Archive for April, 2009

Heyrt á næsta borði

Heltönuð stúlka um tvítugt, við heltanaða vinkonu sína á Hressingarskálanum: “Hvað á maður eiginlega að gera, á maður kannski bara að gerast mormóni og flytja til Arabíu?”
Það væri skelfilegt, ef ungar heltanaðar dætur þessa lands, sæu sér engan annan kost en að taka mormónatrú og flytja til mormónalands, sem er eins og allir vita Arabía. [...]

Posted on April 29, 2009 at 22:46 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Fallegar hægðir

Með einbeittri athygli horfði ég á myndband af konu sem hefur afar fallega lagaðar hægðir í kjörklefa. Einhverjum kann að þykja ég ósmekklegur að skoða svona myndband. En ég eiginlega hálfslysaðist til að horfa á það. Ég var inni á íslenskum fréttamiðli, sem vísaði í vefsíðu, sem svo vísaði í myndbandið, ég [...]

Posted on April 28, 2009 at 23:49 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Svínaflensusteik

Eitthvað kom ég illa undan helgi, fullur af sorg og vesæld. En mikið hýrnaði yfir mér þegar ég frétti að splunkuný flensa er á leiðinni til landsins. Hún mun vera bráðdrepandi. Og þar eð ég er þeirri lukku gæddur að fá allar umgangskveisur, aukast nú líkurnar á að ég fái að deyja. [...]

Posted on April 28, 2009 at 14:51 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Spjöld sögunnar

Í sögulegum tilgangi færi ég hér með til bókar hverjum ég greiddi atkvæði mitt.
Ég og heitmey mín búum sitthvorum megin við Hringbrautina. Ég í Reykjavík suður og hún í Reykjavík norður. Í veðurblíðunni gengum við sem leið liggur frá Vesturgötu yfir í Hagaskóla. Á leiðinni hugsaði ég um Þórberg Þórðarson [...]

Posted on April 25, 2009 at 21:08 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

Flokkurinn sem sökkar minnst, en sökkar þó feitt

Ísland er orðið ósköp dapurlegt land. Hér er því miður enginn Óbama í framboði, heldur eintómir John Kerrýar, Berlúskóníar og George Bússar. Fólk með stórkostlega getu til að valda landi og þjóð enn meiri skaða. Flokkapólitík, stefnumál og kosningaloforð sem ekki er hægt að efna, á tímum þar sem allir ættu að [...]

Posted on April 24, 2009 at 21:40 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

David Lynch kemur til Íslands

David Lynch, er væntanlegur til Íslands í næstu viku til að halda fyrirlestur um Transcendental Meditation. Hvenær nákvæmlega veit ég ekki. Mér er sagt að hann verði hér aðeins í einn dag, svo það eru litlar líkur á að hann eyði tíma sínum í að hella sig fullan á Rex með einhverjum eins [...]

Posted on April 23, 2009 at 19:26 by siggi · Permalink · 21 Comments
In: Veflókar

Mamihlapinatapai

Oft fæ ég spurninguna: Hey Siggi, hvað er eiginlega mamihlapinatapai? Þá segi ég eitthvað eins og: Hva???? Veistu ekki hvað mamihlapinatapai er? Svo hnussa ég, og þegar mér líður orðið nógu vel í gúddí gúddí gúmmilaðinu mínu, dett ég í föðurlega uppfræðslugírinn.
Mamihlapinatapai er orð í Yaghan tungumáli, sem er mállýska [...]

Posted on April 20, 2009 at 19:26 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Gremja

Gremja verður seint sett í flokk prýðistilfinninga. Fræðimenn sálarinnar telja brýnt að uppræta gremju með öllum tiltækum ráðum fræðigreinarinnar. En það er þó þannig í lífinu að þó maður sé allur af vilja gerður er afskaplega erfitt að komast í gegnum dag í samfélagi við menn, án þess að finna fyrir svolítilli gremju. Það er [...]

Posted on April 18, 2009 at 14:11 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Í bíó með 12 ára gömlum sjálfum mér

Ég fann að ég spenntist upp í sætinu mínu. Mig langaði til að segja honum hvað orðið samsæri þýddi, en gerði það ekki þar sem ég bý í heimi fullum af reglum um hvað er við hæfi og hvað ekki. Ég áttaði mig á að hann var ekki að spyrja mömmu sína, [...]

Posted on April 16, 2009 at 21:33 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Svíþjóð er hot hot hot

Yfir í aðra sálma.
Svíþjóð hefur í mínum huga verið ein af ömurlegri staðsetningum á heimskortinu. En nú spyr ég sjálfan mig eitthvað á þessa leið: Eru Svíar fucking snillingar í músik og menningu? Ha? Um daginn sá ég sænska mynd sem fer á persónulegan lista yfir bestu myndir sem ég hef [...]

Posted on April 16, 2009 at 01:16 by siggi · Permalink · 12 Comments
In: Tónlist

Eftirlífið og örlög trúleysingjans

4. nóvember 2068
Jæja, þá er ég dauður. Ég er kominn á einhvern stað sem mig grunar að sé eftirlífið. Hér er myrkur og ég sé ekki glóru. Ég heyri eintóm Windows kerfishljóð og áætla því að ég sé kominn til Helvítis. Því skyldi ég vera í helvíti? Ég sem var svo [...]

Posted on April 14, 2009 at 19:39 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Er Guð til?

Nei!

Posted on April 12, 2009 at 15:47 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar