Archive for June, 2008
Fortíðarþrá
Hvert okkar á sér tvífara einhversstaðar í heiminum sem deilir með okkur hugsunum og draumum. Mynd leikstjórans Krzysztof Kieslowski: La Double vie de Véronique, eða Tvöfalt líf Veroniku, er um líf Veroniku eftir að tvífari hennar deyr á sviði. Tónlist Zbigniew Preisner er svo guðdómleg að hann hlýtur að hafa fengið hana að láni [...]
Sagan um Bíbí Ólafsdóttur
Sagan um Bíbí Ólafsdóttur er dásamleg bók, sem vakið hefur mig til umhugsunar um eigið lífshlaup. Fortíðarþráin bullar og sýður innan í mér. Ekki bara gerist bókin að hluta til í bæjarfélaginu sem ég ólst upp í, heldur fyrirhittir Bíbí konu sem ég hafði þónokkur kynni af þegar ég var unglingur – Margréti Blöndal. [...]
Draumahús
Af þremur húsum, þá hefur mig líklega oftast dreymt húsið á myndinni. Í þessu húsi sem stendur ennþá við Löngubrekku, ólst ég upp. Það er þó ekki svona glæsilegt í dag og garðurinn ber þess merki að engum hefur þótt vænt um hann í heila eilífð, en pabbi var mikill áhugamaður um [...]
Staða: 13.110.- , matarvenjur og draumfarir
Í dag gerði ég stórinnkaup hjá feitu feðgunum, annar þeirra nú yfirlýstur glæpamaður. Ég spáði lítið í því hvað ég keypti með tilliti til verðs. Mikið af grænmeti og gnótt af ávöxtum. Ég er sólginn í Sól appelsínusafa og hirði ekki neitt um hvað hann kostar. Tómur eins lítra brúsi, stendur [...]
Aðhald í mat og drykk
Til upprifjunar fyrir þá sem eru áhugasamir um hvað málið snýst, þá hef ég ákveðið að eyða, þennan mánuðinn, einungis 25 þúsund krónum í nauðsynjavörur, svo sem mat, drykk, hreinlætisvörur, út að borða með íslendingum og einum mexíkana, kaffiþamb á kaffihúsum osfrv. Þess ber að geta að ég er einn í heimili, eftir að [...]