Archive for October, 2008
Ég var einu sinni ömurlegur, en er núna frábær!
Stundum getur lífið verið bölvaður óþverri og þá er ekki gaman. En þegar það er gaman: Þá er gaman! Ég hef komist að því með vísindalegum aðferðum að þarna eru bein tengsl á milli.
Mannskepnan er stundum svolítið einkennileg. Ef hún viðurkennir rangindi upp á sig, þá passar hún sig á að [...]
Yggdrasill um Yggdrasil frá Yggdrasil til Yggdrasils
Vinsamlegast komdu við í Yggdrasil, sagði ég við fröken Sigríði þar sem ég sat í bifreið hennar af fólksvagengerð. Er ekki þágufallið af Yggdrasill, Yggdrasli? spyr fröken Sigríður. Ég held nú ekki, þágufallið af Yggdrasill er Yggdrasil, og þarf ekki neinn vísindamann til að finna það út, hreytti ég þóttafullur í frökenina. [...]
Góssentíð fúllynda
Fyrir okkur sem erum í eðli okkar fúllynd, eru kreppur og aðrar óhamingjur, mikil góssentíð. Nú, þurfum við ekki að gera okkur upp viðurstyggilega kátínu. Brosið sem við reyndum að framkalla, en umbreyttist í fáranlega grettu, heyrir nú sögunni til. Nú getum við gefið reiðinni og pirringnum lausan tauminn, og þurfum ekki að [...]
Leiðindi
Stundum bærist í brjósti mér ákaflega einkennileg tilfinning: Mér finnst eins og ég hafi ríka ástæðu til að vera leiður yfir einhverju, en ég man bara ekki hver hún var. Í annasömum eril dagsins, þar sem stórar fjárhæðir eru fluttar á milli herbergja, hefur eitthvað komið upp á, einhver hugsun orðið til, eitthvað [...]
Veitt í matinn
Það er lítil hætta á að síðuhaldari deyi úr hungri. Ísraelskur skógarköttur sem gengur undir nafninu Avraham, hefur tekið að sér að afla íbúum dúkkuhússins í litla Skerjarfirði matar.
Þegar ég kom heim eftir annasaman dag á skrifstofunni, lá fyrir utan bjálkakofann fugl sem flýgur aldrei aftur. Þó ég sé allur af vilja gerður, [...]
Óhugur
í dag sá ég rass sem vakti með mér óhug. Til allrar guðs lukku náði ég að forða mér.
Í verslun djöfulsins
Mikið ægilega leiðist mér lífið hérna á Íslandi um þessar mundir. Samhyggðin, sem mér fannst ég finna fyrir í síðustu viku er lönd og leið, þess í stað er fólk fast svamlandi í þessum fúla pytt sem enginn stakk sér viljugur til sunds í. Viðmót fólks er þannig að manni dettur helst í [...]
American Airlines
Ekki er nóg að andlegur maður beri sig vel og sé snyrtilega klæddur. Hann þarf líka að hljóma eins og hann gangi erinda guðs. Einu sinni átti ég hlut í American Airlines og sótti stjórnarfundi hjá því ágæta fyrirtæki. Þeir sem til þekkja vita að American Airlines, er ekki bara risastórt flugfélag, [...]
Moggaknús
Mannskepnunni þykir gott að knúsa aðrar mannskepnur og að láta aðrar mannskepnur knúsa sig. Við þessa athöfn verða til gúddí gúddí efnasamskipti í líkamsstarfsemi þeirra sem að knúsinu standa. Núna á ögurtímum í íslensku þjóðfélagi, þegar líkaminn framleiðir lítið sem ekkert af gúddí gúddí efnum, er mikilvægt að knúsast eins og móðurríðarar. [...]
Guð blessi Ísland
Stemningin er öll að verða betri hér á Íslandi. Fyrr en varir getum við snúið aftir til fyrri lífshátta. Sem er gott, því ég hef ekki þorað í Kringluna síðan ósköpin byrjuðu.
Þetta var svolítið strembið þarna á tímabili, en til allrar guðs lukku erum við í höfn. Við Íslendingar stöndum saman, erum [...]
Feiti gráðugi kisinn
Ég ætlaði að skrifa gífuryrtan reiðipistil, sem innihélt upphrópanir eins og: “Ég heimta kosningu strax” og “Hann er hálfviti” en þá mundi ég eftir ástinni og hvað hún er yndisleg. Meiri ást takk!
Ég hef ekki skrifað staf um íturvaxna köttinn Avraham síðan ég flutti í litla Skerjó, líklega vegna þess að á tímabili þoldi [...]
Bylting
Ég taldi víst í upphafi þessa árs að nú færi í hönd ár ástar og kærleika. Ég var þrátt fyrir það í molum eftir að hafa eytt ómældum tíma í eitthvað fyrirbæri sem ég hélt að væri ást, en reyndist vera óþverri. Í mínum huga var ást, ást, ást lykillinn að sannri hamingju [...]