Archive for 2009

Svona eru jólin

Til að minnast fæðingu frelsarans hef ég og aðrir hér í heimili troðið í holu sem finna má á framhlið mannshöfuðsins – ógrynni af marglitum efnasamböndum með fjölbreytta áferð. Fögnuðurinn og gleðin seitlar um gúddí gúddí stöðvar líkamans þegar holan er fyllt af kræsingum. Hún er þá um stund upptekin við brytja og [...]

Posted on December 27, 2009 at 13:04 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Heilabilun

Í gær varð skammhlaup í heilanum á mér, eða glitch. Glitch, upprunið frá jiddíska orðinu glitsh þýðir sleipur staður, en er á ensku notað um tímabundna gloppu í kerfi. Í gær missti ég fótanna um stund. Ég náði þó að halda jafnvægi, og fékk meðan á hrösuninni stóð að fylgjast með minni eigin niðurlægingu.
Ég [...]

Posted on December 11, 2009 at 21:49 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Skrifstofa á Larsbjörnstræde

Meðan samlandar mínir, festu neikvætt fé í lúxusbifreiðum og húsum sem þeir rusluðu út úr til að rýma fyrir því nýjasta og flottasta, allt í samræmi við fegurðarmat Völu Matt, – bjó ég í misskemmtilegum holum, stundum við frekar bágbornar aðstæður í Reykjarvíkurborg. Ég lifði ekki hátt þessa daga, þar sem vigt mannsins lá [...]

Posted on December 7, 2009 at 12:18 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Aðlaðandi Íslendingur

Í gær hitti ég, á afar fínum veitingastað hér í borg, sérlega aðlaðandi mann frá Bosníu, fyrrum Júgóslavíu. Glaður og reifur rétti hann fram hendina og kynnti sig. Elvir heiti ég, hvað heitir þú? Fyrsta hugsun mín var: Þessi maður hlýtur að vera að gera gys að mér, svona glaðlegur og brosandi. [...]

Posted on November 22, 2009 at 20:38 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Marteinn – dauði hellisbúans og íslenskrar fyndni

Eftirfarandi er þus.
Til að halda tengingu minni við ættjörðina, fylgist ég grannt með íslenskri dagskrárgerð. Hið ylhýra íslenska tungumál, ef fallega talað, gleður mig meira en litrík blóm, eða 75% súkkulaði. Í gær að loknum annasömum degi í heimi viðskipta, hér í útjaðri helvítis, mitt í hjarta Kaupmannahafnar, samt með annan fótinn í [...]

Posted on November 21, 2009 at 12:06 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Sjónvarpsfréttir og föðurlandsást

Þó ég sé fluttur yfir lækinn, fylgist ég gaumgæfilega með málum heima í rófuholu, svo ég leiki mér lítillega með eitt ljótasta tungumál heimsbyggðarinnar: dönsku. Til auðga anda minn, stilla hjartslátt minn í takt við þjóð mína og halda í tengingu mína við föðurlandið – les ég athugasemdir á Eyjunni, felli nokkur tár og hugsa [...]

Posted on November 13, 2009 at 18:19 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Hamingja

Mánuð og tólf dögum betur, hef ég og heitmey mín til margra mánaða búið við nokkuð óþægilegar aðstæður, sem tekið hafa meira á sálartetrið en að sitja pakkaður inn í bómul í litlu timburhúsi í 101 Reykjavík. Hugtökin hamingja og andstæða þess, óhamingja hafa ítrekað komið í hugann.
Í einu herbergi af fimm [...]

Posted on November 12, 2009 at 16:58 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Íssparnaðarauglýsing

Vorum að taka upp úr kössunum…. Fyrstir koma fyrstir fá….

Posted on October 30, 2009 at 11:28 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Michael Myers á sambýli fyrir geðfatlaða

Í nótt dreymdi mig að ég væri að vinna á sambýli fyrir geðfatlaða, ekki ólíku því sem ég vann á hér á árum áður. Einn af heimilismönnum var kolóði hálfmennski morðinginn úr Halloween: Michael Myers, og átti hann alveg ægilega bágt. Við sem þarna störfuðum vorum mjög smeykir við hann sérstaklega ef hann [...]

Posted on September 9, 2009 at 20:21 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Veflókar

Klippinámskeið á vegum hins opinbera

Þetta prýðilega myndband fann ég í gær þegar ég var að fara í gegnum gamla harða diska. Ég klippti það á klippinámskeiði sem ég sótti fyrir 6 árum, sem haldið var á vegum Vinnumálastofnunnar. Þegar Mike sá afraksturinn, leit hann á mig, reiddi fram höndina og sagði ofursvalur: “You’re hired!” Skömmu síðar [...]

Posted on September 7, 2009 at 09:06 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Manngerðir í fábrotnu vanþroska samfélagi

Það eru ekki margar manngerðir í fábrotnu samfélagi eins og á Íslandi og lítið rými fyrir frávik. Hér má sjá sömu týpurnar ráfa um göturnar og eru tvær allsráðandi: krútt og hnakkar. Krúttin eru annaðhvort á leiðinni í Listaháskólann, búinn með hann, eða hafa átt inni umsókn sem hefur verið hafnað. Hvað [...]

Posted on September 4, 2009 at 21:21 by siggi · Permalink · 19 Comments
In: Veflókar

Gildi þess að tilheyra

Þegar rætt er um kosti þess að vera hluti af, að tilheyra einhverjum fyrirfram ákveðnum hugmyndum, sem mögulega kasta ljósi á hver maður er og hvað maður stendur fyrir, finn ég fyrir smæð minni. Ég held ég hafi aldrei fundist ég vera hluti af einu né neinu sem maðurinn hefur diktað upp og hef ég [...]

Posted on September 3, 2009 at 10:40 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar