Archive for October, 2008

Gordon Darling

 
Rétt á meðan ég framdi félagslegt hryðjuverk á sjálfum mér sá ég þessa fyndnu yfirlýsingu í búðarglugga á Skólavörðustíg. Ég greip í vélina mína, sem var handbær, og varðveitti augnablikið.
Eftirfarandi gerðist:
Í dag var ég staddur á Skólavörðustíg eftir langan göngutúr suður með sjó. Ég staðnæmdist til að taka ljósmynd af einkar fyndinni yfirlýsingu [...]

Posted on October 11, 2008 at 23:58 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Töffari dagsins

Skyndilega, án þess að ég fengi nokkuð við það ráðið, glæddist innra með mér ást og kærleikur til þessa manns. Pollrólegur, alveg ósofinn stendur hann í miðri stórhríðinni og geislar af heilbrigði og elegans. Ég fylltist mér áður ókunnugri þjóðrækni, þar sem ég fylgdist með honum á blaðamannafundinum í dag. Ekki einu [...]

Posted on October 10, 2008 at 19:54 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Hjaltalín

Ég hef heyrt þetta lag spilað nokkrum sinnum á gufunni, en aldrei vitað hverjir eiga það. Á tímabili hélt ég að þetta væri Daniel Johnston, en svo er ekki. Það var svo í vikunni að ég komst að því að þetta er íslenska bandið Hjaltalín. Það gerist ekki oft, en núna er [...]

Posted on October 9, 2008 at 11:30 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Nýríkir fábjánar

Eftir að íslenska þjóðin hefur umborið nýríka hrokafulla fábjána í lengri tíma sjáum við loks fyrir endann á þessum leiðindum. Útrásarárin einkenndust af mannvonsku og græðgi. Feiti kallinn varð feitari, hrokafyllri, ómanneskjulegri og gráðugri. Ekki taka því persónulega þegar ég rýji þig inn að skinni og naga magurt kjötið af beinum þínum, [...]

Posted on October 9, 2008 at 00:32 by siggi · Permalink · Comments Closed
In: Veflókar

Stríðstímar

Mér er órótt yfir fréttum síðustu daga. Ég held að ástandið sé mun verra en ráðamenn þjóðarinnar láta í veðri vaka. Það að við höfum ákveðið að standa ekki við skuldbindingar Landsbankans í Bretlandi rennir stoðum undir þann grun minn. Svona gera menn bara á stríðstímum. Það svíkur engin þjóð veldi [...]

Posted on October 8, 2008 at 10:28 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Tvífarar dagsins

Stuðboltinn og gífuryrðingurinn Guðni Ágústsson og örninn Sam.

Posted on October 6, 2008 at 19:47 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Tvífarar

Sag mir, wo die blumen sind

Ég er miður mín yfir að hafa dottið í þann fúla pytt að skrifa um efnahagsmál. Ég vil ryðja færslunni hér að neðan úr vegi með hjálp Marlene Dietrich, þar sem hún syngur: Sag mir, wo die blumen sind, en margir spyrja sig einmitt þessa daganna hvað hafi orðið af öllum fallegu blómunum, sem [...]

Posted on October 4, 2008 at 23:25 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Í þyrlu með Agli

Í gær þegar ég lagðist í rekkju var ég í mikilli geðshræringu yfir skelfilegum atburðum í íslensku efnahagslífi. Þegar ég svo vaknaði í morgun var friður í sálinni minni. Í hjarta mínu var kærleikur, ást og fullvissa um að nýir og fallegir tímar væru framundan.
Mig dreymdi eftirfarandi:
Ég var staddur í lúxusþyrlu með Agli [...]

Posted on October 1, 2008 at 17:24 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar