Archive for 2008
Þjóðfélagsmál
Ég hef verið sneyptur fyrir að skrifa ekki um þjóðfélagsmál nú á ögurtímum. Það kemur mér ekki óvart að til þess sé beinlínis ætlast að ég komi fram með hugmyndir, sem greiða úr vandamálum gúmmílýðveldisins. Staðreyndin er hinsvegar sú að ég er bara ekki jafn gáfaður og flestir þeirra sem hafa eitthvað um málið [...]
Reynslusaga prófasts með doktorsgráðu
Fyrir hrun, þegar menn runkuðu sig áhyggjulausir, var kynnt til sögunnar í fyrsta skipti á Íslandi þartilgerð sæðisútpungunarmúffa. Frægir íslenskir runkarar tjáðu sig hástilltir um runkmál og heimtuðu að fá að ræða um skökulinn á sér, án þess að vera úthrópaðir öfuguggar.
Á þessum tíma var ekki mikið talað um efnahag og gjaldþrot [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Vígatíð
Mig dreymdi að vígatíð væri skollin á í Reykjavík. Menn röngluðu um göturnar sótillir, viti sínu fjær, með sveðjur að vopni. Stemningin var ekki ósvipuð og í myndinni Hótel Rwanda, nema að markmiðið var ekki að slá af einhvern ákveðinn ættbálk, heldur bara einhvern, hvaða nafni sem hann nefndist. Mennirnir rupluðu og [...]
Menningarferð
Þegar fólk af minni tegund hættir að smakka áfengi, er fátt orðið eftir lífinu sem veitir því ánægju. Sú fölskvalausa gleði sem fylgir áfengisdrykkju, er erfitt að finna í allsgáðum lifnaðarháttum. Hlátur, léttuð og kátina, tilheyra ölvaðri fortíð og allar tilraunir hins allsgáða til að dæla gúddí gúddi efnasamskiptum út í blóðrásina með [...]
Akureyri! Haltu hestum þínum innan girðingar: Hér ég kem!
Eitt og annað hef ég bitið í mig að gera ekki. Ég var búinn að sverja við nokkrar grafir að fara aldrei til Akureyrar. En fyrir sakir félagslegs þrýstings, fellur í valinn ein af þessum síðustu kreddum sem mér fannst gera mig að manni. Um 10 í fyrramálið, sest ég upp í [...]
Ég hefi verið klukkaður kæra frú!
Ég hef verið klukkaður, sem er ekki ósvipað því að vera kýldur, nema margfalt verra. Klukkarinn eða gerandinn í þessum ljóta leik er hin langskólagengna Aðalheiður Rósa. Þakk fyrir það!
1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Verkamaður í bæjarvinnu Kópavogs : Þar kynntist ég mörgum dásamlegum persónum, eins og Sveini heitnum [...]
Söngur um sameiningu Evrópu
Ég hef verið rómantískt þenkjandi síðan í gær, og finnst því við hæfi að gera opinbert hér á vefsetri mínu Sönginn um sameiningu Evrópu, eftir Preisner, úr Trois couleurs: Bleu eftir Kieslowski heitinn.
Hér er textinn, fyrir þá sem vilja syngja með:
Ean tais glosais toon antropoon lalo
kai toon angeloon,
agapen de me echo,
gegona chalcos echoon e kumbalon [...]
Ég var einu sinni ömurlegur, en er núna frábær!
Stundum getur lífið verið bölvaður óþverri og þá er ekki gaman. En þegar það er gaman: Þá er gaman! Ég hef komist að því með vísindalegum aðferðum að þarna eru bein tengsl á milli.
Mannskepnan er stundum svolítið einkennileg. Ef hún viðurkennir rangindi upp á sig, þá passar hún sig á að [...]
Yggdrasill um Yggdrasil frá Yggdrasil til Yggdrasils
Vinsamlegast komdu við í Yggdrasil, sagði ég við fröken Sigríði þar sem ég sat í bifreið hennar af fólksvagengerð. Er ekki þágufallið af Yggdrasill, Yggdrasli? spyr fröken Sigríður. Ég held nú ekki, þágufallið af Yggdrasill er Yggdrasil, og þarf ekki neinn vísindamann til að finna það út, hreytti ég þóttafullur í frökenina. [...]
Góssentíð fúllynda
Fyrir okkur sem erum í eðli okkar fúllynd, eru kreppur og aðrar óhamingjur, mikil góssentíð. Nú, þurfum við ekki að gera okkur upp viðurstyggilega kátínu. Brosið sem við reyndum að framkalla, en umbreyttist í fáranlega grettu, heyrir nú sögunni til. Nú getum við gefið reiðinni og pirringnum lausan tauminn, og þurfum ekki að [...]
Leiðindi
Stundum bærist í brjósti mér ákaflega einkennileg tilfinning: Mér finnst eins og ég hafi ríka ástæðu til að vera leiður yfir einhverju, en ég man bara ekki hver hún var. Í annasömum eril dagsins, þar sem stórar fjárhæðir eru fluttar á milli herbergja, hefur eitthvað komið upp á, einhver hugsun orðið til, eitthvað [...]
Veitt í matinn
Það er lítil hætta á að síðuhaldari deyi úr hungri. Ísraelskur skógarköttur sem gengur undir nafninu Avraham, hefur tekið að sér að afla íbúum dúkkuhússins í litla Skerjarfirði matar.
Þegar ég kom heim eftir annasaman dag á skrifstofunni, lá fyrir utan bjálkakofann fugl sem flýgur aldrei aftur. Þó ég sé allur af vilja gerður, [...]