Archive for June, 2009

Íslenskir durgar

Hið ylhýra fallega móðurmál er þessa daganna mestmegnis notað í að tjá leiðindi, og þá alveg án þess að stuðst sé við fegurri orð íslenskrar tungu sem eru: kúkur og rass, enda það orð sem hinir svokölluðu páverbloggarar forðast að nota af ótta við að þeir þyki ekki nógu málefnalegir.
Reglulega gaman væri að [...]

Posted on June 30, 2009 at 00:36 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Síðasta hugsunin fyrir dauðann

Nú er ægileg kreppa í landinu mínu. Ég sé mig því tilneyddan til að skrifa pistil sem vekur von í brjóstum fólks. Hér er hann:
Dauðinn, dauðinn, dauðinn. Er til fegurra orð í íslenskri tungu? Hvar verð ég þegar ég ligg banalega, að því gefnu að ég verði liggjandi þegar dauðinn tekur mig í [...]

Posted on June 23, 2009 at 21:12 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar

Föðurhlutverk

Ég og ellefu ára gömul dóttir mín fórum um helgina á sýningu hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, sem okkur þótti frekar fátækleg. Hvað um það. Svo settumst við niður á Cafe Paris og hún pantaði sér Egils Gull og ég mjólkurkaffi. Henni varð þó ekki að ósk sinni, en fékk heitan súkkulaðidrykk með rjóma, [...]

Posted on June 23, 2009 at 01:24 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Tómas Sigurpáll Jónsson – minning um mann

Hér er minning um mann.
Tómas Sigurpáll Jónsson var vinur minn. Hrjúfur stórgerður karl, með gullslegið hjarta sem fyrir 14 árum sveik hann og neitaði að slá meir. Þetta einkennilega tæki, sem dælir rauðleitum vökva um lagnakerfi líkamans, hafði svo sem áður verið með dynti, en alltaf hrokkið í gang aftur. En ekki [...]

Posted on June 20, 2009 at 19:04 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Bláa Eyjan, Veflókar

Gönguhópurinn Rass

Ég hef í hyggju að stofna gönguhóp sem ber nafnið: Gönguhópurinn Rass. Meginmarkmið þessa gönguhóps verður að ganga(liggur í hlutarins eðli) og hatast út í aðra gönguhópa. Við komum til með að nota “annað hvort ertu með okkur eða móti okkur” hugmyndafræðina, sem hefur virkað svo andskoti vel í gegnum mannkynssöguna. Þannig [...]

Posted on June 14, 2009 at 21:38 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

leiðindi.blog.is

Að ybba blogg er orðin þreytandi iðja. Samkvæmt nýjustu reglugerðum, skrifuðum og samþykktum einróma af moggabloggurum, á ritmál skrifað undir formerkinu blogg, að vera málefnalegt. Að skrifa um óumdeilanlega kosti þess að geta sogið sinni eigin spena, er ekki málefnalegt og bætir engu við þjóðfélagsumræðuna. Umræða þar sem grútskítugur ristill þjóðarinnar er [...]

Posted on June 5, 2009 at 16:01 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Hönnuður alheimsins

Stundum finnst mér ég sjálfur svo hræðilega leiðinlegur að ég vildi að ég gæti skellt á mig hurðinni. Hönnuður alheimsins hefði átt að gera ráð fyrir þessum möguleika, ásamt því að gera karlmönnum kleift að sjúga sinn eigin typpaling. Hafsjór af samfélagsvandamálum væru ekki til ef það væri hægt.
Í þessu samhengi bendi ég á [...]

Posted on June 4, 2009 at 16:37 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Parthenófóbía

Eitt og annað í nálgun minni á lífið bendir til að ég sé haldinn skelfilegum sjúkdómi sem herjar einvörðungu á heilann. Já, má jafnvel segja að ég sé með skakkan hýpóþalamus, eða að sjálfur þalamusinn sé ofvaxinn og þrýsti á framheilann, sem útskýrir allar þessar skrýtnu hugsanir. Hvaða fræðilega skýring sem kann að [...]

Posted on June 3, 2009 at 12:16 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

21

Í dásamlegri fortíðarþrá, hef ég á liðnum dögum gruflað í gömlum myndböndum. Í bútnum hér að ofan, sem tekin er um sumarið 1991, er ég einungis 21 árs gamall. Ég er staddur í kaffi og sígó að Hlíðarvegi 1, í Kópavoginum. Í bakgrunni má heyra Steina Bjarna(Þorsteinn Óttar Bjarnason), tala við einhvern [...]

Posted on June 1, 2009 at 22:36 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar