Archive for September, 2008
Raunasaga af fésbók
Menn sem hafa lifað lífi í einsemd jafnlengi og síðuhaldari eru veikari fyrir ýmiskonar gylliboðum ástarinnar. Þar er ég engin undantekning. Þrátt fyrir hrjúft og hranalagt viðmót blundar niðri fyrir þörf fyrir að elska og vera elskaður.
Einstaka sinnum kemur fyrir að einhver kona frá brotnu heimili sýnir mér vott af áhuga [...]
Matarræði á krepputímum
Fátt vekur eins mikla gleði í hjarta mínu og þegar buxur sem eitt sinn voru örlítið þröngar, hanga varla lengur upp um mig. Fyrir rúmum tveimur vikum ákvað ég að taka allan sora og viðbjóð út úr matarræði mínu. Hugsunin að baki þeirri ákvörðun er sú að því minna af mér hér á [...]
Preisner
Lag dagsins lýsir lundarfari mínu af einstakri nákvæmni.
Spectre eftir Zbigniew Preisner úr myndinni It’s all about love.
Að týna sér í verzlunarmiðstöð lífsins
Stundum er lífið bölvaður óþverri, þá er gott fyrir sálarlífið að skella sér sem leið liggur í Kringluna. Fyrripart vikunnar eyddi ég í að hugsa um nístandi tilgangsleysi lífsins og hvernig við mannfólkið leyfum því samfélagi sem við búum í að eitra sálarlíf okkar með blekkingum til þess sniðnar að halda almenningi innan girðingar. [...]
NjarðarPéNjarðvíksþus
Það kann að skjóta skökku við á síðu sem er málfræðilegt stórslys, en ég má til með að koma með ábendingu. Ég tek eftir í rituðu máli að fólk gerir mikið af að hlægja þegar það er í raun að hlæja.
Að hlæja og hlægja er ekki það sama. Að hlægja er að kæta [...]
Fáklæddur á facebook
Ég er mikill tískunnar maður og eltist við að gera það sem þykir töff hverju sinni. Undanfarið hef ég orðið var við að færst hefur í aukanna að birta af sjálfum sér myndir á fésbókinni sívinsælu í fátæklegum klæðum. Þetta gerir fólk hugsanlega til að vekja athygli á að efnahagur almennings er í [...]
Hressu þvagfærin
Ég hef frá ómunatíð verið álitinn alveg sérstaklega hress tappi, eins og sagt er. Til að halda sjálfum mér í dúndurstuði, hef ég lagt stund á svokallað Hemma Gunn jóga, sem hefur gert mér gott. Ég legg mikinn metnað í að fríska upp á umhverfi mitt með glaðlegu viðmóti. Það lætur mér [...]
Súr fnykur dyggðarinnar
Það er orðið svolítið síðan ég vitnaði í Biflíuna mína. Senan og atriðið hér að neðan voru í miklu uppáhaldi hjá okkur Tvídrangabuffunum.
Uppátækjasami grallarinn og lífskúnstnerinn Windom Earle býður hressu ungmenni til gildis í litla huggulega sumarkofanum sínum. Hið hressa ungmenni sem við skulum kalla Dude, elskar að drekka bjór og skemmta sér. [...]
Lífsspeki uppgjafaflagara
Síðan mér var þröngvað inn í þennan heim, hef ég verið orðrómaður fyrir lífsgleði, glaðlegt yfirbragð, heilbrigða sjálfsmynd og Hemma Gunn hressleika. Með þessa mannkosti, er engin hætta á að karlmaður nær fertugu þurfi að eyða dögum sínum í einsemd og hallæri. Konur og fíngerðir karlmenn bítast um að eiga félag við mig. [...]
Night of the living dead: reanimated
Eftir að kærastinn hennar Barbra er étinn af uppvakningum í kirkjugarði, leitar hún skjóls í húsi sem er umsetið heilum saumaklúbb af hungruðum mannfleskétandi sóðaháleistum, sem þrá ekkert heitar en að læsa tönnunum í þokkafulla leggi hennar og liði. Minnir svolítið á köttinn minn.
Senan hér að ofan er framlag mitt til verkefnisins NOTLD:Reanimated. [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Gífuryrði
Er ekki bara gullfallegt orð, heldur eitt af frumefnum bloggheima.
Um daginn skráði ég mig á gæludýravef til að óska eftir ráðleggingum um hvernig best væri að venja kött við ógnvekjandi útiheima. Ég var þarna nýorðinn kattareigandi og afskaplega upptekinn af því hversu mikill dýravinur ég væri. Ég áleit sem svo að [...]
MPD
Ég hef verið að drepast úr Multiple Personality Disorder þessa daganna. Oftast næ ég þessu úr mér á viku, en þó ekki þetta misserið. Tumi litli hefur verið fyrirferðamikill, en hann á það til að vera sérstaklega ódæll. Ég hef farið varlega með hugrenningar mínar, en mér hefur alltaf fundist blunda ofbeldi [...]