Archive for March, 2009
Svik og prettir
Ég varð miður mín, brotnaði saman í pósthúsinu og fór að gráta, þegar ég sá stærðina á pakkanum, sem átti samkvæmt mínum hugmyndum að vera allavega 10 sinnum stærri. “Hvað er þetta?” gargaði ég á póstkonuna. Nei, þarna ýki ég svolítið – ég gargaði ekki á póstkonuna. Ég færi ekki að [...]
Í fjárhagslegri sóttkví
Í nútímasamfélagi(þetta er góð byrjun á pistli sem dreymir um að vera tekinn alvarlega) þykir gott að takast á við vandamál með að breyta vandamálinu í sjúkdóm. Eftirköst brjálæðislegrar eyðslu einstaklinga og fyrirtækja undanfarin ár, má nú líta á sem veikindi. Sama fólk og eyddi frítíma sínum með skyndibitaútroðinni fjölskyldu í Kringlunni kaupandi [...]
Angelo Badalamenti um Twin Peaks
Það er eitthvað liðið síðan ég bauð upp á trít. Hér segir Angelo Badalamenti frá því hvernig hann og David Lynch unnu saman að tónlistinni fyrir Twin Peaks. Mjög heillandi saga.
Hið íslenska bankarán í sinnemaskópi og tæknilitum
Á þessum tímapunkti í andlegri reisu minni, þykir mér rétt að gangast við þessu fallega myndbandi sem gert var almenningi aðgengilegt á þúskjá fyrir einhverju síðan. Óþverrinn varð til í sjúkum hausnum á góðvini mínum Hákoni Jens Péturssyni, og var ein af fyrstu tökum á glæsilega RED vél í eigu Jóa tökumanns(sem ég veit [...]
Tómstundir, ömurlegar hugmyndir, kynjahlutverk og hannyrðir
Þessa fínu djembe trommu hef ég nú fest fé í. Hún kostaði mig 39 Gogga Washingtona. Seljandinn er staddur í Tel Aviv, en tromman er búin til af handverksmanni í Egyptalandi.
Meira um tómstundir.
Ég hef á lífsævi minni safnað í sarp sálu minnar urmul af ömurlegum hugmyndum um hvað þykir við [...]
Litli maðurinn og hitaveitan
Í haust, þegar aðeins var byrjað að kólna í veðri, bankaði upp á hjá mér lágvaxinn maður. Ég, sem er bæði kurteis og nærgætinn, bauð honum inn. Honum var mikið niðri fyrir. Ég man ekki til þess að hann hafi kynnt sig eða gert grein fyrir sér, en mér reiknaðist til að [...]
Dekkri hlið sálu minnar
Hér gefur að líta nokkuð glæsilega mynd af mér þar sem ég geri aðsúg að hæstvirtum forsætisráðherra í janúar. Við þessar óvanalegu aðstæður vaknaði upp í mér demón, sem ég veit að blundar innra með mér, en ég reyni að halda sofandi með fallega löguðum hugsunum sem Ghandi og móðir Teresa væru hreykin af. [...]
Alþjóðlegir móðurríðarar
Hvað þýðir “internasjónal” pabbi? spurði dóttir mín, er við brunuðum á Opel bifreið minni eftir Kleppsveginum. “Alþjóðlegt, eða Alþjóðlegir ” sagði ég með föðurlegri og djúpri viskurödd. “Internasjónal Moðer Fokkers, væri þá – Alþjóðlegt…. Mömmu…. ?” hana setti hljóða, meðan hún reyndi að pússla saman orðunum í höfði sér. Án [...]
Djembe og við erum þjóðin
Hlið við hlið stóðu íslendingar, sem undir venjulegum kringumstæðum hefðu ekki yrt á hvorn annan, og slógu magnþrunginn byltingartakt – séríslenskan rutma, gegn hinu spillta authorítet sem lagt hefur landið okkar í rúst.
Mótmælin, þá þrjá daga sem ég mætti, er viðburður sem ég mun ekki gleyma svo lengi sem ég lifi. Ég kenni í [...]
Á meðan heimurinn hatar okkur
Fjölgar litunum í tilveru minni.
Titillinn er sóttur í viðtal við fiskiverkakonu í ónefndu bæjarfélagi fjarri 101 Reykjavík.