Þá er þetta blessaða ár að renna skeið sitt á enda. Svona byrja öll góð áramótablogg. Ég persónulega sé ekkert eftir þessu ári, ég hef vart upplifað aðra eins andstyggð. Ég hef ferðast töluvert á þessu ári í hinum og þessum tilgangi. Örlagarík ferð mín vestur um haf til hennar Ameríku er mér í fersku minni. Þar brenndi ég nokkrar þrálátar brýr að baki mér. Ég hef dundað mér talsvert við það að brenna brýr á lífsleið minni. Hér á árum áður stundaði ég þá iðju nánast án þess að vera með meðvitund. Það er því frískandi að geta haldið þessum áhugamálum lifandi og ómetanlegt að geta stundað þau alveg glaðvakandi. Ég hef sérstakan hug á að gera árið 2006 alveg sérstaklega gott. Ég hef ákveðið að missa 30 kíló, hætta að drekka pepsi og læra stærðfræði alveg upp á nýtt.
One thought on “Goodbye 2005”
Comments are closed.
Gleðilegt árið Siggi minn. Brýr eru til þess ætlaðar an brenna þær og hvergi annarstaðar en að baki sér enda væri óttaleg vitleysa að brenna þær framundan sér. En sem beturfer í gegnum tíðina þá verða á vegi manns brýr sem vert er að varðveita óbrenndar en skíta árin mega hverfa gleimskunnar til með manni og mús. Fyrir mitt leiti árið sem leið var bara andskoti gott og brúarbrennur undanfarinna ára svo sannarlega þess virði, en fjandakornið ef ég leggist ekki í helgan stein og láti aðra brennuvarga njóta sín. Lifðu heill elsku kall.