Archive for May, 2009

Enginn heima

Laugardagstrítið:

Posted on May 30, 2009 at 23:21 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Trít, Tónlist

Vísindaleg útskýring

Ég hef verið í alveg skelfilega þungu skapi undanfarna daga. Ég hef komist að því, með vísindalegum aðferðum, að lífsleiði minn tengist eitthvað líffæri vinstra megin í brjóstholi, sem dregst sundur og saman og dælir rauðleitum vökva um lagnakerfi líkamans.
Hvaða illvirki fann upp þessa maskínu?

Posted on May 29, 2009 at 14:19 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Nágrannar

“Grannar, allir þurfa góða granna, trallallallalallalla…..”

Nágranni minn, karl yfir fimmtugt, á mikið af kraftmiklum verkfærum sem gefa frá sér allskonar andstyggðarhljóð. Í dag má heyra glakk, glakk, glakk, glakk í milljón vatta múrbrjót. Í gær, sagaði hann með hjólsög allan daginn. Ekki var hann að saga ektakvinnu sína í búta, því núna þessa [...]

Posted on May 27, 2009 at 16:13 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Partí á öðru tilverustigi

Nokkrir menn, sem ég hef mætt á lífsleiðinni, hafa verið svo fullir af hlýhug í minn garð að þeir hafa eytt dýrmætum tíma sínum í að útskýra fyrir mér hinn gullna sannleik lífsins. Í sumum tilfellum hef ég ekki einu sinni þurft að biðja þá um að miðla mér af visku sinni, heldur hafa þeir [...]

Posted on May 13, 2009 at 22:16 by siggi · Permalink · 9 Comments
In: Veflókar

Bubba Ho-tep

Fyrir menningarþyrsta lesendur mína mæli ég með prýðilegri mynd sem ég sá í gær í huggulegheitum heimilis míns í litla Skerjó. Hún heitir Bubba Ho-tep og gerist á elliheimili á okkar tímum. Stirðir og elliærir gamlingjarnir eru 1000 ára gömlum egypskum uppvakningi auðveld bráð. Hann eltir þá upp í rólegheitum, drepur þá [...]

Posted on May 12, 2009 at 21:44 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Ó þú helsúra tilvera

Hér skal, eins og svo oft áður, skrifað um mannskepnuna og hennar helsúru tilveru. Pistillinn hefst á orðinu: “mannskepnan”, en þetta prýðilega orð hefur komið fyrir í 164 pistlum sem ég hef skrifað hér á þessum vef.
Mannskepnan – nema að hún verði veik eða hafi af því atvinnu – veltir því lítið fyrir sér [...]

Posted on May 10, 2009 at 22:38 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Veflókar

Ung í anda/Young at heart

Meira um öldrun og dauða; eitt af mínum helstu hugðarefnum. Í gær sá ég frískandi og skemmtilega heimildarmynd um gamlingja í U and S of the A. Myndin er um öldrunarkór, flestir meðlimir yfir 75 ára og einstaka á hundraðasta aldursári. Í stað þess að halda sig við hefðbundna ellismelli, flytur kórinn [...]

Posted on May 7, 2009 at 15:51 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Kvikmyndir, Tónlist

Tortryggni

Almennt viðmót Íslendinga er hægt að draga saman í eitt orð: tortryggni. Þannig hefur það verið síðan ég man eftir mér. Íslenskt samfélag er því mjög þungt og erfitt fyrir menn eins og mig, sem passa hvergi inn. Ef ég keypti mér stóran jeppa og safnaði ægilega miklu spiki yrði lífið hér á [...]

Posted on May 6, 2009 at 16:13 by siggi · Permalink · Comments Closed
In: Tónlist