Archive for January, 2009

Frá Bláfjöllum til Tíbet

Í nótt var ég staddur með stórum hóp útlendinga í tjaldbúðum upp í Bláfjöllum. Framundan var langt og strangt ferðalag til Tíbet og því eðlilega Bláfjöll fyrsti áningarstaðurinn. Í hópnum kom ég auga á undurfagra kínverska konu, sem ég gaf mig á tal við. Ég sagði henni að mig hefði dreymt [...]

Posted on January 27, 2009 at 15:29 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Gæfa og gjörfileiki

Ég hef verið með ógeðslega pest undanfarna daga og þankagangur minn því meira morbid en vanalega. Einhver myndi ætla að nú væri ástæða til að fagna, en ég finn meira fyrir sorg en gleði. Því meira sem ég heyri í pólitíkusum, því sannfærðari verð ég um að við eigum okkur ekki viðreisnar von. [...]

Posted on January 26, 2009 at 22:20 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Piparlúði

Þegar ég fylgdist með viðureign lögreglu við trukkabílstjóra á síðasta ári fylltist ég hryllingi. Það var í fyrsta skipti í mótmælum hérlendis sem piparúða var beitt. Hver man ekki eftir: Gas! Gas! Gas! Ég held þó að enginn hafi notað þessa upphrópun í viðvörunarskyni eftir þessi mótmæli, enda aumingjans lögreglumanninum, sem öskraði [...]

Posted on January 26, 2009 at 02:46 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Tilfinningasemi

Þegar ég vaknaði í morgun var ég orðinn veikasti maðurinn í litla Skerjarfirði, ef ekki öllum heiminum. Framan af degi leið ég svo miklar vítiskvalir, að ég hugsaði með sjálfum mér að betra væri að vera dauður en að líða svona.
Margar súrar og einkennilegar hugsanir urðu til í hausnum mínum, meðan ég [...]

Posted on January 23, 2009 at 22:31 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Fitubrennslan á Austurvelli

Ég hugsa að ég sé búinn að brenna 2-3 kilógrömmum síðan á mánudag. Síðustu þrjá daga hef ég dillað mér, dansað, hoppað, sungið, gargað og barið með misendingargóðum prikum, í sælgætisdós og nú síðast eftirlætispoppkornsskálina mína. Ég er sæll og glaður. Ég ætlaði ekki að taka þátt í dag sökum lasleika, en dreif [...]

Posted on January 22, 2009 at 23:46 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Ég er skríll

Án þess að ætla mér það sérstaklega öðlaðist ég í dag heiðursnafnbótina “skríll” og ekki annað hægt að segja en ég sé nokkuð hreykinn. Ég hafði ekki verið lengi við mótmælin við Alþingishúsið, þegar ég sá mér ekki annan leik á borði en að ganga til liðs við skrílinn. Ég hafði þar á [...]

Posted on January 21, 2009 at 02:17 by siggi · Permalink · 16 Comments
In: Veflókar

Þeir eru að koma að ná í þig Barbara mín

Manninum er ekki hollt að vera sjálfum sér of eftirlátur.* Ég er alinn upp fyrir sunnan og norðan skítalæk, þar sem hús voru byggð í áföngum og af vanefnum. Sem ungur maður lærði ég að nægjusemi væri dyggð sem eftirsóknarvert væri að tileinka sér. Heraga var haldið upp á heimilinu og ekkert [...]

Posted on January 19, 2009 at 20:52 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Ég er orðljótur

Ég hef verið orðljótari í skrifum mínum undanfarið en ég kæri mig um. Það sæmir ekki jafn hjartahreinum manni og mér að rita sorp. Það er draumur sérhvers bloggara að í hann sé vitnað. Það er ekkert launungarmál. Það eru meira að segja haldin þartilgerð námskeið fyrir bloggara, sem vilja öðlast [...]

Posted on January 17, 2009 at 21:05 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Blogg sem ætlar frá A til B, en hoppar yfir B og endar í F

Þegar ég ferðaðist til Akureyrar í nóvember á síðasta ári, fór ég meðal annars á myndlistarsýningu um Jesú Krist Jósefsson. Þar vakti aðeins eitt verk áhuga minn, en það var verk eftir konu sem ég man ekki hvað heitir. Hún hafði, á þeim tíma í tíðarhringnum sem flestar konur halda sér tilbaka og [...]

Posted on January 15, 2009 at 20:34 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Böggull fylgir skammrifi

Fyrir stuttu las ég í bók(hvaða bók, man ég ekki) að fólk sem segir frá draumum sínum er óspennandi og leiðinlegt. Ég, í mínum huga, er jafn spennandi og skemmtilegur og bloggari sem bloggar um bloggara sem endursegir fréttir á ömurlegum fréttamiðli. Þannig að ég móðgaðist ekki mikið við þessa lesningu. Ég [...]

Posted on January 13, 2009 at 22:05 by siggi · Permalink · 15 Comments
In: Veflókar

Nostalgíuflipp

Nú segir frá er ég varð ástfanginn í fyrsta skipti á ævinni. Ég var 16 ára gamall og sökum óhefðbundinna aðstæðna var ég sendur burt úr foreldrahúsum til betrunar í sveit. Þar kynntist ég öðrum villuráfandi sauðum, þar á meðal ungri og lögulegri Reykjarvíkurkind, með 5 ára forskot í lífsins skúespili. Fyrir [...]

Posted on January 12, 2009 at 00:00 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Kvenkyns áhrifavaldar

Ég sveiflast upp og niður með Oprah og Ellý Ármanns. Samkvæmt frétt á DV hefur sú síðarnefnda sagt skilið við Facebook. Hvað er í gangi? spyr ég skjálfmæltur. Hafa nú einhverjar ótuktirnar flæmt hana Ellý mína út úr fésbókarsamfélaginu. Það er ljótt, ef satt er.
Svo margar tímamótaspurningar vakna við [...]

Posted on January 8, 2009 at 23:08 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar