
Þessi fallegi maður er hér í þeim tilgangi að ylja þeim sem láta sig málið varða um aumar hjartaræturnar. Djöfulgangurinn í skrifum mínum hefur verið lauslega nefndur við mig. Þetta þykir síður svo gott til afspurnar og þykir mér full ástæða til að verja mannorð mitt fyrir akademíunni. Í flestum tilfellum sé ég mér engan sérstakan hag í að sjá að mér og leiðrétta villur vegar míns. Það er þó í sumum tilfellum þannig háttað að ekki verður hjá því komist. Ég af þessari ástæðu birti hér mynd af goðinu mínu honum Richard Stallman, sem ég fékk að sjá halda fyrirlestur í kennaraháskólanum fyrr í þessum örlagamánuði. Það er mín von að hans hugsjón og ásjóna smiti ásjónu þessa mánaðar. Ég er því guðs lifandi feginn að Janúar er að baki, hann var óneitanlega viðbjóðslegur.
Hann er svalur
minnir mig á sýrðan meðlim Grateful Dead!
svei mér þá ef ég sá ekki þennan sama fír halda einhvertíma fyrirlestur um ágæti open source hér um árið
Þessi maður myndi aldrei halda fyrirlestur um open source.
Þá hefur það verið um LSD!
Siggi minn – ég þarf smá greiða – tekur enga stund.
Sko e-r api í skólanum hennar systur minnar er að angra hana og gera henni lífið leitt. Gæturðu séð þér fært um að eyða öllum tölvugögnum apans eða látið hann hverfa við tölvuna.
Treysti á þig. Þúsund þakkir 😀