Hættur

Þá er ég hættur að drekka kaffi. Ég á þá bara eftir að hætta að láta út úr mér orð og orðasambönd, sem þykja ekki fín á sannkristnum heimilum. Ég er bókstaflega hættur öllu öðru. Í lífi mínu undanfarin ár hef ég kappkostað við að láta af hverjum ósiðnum á fætur öðrum.

Einn af þeim ósiðum sem ég hef gefið upp á bátinn var vinna mín hjá hinu opinbera. Þann ósið tek ég vonandi aldrei upp aftur.
Fyrir þremur og hálfu ári síðan hætti ég að reykja. Mér flaug það einu sinni í hug að mál væri komið að byrja aftur. Þá var ég staddur í New York City í gríðarlegri ástarsorg. Ég hugsaði með sjálfum mér “Já, nú er rétti tíminn til að byrja aftur að reykja”. Svo þegar ég hugsaði þá hugsun lengra, þá gat ég ekki með nokkrum móti réttlætt það fyrir mér. Sérstaklega ætlaði ég ekki að gera þeim það til geðs, sem ég hafði tuðað í vegna reykinga. Reykingar frá mínum bæjardyrum séð, er eitt það alasnalegasta sem mannskepnan hefur ástundað.

Ég er því orðinn hálfgerður púritanisti. Ég gersamlega leyfi mér ekki nokkurn skapaðan hlut. Ég læt svo gott sem allt á móti mér. Nema í gærkveldi, þá ætlaði bráðaátusjúkdómurinn sem mig hrjáir svo ógurlega að koma mér rækilega fyrir kattarnef. Ég gat bara ekki hætt að éta. Ég var étandi alveg langt fram á nótt. Ég hélt ég myndi éta mig yfir móðuna miklu. Það gerist örsjaldan, að ég sé svo þjakaður af sorg og tómarúmi að ég finn hjá mér þörf að éta á mig gat.
Þar fyrir utan er ég orðinn alveg sérstaklega leikinn í að láta á móti mér hluti.

Ég ætla síðan þegar allt hefur um koll keyrt hætta að anda líka. En það verður nú kannski einhver bið á því.

6 thoughts on “Hættur”

  1. Það er gott að eeeellllska konu eins og…. Brynju hans Bubba og það er rosalega gott að fá útrás þegar maður er að reyna að vera hreinn og pjúr. Lestu Predikarann í Biblíunni; Allt hefur sinn tíma. Að faðma hefur sinn tíma og að halda sig frá faðmlögum hefur sinn tíma. Að borða bara skyr hefur sinn tíma og að borða hamborgara og franskar hefur sinn tíma. 🙂

    Þú ert skemmti elgur.

  2. Ég ætla að hætta að anda, reykja, og drekka kaffi allt í einu.
    slá þrjár pöddur í einni svipan eins og sagt er!

  3. Siggi þú ert mér svo mikill innblástur að verða betri og andlegri með hverjum deginum. Haltu áfram að sýna mér meira og meira.

  4. Það er löngu vitað að ég er hér á þessum nöturlega hnetti til að láta gott af mér leiða.
    Hvers virði er að vera andlegur ef maður getur ekki montað sig af því. Ég bara spyr.

Comments are closed.