

Villiöndin

Ég hef fengið ákúrur á mig fyrir að skrifa full fjálglega um dauðann. Ég fæ ekki skilið hvers vegna fólk er svona ægilega feimið við dauðann. Þið vitið að þetta endar aðeins á einn veg? Er það ekki annars?
En þar sem lesendum mínum þykir dauðinn niðurdrepandi viðfangsefni, hef ég ákveðið [...]

Posted on May 17, 2008 at 01:46 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Myndin af Dorian Gray

Foreldrar mínir höfðu fyrir reglu að skipa mér fram á gang, þegar þeim grunaði að eitthvað hræðilegt ætti eftir að gerast í bíómynd kvöldsins. Man ég tildæmis eftir að hafa fengið að húka við lokaðar dyr þegar George neyddist til að drepa Lenny í Músum og mönnum. Sömuleiðis varð ég af atriðinu [...]

Posted on May 15, 2008 at 22:56 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Æskuminningar, Kvikmyndir, Veflókar

Hotel Chevalier

Dásamlegt atriði úr stuttmyndinni Hotel Chevalier, sem er undanfari myndarinnar The Darjeeling Limited. Jack L. Whitman hefur í lengri tíma falið sig frá umheiminum á hinu franska Hotel Chevalier. Kona, sem virðist vera ástin í lífi hans, kemur til að finna hann. Rétt áður en hann opnar hurðina til að hleypa henni [...]

Posted on May 13, 2008 at 11:10 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Kvikmyndir, Veflókar

Leigusalinn ódæli

Það er mjög mismunandi hvernig fólk upplifir sjálft sig. Sumir misbjóða fólki í guðs nafni, fullvissir um að þeir séu hlýjar og kærleiksríkar persónur, meðan aðrir læðast meðfram veggjum, sakbitnir yfir að taka pláss í heiminum.
Einu sinni fyrir ævalöngu kynntist ég sérstaklega ódælum manni, betur en ég nokkurn tímann kærði mig um. [...]

Posted on May 9, 2008 at 00:03 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Þórbergur

Góður vinur minn, var sorgmæddur í sálu sinni um daginn, svo ég plataði hann með mér í göngutúr út í Fossvogskirkjugarð. Það er fátt eins hressandi, þegar lífið virðist óbærilegt, og að labba um í kirkjugörðum. Í göngutúrnum köstuðum við kveðju á Sobbegga og Mömmugöggu. Mér þykir þó líklegt að hjónin [...]

Posted on May 7, 2008 at 17:32 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar