Archive for September, 2011
Skallameðal
Nýjasta nýtt í vísindunum er byltingarkennt meðal sem læknar einn þann ógeðslegasta kvilla sem þjakað getur karlmann: Alopecia – en það er stigvaxandi hárlos sem veldur með tíð og tíma skalla sem dregur viðkomandi félagslega til dauða. Sem er gott! Því enginn vill hafa neitt saman við mann með skalla að sælda. [...]
Paul Simon, öldrun og dauði
Það snerti fíngerða strengi í mínu kórazóni að sjá myndband af Paul Simon flytja Sounds of Silence í New York 11. september síðastliðinn. Ekki þó vegna þess að athöfnin væri svo tilfinningarþungin og lagið svo fallegt, heldur vegna þess að Paul Simon sem eitt sinn var svo huggulegur og aðlaðandi er orðinn [...]
La muerte
Nú er ég búinn að eiga heima á Spáni síðan í október á síðasta ári. Ég bý í litlu krúttlegu þorpi þar sem meðalaldurinn er 80 ár. Hér keppist fólk við að deyja. Þegar einhver deyr, er þartilgerðum bíl með gjallarhorni á þakinu keyrt um þröngar götur þorpsins og andlátið tilkynnt. [...]
Leirmunir unnir úr dauðum mönnum
Alltaf er maðurinn að búa til bissness. Nú er hægt að fá leirmuni unna úr jarðneskum leifum látinna ættingja. Langflestir vilja eðlilega láta búa til úr sér styttu af Maríu mey eða Jesúm Krist. Eitthvað hátíðlegt. Það get ég skilið. Ég sjálfur vil að úr mér verði steyptur engill [...]
Ernest Borgnine
Í dag varð mér hugsað til Ernest Borgnine, en hann er einn af afkastameiri leikurum kvikmyndasögunnar. Ég var að semja í hausnum á mér samtal á milli mín og hans ef leiðir okkar lægju saman. “Þú ert Ernest Borgnine!” segði ég sisona við hann, eins og ég væri fyrstur til að færa honum [...]