Archive for December, 2008
Hott-sjott biss-ness-maður
Fyrir um tveimur árum síðan var ég staddur á Baltimore flugvelli. Ég var sorgmæddur eftir að hafa lokið þrálátum kafla í lífi mínu. Kafla sem ég kýs að kalla: The Burning Bridges Project, og entist mér í heil 10 ár (kaflanum lauk ekki þarna). Með súra blöndu af feginleik og ógleði stóð ég [...]
Hugskeyti
Ég vil biðja þann sem hefur verið að senda mér hugskeyti upp á síðkastið að hætta því tafarlaust. Þetta hefur truflandi áhrif á kosmósið.
Úr andans heimi
Fyrir um ári síðan fékk ég mann, með reynslu af hugleiðslu og andlegum fræðum, til að kenna mér kúnstina að hugleiða. Hann hafði dvalið í eitt ár á hugleiðslubúgarði í Nýju Jórvík og lært að hugleiða og lifa í samfélagi við fólk með áhuga á andlegu lífi. Ég hafði þá lengi langað til [...]
Tilkynningaskyldan
Klukkan er 22:07 að kvöldi Þorláks. Nú klæði ég mig í úlpu og held út í illviðrið í þeim tilgangi einum að kaupa súkkulaðibitasmákökur í 10/11 versluninni á Eggertsgötu. Svona er þetta oft. Ég bara ræð ekki við mig.
Ástsýki, kjaftasögur og gluggagægir nútímans
Fátt gleður andstyggðina í mér meira en krassandi kjaftasaga um fallvaltleik ástarinnar, sérstaklega ef hún kemur mér reglulega á óvart. Kjaftasaga af þeirri tegund, þar sem annar aðilinn verður uppvís af ófyrirsjáanlegri kynlífshegðan. Svosem eins og að klæða sig í bleyju, eða vera meiri dýraunnandi en gengur og gerist hjá fólki uppalið í borg. [...]
Blogg óþol
Fyrir tíma vefskrifa, var hægt að skemmta sér við að rífa í tætlur ritmál sem manni þótti leiðinlegt. Fljótafgreitt og umfram allt bráðhollt fyrir sálina. Ef pistillinn var með eindæmum leiðinlegur, þótti snjallt að hafa pappírinn, sem í flestum tilfellum var Morgunblaðið, meðferðis á salernið. Þannig gat maður á ljóðrænan máta gefið [...]
Góði hirðirinn
Og þar sem ég fylgdist með furðufuglunum í Góða Hirðinum, varð mér ljóst að ég smellpassaði þarna inn. Ekki bara er ég furðufugl, heldur er ég líka orðinn einsetumaður í pinkulitlu timburhúsi, svotil úr alfaraleið, eða í litla Skerjafirði. Ég á án efa eftir að daga uppi sem illa hirtur kall sem safnar [...]
Lacrimosa
Og til að létta stemninguna á vef þessum, eftir skrif um málefni í þyngri kantinum, geri ég hér aðgengilega myndbandsupptöku, sem ég tók ófrjálsri hendi af þúskjá, þar sem Maria Pia Molinari sópransöngkona syngur Lacrimosa úr sálumessu Preisner: Sálumessa fyrir vin.
Lacrimosa, er að finna, eftir því sem ég best veit, í öllum sálumessum. Lacrimosa, [...]
Þráinn NK
Ég hef rakið sögu bátsins Þráins NK á timarit.is. Fyrsti textinn sem finna má um bátinn er skrifaður 1948 í Morgunblaðið, þar sem auglýst er eftir háseta á línuveiðar. Þráinn er þá 60 tonna dallur.
8 árum síðar voru gerðar á honum gagngerar breytingar. Skipt var um stýrihúsið og íbúðir skipverja lagfærðar að [...]
HaHa samtökin
Föstudagskvöldinu var vel varið í lestur á bók Orra Harðar: Alkasamfélagið. Ég hef haft áhuga á að lesa hana síðan ég heyrði af henni fyrst, og skal það engan undra þar sem ég er sjálfur útkast úr samfélagi andans. Ég vil þó árétta að ég er enn allsgáður, og hef verið það á níunda [...]
Erindrekar Jesú Krists Jósefssonar
Þegar líða fór að kvöldmat, tók ég upp beittan hníf og hóf að saxa niður grænmeti í salat af þeirri gerð sem oft er á borðum hér í litla Skerjarfirði. Á fóninum var Preisner og Söngurinn um sameiningu Evrópu. Léttur í lundu söng ég undir. Ég verð þó að viðurkenna að ég kann [...]
Hebreskur skógarköttur stekkur eina og hálfa mannhæð – myndband og stuttur hnitmiðaður skýringartexti
Í þessu myndbandi má sjá feitan hebreskan skógarkött stökkva eina og hálfa mannhæð.