Archive for July, 2008
Fótalausi maðurinn
Ég sit fund um andleg málefni. Kona og karl standa í sitthvorri pontunni og tala af þrótt og innlifun. Ég veit að ég er ekki á heimavelli. Ég er aðkomumaður. Ég þekki þó venjur fólks þarna og í kurteisisskyni læt ég sem ég sé upphrifinn af því sem þarna fer fram. [...]
Martröð á Fossagötu
Í nótt sem leið dreymdi ég að einhver hefði hoggið af mér hausinn með myndarlegri sveðju. Ég man ekki mikið eftir atvikinu sjálfu, þannig að ég get ekki sagt til um hvers vegna einhverjum fannst ég þurfa að verða höfðinu styttri.
Kannski var það einhver lesandi þessarar síðu?
Þegar ég kemst til meðvitundar í draumnum, [...]
Hvað er í gangi með hvað er í gangi?
“Hvað er í gangi?” telur 81,000 niðurstöður þegar leitað er á google án skilyrða. Sé leitin framkvæmd þannig að hún skili einungis niðurstöðum fyrir blog.is eða moggabloggið, fást 30,500 síður. Athyglisvert, ekki satt.
Við hvaða aðstæður eru þessi haglega röðuðu orð notuð jafn óhóflega og google ber vitni um? Ég veit að þegar [...]
Geðsýki gerir vart við sig
Þegar líf mitt er rétt u.þ.b fullkomið finn ég að undir niðri kraumar geðsýki af verstu sort. Hryllilegt ástand sem ekki er svo ólíkt því að vera haldinn djöflinum, hafi einhver einhverja reynslu af því. En ég kann að sporna við þessari geðveiki sem herjar á mig þegar ég má síst við. Ég [...]
Myosotis arvensis
“…And these children
that you spit on
as they try to change their worlds
are immune to your consultations.
They’re quite aware
of what they’re going through…”
David Bowie
Þetta lag var mjög vinsælt löngu áður en ég varð gamall geðstirður kall í kjallara á Óðinsgötu. Molly Ringwald og félagar hennar í morgunverðarklúbbnum höfðu afar innspírandi áhrif á mína kynslóð, að [...]
Bless Óðinsgata
Fyrir viku síðan fékk ég mig fullsaddan af Óðinsgötunni og ungu áfengissvolgrandi ríðurunum sem deildu með mér húsi.
Hvað gerði útslagið?
Í góðærinu sem leið komst það í tísku að vera með heitan pott í miðju íbúðarhverfi. Eftir erfiðan dag í Kauphöllinni þótti gott að koma heim, skella sér í pottinn, drekka [...]
Sjálfsmat
Ég hef mikið velt því fyrir mér hvers vegna sumir hafa til að bera stórt og þrútið sjálfsálit, meðan aðrir læðast meðfram veggjum þjakaðir af minnimáttarkennd. Persónulega, er allur gangur á því hvaða hugmyndir ég hef um sjálfan mig. Suma daga finnst mér eins og ekkert sé mér ómögulegt. Ég veð [...]
Áreynsla
Sumt fólk þarf að leggja töluvert á sig til að vera almennilegt. Margir sækja tildæmis þartilgerða fundi til að sporna við dusilmenninu í sjálfu sér. Þar má heyra fólk tala roggið um að ef það sæki ekki fundina, þá verði það illt inn að beini á mjög skömmum tíma. Má þá ganga [...]
Róttækur heiðarleiki
Ég hef litla hæfileika til að taka þátt í þykjustuleik okkar fullorðna fólksins. Ég reyni þó eftir bestu getu að eiga sómasamleg samskipti við fólk; samskipti sem verða ekki til þess að mig langi til að sturta sjálfum mér niður um klósettið að þeim loknum. Samskipti eru mikil kúnst og útheimta alveg gífurlega [...]
Kominn í höfn
Langskemmtilegast finnst mér að lesa tímaritagreinar um fólk sem einu sinni var ömurlegt, en hefur undið sínu kvæði í kross og er orðið framúrskarandi. Það gefur mér von um að ég geti gert slíkt sama. Greinarnar eru afar innspírandi, oftast um einhvern sem hefur átt í meiriháttar erfiðleikum, tildæmis verið hrikalega feitur, og [...]