Archive for July, 2009

Baktal

Lastaranum líkar ei neitt
lætur hann ganga róginn
finni hann laufblað fölnað eitt
fordæmir hann skóginn.
Höfundur:
Steingrímur Thorsteinsson, skáld
Á lægstu stigum mannlegrar tilvistar keyrir þörfin fyrir að tala illa um náungann. Einkennilegir hlutir gerast innra með mannskepnunni þegar hún japlar á kjaftasögum. Sérstakur baktalskirtill hefur framleiðslu á gúddí gúddí boðefnum sem spýtast út í lagnakerfi líkamans [...]

Posted on July 30, 2009 at 00:42 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Lífið á Íslandi

Að lifa á Íslandi er eins og að reyna að fóta sig í 103 þúsund ferkílómetra rotþró. Þú ert kannski vel búinn, í vaðstígvélum, með nefklemmu, og hefur öðlast töluverða leikni í að standa uppréttur í saur þeirra sem kúkuðu yfir landið. En svo gerist eitthvað. Eitthvað sem veldur því að þú missir [...]

Posted on July 28, 2009 at 13:34 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

700 króna kexpakki

Ég var að hengja upp úr vél í gær, en það hef ég gert nokkuð oft áður á lífsleiðinni. Hvað ætli ég hafi sett í margar vélar síðan ég setti fyrst í vél? Allavega…. Þegar ég var langt kominn með þvottinn áttaði ég mig á að það liði sjálfsagt ekki á löngu [...]

Posted on July 26, 2009 at 22:28 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Ólundarpistill

Nú er við hæfi að skrifa ólundarpistil:
Nágrenni mitt er blómlegt, og er ég þá ekki eingöngu að tala um garðrækt. Sunnan megin við mig eru hjón, eða ég giska á að þau séu hjón, sem hafa sérstakt dálæti af amerískri sveitatónlist þegar þau fá sér í aðra tánna, og ef fleiri tær bætast við [...]

Posted on July 13, 2009 at 23:14 by siggi · Permalink · 7 Comments
In: Veflókar