Archive for September, 2009
Michael Myers á sambýli fyrir geðfatlaða
Í nótt dreymdi mig að ég væri að vinna á sambýli fyrir geðfatlaða, ekki ólíku því sem ég vann á hér á árum áður. Einn af heimilismönnum var kolóði hálfmennski morðinginn úr Halloween: Michael Myers, og átti hann alveg ægilega bágt. Við sem þarna störfuðum vorum mjög smeykir við hann sérstaklega ef hann [...]
Klippinámskeið á vegum hins opinbera
Þetta prýðilega myndband fann ég í gær þegar ég var að fara í gegnum gamla harða diska. Ég klippti það á klippinámskeiði sem ég sótti fyrir 6 árum, sem haldið var á vegum Vinnumálastofnunnar. Þegar Mike sá afraksturinn, leit hann á mig, reiddi fram höndina og sagði ofursvalur: “You’re hired!” Skömmu síðar [...]
Manngerðir í fábrotnu vanþroska samfélagi
Það eru ekki margar manngerðir í fábrotnu samfélagi eins og á Íslandi og lítið rými fyrir frávik. Hér má sjá sömu týpurnar ráfa um göturnar og eru tvær allsráðandi: krútt og hnakkar. Krúttin eru annaðhvort á leiðinni í Listaháskólann, búinn með hann, eða hafa átt inni umsókn sem hefur verið hafnað. Hvað [...]
Gildi þess að tilheyra
Þegar rætt er um kosti þess að vera hluti af, að tilheyra einhverjum fyrirfram ákveðnum hugmyndum, sem mögulega kasta ljósi á hver maður er og hvað maður stendur fyrir, finn ég fyrir smæð minni. Ég held ég hafi aldrei fundist ég vera hluti af einu né neinu sem maðurinn hefur diktað upp og hef ég [...]
Lífið á Íslandi
Ég vakna hress og kátur, fullur af lífsorku, von og gleði. Ég trúi á mannkynið, að ofur-gnægð af kærleik sé til í heiminum, nóg til að sigra alla illa vætti. Ég hef fyrir venju að drekka stórt glas af mjólkurkaffi meðan ég athuga hvort eitthvað spennandi hafi flætt um kapla internetsins stóra og mikla [...]