Archive for August, 2008

Jósef Spritzl

jútjúb

Posted on August 24, 2008 at 20:05 by siggi · Permalink · 13 Comments
In: Animation, Videoverk

Heppilegt hjartaáfall

Það skýtur nokkuð skökku við að ég sé meðlimur í önfirska karlakórnum Fjallabræðrum. Fyrir það fyrsta, þá er ég ekki beint karlmannlegur, í annan stað er ég langt frá því að vera þessi hressa félagssálarmanngerð, í þriðja lagi ólst ég upp í Kópavoginum en ekki vestur á fjörðum. Oftast þegar ég hitti kórinn, [...]

Posted on August 23, 2008 at 23:37 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Chiquitita

Þegar ég var krakki, þá heyrðist mér Abba syngja Siggi kýta. Kýta er annars steinbítsmagi, ekki að ég hafi vitað það þá. En hvað er í ósköpunum er Chiquitita?
Ég hélt aldrei upp á Abba. Ef ég var spurður, þá fannst mér fannst sú ljóshærða sætari. Ég var hinsvegar mikill aðdáandi Bee Gees [...]

Posted on August 21, 2008 at 21:45 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar

Fullorðna fólkið

Þegar ég var barn, sór ég þess eið að fullorðnast ekki.
Eins og oft þegar ég er að vaska upp og sýsla í dúkkuhúsinu mínu í litla Skerjarfirði, hlusta ég á gömlu góðu gufuna. Vönduð dagskrárgerðin hefur mig oft upp í hæstu hæðir og auðgar anda minn. Ég man ekki hvaða þátt [...]

Posted on August 19, 2008 at 00:40 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Nóbelsblogg

Ég hafði einungis verið vakandi í rúma þrjá tíma, þegar sótti að mér alveg ægilegur lífsleiði. Ég íhugaði hvað ég gæti gert til að létta mína lund, en það eina sem mér kom til hugar var að baka heilan stafla af pönnukökum, þeyta líter af rjóma og éta mig síðan í ómegin. Ég [...]

Posted on August 17, 2008 at 23:08 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Tvífarar vikunnar

Tvífarar vikunnar að þessu sinni eru hin dagfarsprúða Ókind og uppátækjasami grallarinn Bubbi Morthens.

Posted on August 15, 2008 at 20:32 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Tvífarar

Hvernig tækla skal tjellingar

Að vera einhleypingur, er að margra mati – síðasta sort. Einhleypingar eru oft illa hirtir runkkallar og áhugamenn um afbrigðilegt klámefni. Einhleypingar eru þjóðfélaginu til vansa. En nú er í sjónmáli bjartari tíð með blóm í haga, því út hefur verið gefin spáný sjálfshjálparbók fyrir ömurlega slefandi einhleypinga. Hún heitir: The [...]

Posted on August 11, 2008 at 01:15 by siggi · Permalink · 14 Comments
In: Veflókar

Ruggandi, bakatil í hjarta mínu

Hér er svo trít úr Iðnvæddri Symfóníu Númer 1 eftir David Lynch, Angelo Badalamenti og Julee Cruise, ásamt nýjum og skemmtilegum fróðleik sem ég fann þegar ég las um þetta verk: Blikkandi ljós, eitt af mörgum vörumerkjum David Lynch, tákna nánast alltaf kaflaskipti eða óvænta stefnu í söguþræði.
Þetta vissi ég ekki.

Posted on August 9, 2008 at 01:21 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Trít, Veflókar

Vegurinn og dyggðin

Til að geta hugsað tímamótahugsanir, er nauðsynlegt fyrir mig að næra anda minn. Menn sem hugsa tímamótahugsanir uppskera virðingu meðbræðra sinna. Þannig er það bara í lífinu. Þrá mín eftir virðingu og viðurkenningu, er brennandi heit. Ef þau bara vissu…..
Ég er andans maður, og til að víkka skilning minn [...]

Posted on August 8, 2008 at 00:17 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Paul Thomas Anderson

Paul Thomas Anderson, er guðdómlegur snillingur. Hann á myndir eins og There Will Be Blood og Punch, Drunk, Love, sem hefur verið ein af mínum uppáhaldsmyndum, síðan ég sá hana fyrst. Hún er líka eina myndin þar sem Adam Sandler er ekki gersamlega óþolandi.
Magnolia sá ég fyrir 8 árum síðan, þegar [...]

Posted on August 7, 2008 at 01:13 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Fordómar og betrun

Undanfarnar vikur hef ég hugsað mjög óguðlegar hugsanir, sem eru andlega uppljómuðum manni af minni stærðargráðu – ekki samboðnar. Ég ákvað því að nú væri kominn tími til að refsa sjálfum mér og athuga hvort ég gæti ekki mögulega skolað úr sjálfum mér saurinn sem skólpast til í höfuðkúpu minni. Því varð [...]

Posted on August 4, 2008 at 23:35 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Betrun, Veflókar

Bandarísk kvikmynd um ástina

Fyrir einhleypan karlmann nær fjórða tugnum, er ekki óeðlilegt að vilja slaka á eftir viðburðarlausan dag og horfa á rómantíska kvikmynd um ástir og örlög fólks í bandaríkjunum þar sem smjör og brundur drýpur af hverju strái. Myndin sem rataði í nýmóðins vídjósýningagræjur síðuhaldara er með gamla brýninu Dennis Quaid og freðýsunni Söru Jessicu [...]

Posted on August 3, 2008 at 23:17 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar