Archive for 2008

Dauðleiki og draumfarir

Nú þegar nær dregur jólum er við hæfi að skrifa lítinn pistil um eftirlætis hugðarefni síðuhaldara, sjálfan dauðann. Ég hef ekki verið þekktur fyrir tepruskap í umræðu minni um þennan mesta leyndardóm í lífi sérhverrar manneskju. Ég reyni að minna sjálfan mig á dag hvern að einhvern tímann fái ég að deyja. En svo koma [...]

Posted on December 7, 2008 at 23:42 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

Jólamynd 1984

Ég kemst alltaf í reglulega gott jólaskap þegar ég heyri þetta lag. Ég veit ekki nákvæmlega afhverju, en ég elska hvernig þeir, sem útsettu lagið, nota fade-in í byrjun. Það er eitthvað svo töfrandi við það. Enn þann daginn í dag fæ ég gæsahúð og fyllist barnslegri fortíðarþrá. Ég var 14 ára [...]

Posted on December 7, 2008 at 14:01 by siggi · Permalink · 14 Comments
In: Veflókar

Snjallasta myndlíkingin til þessa

Nú er hafið nýtt kapphlaup í íslensku þjóðfélagi, kapphlaup um hver getur upphugsað ljóðrænustu myndlíkinguna um hvernig er fyrir landinu okkar komið. Fínustu og flottustu lýriksmiðir íslenska gúmmílýðveldisins vinna nótt sem nýtan dag við smíðar á beittustu og snjöllustu greiningunni. Allt í þágu pöpulsins, nema hvað.
Hver var svo óforskammaður að segja að [...]

Posted on December 5, 2008 at 21:51 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Fullorðinsleikur

Ekki má rugla saman fullorðinsleik við fullorðinssleik; þar er himinn og haf á milli. Á sunnudaginn síðasta fór ég afmæli til dóttur minnar. Hún er orðin 11 ára gömul og er hin hressasta. Ekki hafði ég setið þarna lengi þegar ég datt ofan í fúlan pytt fullorðinsleikja. Fullorðinsleikur í barnaafmælum fer [...]

Posted on December 2, 2008 at 13:51 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Einnar línu blogg

Ég hef í hyggju að breyta aðeins bloggháttum mínum. Í stað þess að skrifa langa tilvistarkreppupistla, skreytta orðaglamri og tilgerð, ætla ég að skrifa einnar línu blogg sem ég yrði úr hugsunum af efsta lagi heilatuðru minnar. Ummæli mín um hitt og þetta sem betur mætti fara í mannlífinu, varpa ég fram fullviss [...]

Posted on November 29, 2008 at 12:57 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Ópólítískur betrunarpistill

Ég er með fagurt hjartalag og með eindæmum hreinlundaður. Samviskusemi mín á sér engin landamæri. Ég er góður við menn og dýr. Allt eru þetta mannkostir sem hægt er að stæra sig af í kokteilboðum, og á öðrum mannamótum þar sem maður neyðist til að tala viðstöðulaust um sjálfan sig, öllum nærstöddum [...]

Posted on November 26, 2008 at 21:28 by siggi · Permalink · 21 Comments
In: Betrun, Veflókar

Ruglingslegt fjas um Þórberg

Meðan ég læt mig dreyma dagdrauma um að sötra molakaffi með Þórbergi Þórðarsyni, spyr ég sjálfan mig hvort mögulega sé einhver núlifandi af sama kaliberi, sem ég gæti hugsað mér að kasta kveðju á. Ég man ekki eftir neinum, sem ég hef lesið, sem skrifað hefur af jafn miklum heiðarleika og Þórbergur. Enginn [...]

Posted on November 23, 2008 at 22:12 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Veflókar

LIFE

Ég reyni oft að gera mér í hugarlund hvernig lífið var hér á Íslandi á árum áður. Stundum ímynda ég mér að ég gangi um götur borgarinnar á öðrum áratug þeirrar nítjándu og komi auga á Þórberg Þórðarson, þar sem hann rolast svangur og þreyttur upp Bankastræti. Blesssssssssaður Þórbergur! Hvað segirðu maður? Bara [...]

Posted on November 22, 2008 at 21:10 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Einlit sál í lífsins leikriti

Ég hef álitið mig eitt af fáum hjartahreinum og fallega þenkjandi börnum guðs, þó svo að færslan hér á undan beri þess merki að ég eigi mér örlítið dekkri og súrari hlið. Ég hef þó komist að því að það kostar mig stundum töluverð átök að vera grandvar, í leik og starfi.
Fæstir viðurkenna í [...]

Posted on November 18, 2008 at 21:45 by siggi · Permalink · 19 Comments
In: Veflókar

Fleskljós frjálshyggjunnar

Ég stóðst ekki mátið. Megi elding ljósta mig.

Posted on November 17, 2008 at 23:41 by siggi · Permalink · One Comment
In: Animation, Veflókar, Videoverk

Reynslusaga smokkalausu týpunnar

Hjartnæmar reynslusögur viðskiptavina holdljóss er upplífgandi lesefni. Karlmenn sem til þessa hafa ert kynfæri sín með skömm í sálinni, verða um það vísari að ekkert er eðlilegra en að leggja stund á runk, með nýstárlegum tólum og tækjum.
Prestur, ekkjumaður og smokkalausa manngerðin, segja opinskátt frá því hvernig hinn byltingarkenndi fleskljósrunkari, nýtist þeim bæði [...]

Posted on November 16, 2008 at 14:34 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Animation, Veflókar, Videoverk

Mótmæli

54 þúsund manns, hafa brugðist við lokun Skjás eins, með að senda menntamálaráðherra mótmælaskeyti. Einungis 4000 manns, hafa skráð sig á vefinn kjosa.is, þar sem farið er fram á kosningar í kjölfarið á einu mesta efnahagshruni í sögu þjóðarinnar.

Posted on November 16, 2008 at 00:54 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar