Archive for June, 2008

Hjólreiðatúr

Ég og minn kæri Ágústó Pinochet hjóluðum með vindinn í fangið upp á Kjalarnes í dag. Við rætur Esju sáum við þessa stóru ljótu auglýsingu frá bönkunum. Þar sem okkur báðum þykir álíka vænt um bankastofnanir, veltum við upp þeirri hugmynd að kúka í lúkurnar á okkur og maka á skiltið. En [...]

Posted on June 28, 2008 at 21:26 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Nytsamlegir ofurkraftar

Í dag þar sem ég sinnti mikilvægum störfum í þágu mannkyns kom í heimsókn til mín á kontórinn ungur drengur. Við höfðum ekki spjallað saman lengi þegar hann treysti mér fyrir því að hann gæti með hugarorkunni einni saman látið sérstaklega leiðinlegt fólk hverfa, og ekki bara fólkið sjálft heldur líka bílana þeirra. [...]

Posted on June 27, 2008 at 21:41 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Hugsanalestur

Þegar ég skoða tölfræði fyrir þessa síðu sé ég stundum hvað fólk er að hugsa þó ég viti ekki nákvæmlega hver á í hlut. Ég sé að fólk spáir mikið í framhjáhaldi. Einhvern tímann skrifaði ég pistil um framhjáhöld og hversu leikandi létt það er með tilkomu nútíma tölvutækni að villast með þvagfærin [...]

Posted on June 26, 2008 at 21:27 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Britney Spears, kúkakynlíf og fréttaveitur

Ég læt íslenskar fréttaveitur fara of mikið í taugarnar á mér. Það mundi gleðja í mér sálina ef Moggaveldið riðaði til falls. Þar innandyra starfa menn sem haga sér eins og þeir séu að vinna vinnu sem skiptir sköpum fyrir velferð alls mannkyns. Það er engin leið að láta sér þykja vænt [...]

Posted on June 24, 2008 at 11:14 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Veflókar

La gioia di Siggi

Posted on June 22, 2008 at 20:30 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Er á meðan ungfrúin dillar sér.

Minna sést af uppáklæddum mönnum í rándýrum jakkafötum breiðandi úr sér á götum borgarinnar. Ekki alls fyrir löngu mátti sjá þá út um allt, stormandi fram og aftur, taugaveiklaðir, talandi tímamótaviðskipti í farsíma. Nú þykir ekki eins flott að vera svokallað hottsjott. Sérstaklega í ljósi þess að þetta var allt blekking. [...]

Posted on June 21, 2008 at 20:32 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Guð gyðinga

Þegar Guð gyðinga stendur vaktina, er hollast að fara ekki út fyrir hússins dyr. Hann er sérplæginn og móðgunargjarn. Reynslan hefur sýnt að ef mannfólkið hringsnýst ekki í kringum rassaborugatið á honum, þá reiðist hann ógurlega og upphefur samviskulausa sláturtíð. Vegna þess hversu illa þjakaður af minnimáttarkennd hann er – þarf stöðugt [...]

Posted on June 20, 2008 at 23:38 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Avraham fríkar út

Í dag fríkaði Avraham út og drap gardínu og varnarlaust hálsband.

Posted on June 19, 2008 at 00:51 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Læsið hurðum, neglið fyrir glugga

Að fara ekki niður í miðbæ á þessum dýrðardegi, sem er svo hátíðlegur að það var messað úr dómkirkjunni á gufunni í morgun, gæti verið flokkað sem óíslensk hegðun. Staðreyndin er sú að á dögum sem þessum set ég slagbrand fyrir dyrnar, negli hlera fyrir glugga og vopnast. Í mínum huga er ekki [...]

Posted on June 17, 2008 at 18:23 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Avraham אַבְרָהָם

Það ber helst til tíðinda hér á Óðinsgötunni að Avraham var settur í sturtu þar sem hann var af mikilli fagmennsku sápaður og sjænaður. Hann tók uppátæki nýtilkomins eiganda síns með miklu jafnaðargeði, sem kom nokkuð á óvart þar sem ég var búinn að gera ráð fyrir að þurfa að setja upp rafsuðuhanska. [...]

Posted on June 13, 2008 at 21:46 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Gleði á Óðinsgötunni

 
Sorg mín, síðan kötturinn sem ég tók í gíslingu yfirgaf mig og skildi mig einan eftir í miskunnarlausum heimi fullum af fólki með steinhjarta, hefur verið landamæralaus.
Í dag ákvað ég að binda endi á þjáningar mínar og einsemd.
Sigríður Heiðberg forseti Kattholts, leit sem snöggvast á mig þar sem ég stóð í afgreiðslunni og sagði: [...]

Posted on June 12, 2008 at 23:05 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Íslenskar fréttaveitur

Til að vernda brothætt sálarlíf mitt íhuga ég enn og aftur að hætta að fylgjast með íslenskum fjölmiðlum. Fréttir, sem gætu átt eitthvað erindi til okkar, eru oft mjög brenglaðar. Vinnufélagi minn sem hefur dálæti á að fara í kvöldgöngu með hundinn sinn, fann í Öskjuhlíðinni kassa af skotfærum úr seinni heimstyrjöldinni. [...]

Posted on June 10, 2008 at 12:30 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar