martröð

Í fyrrinótt dreymdi mig andstyggilegan draum. Ég var staddur í miðri unglingahrollvekju. Mig dreymdi að ég væri með einhverju fólki í einhverri kommúnu í Kópavogi. Ekkert af þessu fólki þekkti ég.
Við vorum að leita af vinkonu okkar sem hafði ekki sést í ótilgreindan tíma. Við hófum leitina í herberginu hennar. Við opnuðum fataskápinn hennar og þá láku blóð og jarðneskar leyfar hennar út í stríðum straumum. Ég fylltist skelfingu og vaknaði til allrar guðs lukku.

Það er orðið mjög langt síðan mig dreymdi martröð.

———————————

Af gefnu tilefni vill benda þeim sem koma hérna inn á vefsíðuna mína til að hafa hægðir, að ég eyði athugasemdum af því tagi út, með þartilgerðum ‘eyða’ takka sem ég var svo snjall að hafa með í kerfinu mínu glæsilega. Ég hef engan sérstakan hug á að hlúa að afturbata geðsjúklingum, hér á vefsetri mínu. Ég er búinn að halda úti veflókum síðan nóvember 2002,og þarf ekki að láta bjóða mér upp á þennan ófögnuð.

Hvernig litust ykkur á ef ég kæmi inn á moggabloggið ykkar fína og flotta og hefði hægðir á þessa fáeinu veflóka sem þið hafið með herkjum og harmkvælum hóstað upp? Það yrði frekar leiðinlegt fyrir ykkur og alla fínu flottu embættisbloggvinina ykkar.

22 thoughts on “martröð”

  1. Og ef þú þrífur ávexti erfiðis míns með þessum “eyða” takka, hvað heldurðu að gerist þá?

  2. Ég hef þrifið tvær viðurstyggilegar athugasemdir þínar af þessum annars fallega veflók. Ég er tilbúinn með tuskuna, svo endilega sýndu hvað í þér býr.

  3. Þinn
    líkami er fagur
    sem laufguð björk
    en
    sálin er ægileg
    eyðimörk.

  4. Ægilega er sætt að þú skulir reyna að blokka mig. og þú ert óviðjafnanlega kynþokkafullur með tuskuna í lúkunum á kafi í hægðum mínum, verkandi þær upp með samanbitnar tennur, tautandi fyrir munni þér … óhreint … óhreint.

    kúkilí kúk.

  5. Nei, rétt eins og um töfra væri að ræða, vellur upp úr þér ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
    Þýðir þetta að við þurfum að fara í sleik?

  6. Nú. þannig að þú ætlar að vera viðbjóður í dag. Ég er ansi hrædd um að þá verði ég að taka til minna ráða.

    Niðurgangur <---

  7. Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki gert ráð fyrir orðinu “niðurgangur”, ég hef nú bætt því við óþverralistann, og verður þetta í síðasta skiptið sem það er notað hér í athugasemdum. Ég skora á frúnna og aðra viðbjóða, að láta á reyna hvort þeir sleppi í gegn með sóðaskapinn sem leynist á bakvið rósirnar sem heyra má úr pontu.

  8. Það er svo gott að hlusta hérna 🙂 Alveg einfaldlega dásamlegt

  9. Ah, ah – nú sofna eg,
    fyrst svona er
    dauðahljótt;
    svo hitti eg í
    draumi,
    drottninguna, í nótt.

    Þá
    gef eg henni kórónu
    úr klaka
    á höfuð sér.
    Hún
    skal fá að dansa
    eins og drottningu ber.

    Svo
    gef eg henni svarta slæðu
    að sveipa
    um líkamann,
    svo enginn geti séð,

    eg svívirti hann.

    Svo gef eg henni
    helskó,
    hitaða á rist,
    og
    bind um hvíta hálsinn
    bleikan
    þyrnikvist.

    Svo rjóða
    eg á brjóst hennar
    úr
    blóði mínu kross,
    og kyssi hana
    í Jesúnafni
    Júdasarkoss.

    Svo
    dönsum við og dönsum
    og drekkum
    eitrað vín.
    … Eg verð konungur
    djöflanna,
    hún drottningin mín.

  10. En yndislegt. Ég elska Davíð og ég elska ljóðin hans. Meira segi ég ekki því það er án efa bannað að fjalla um ástina hér.

  11. Nei, hér er leyfilegt að ræða um ástina, vorið og smáfugla. En notir þú fúkyrði umbreytast þau, rétt eins og um töfra sé að ræða, í ljóð eftir Davíð Stefáns.

  12. Þú hefur skipt um ljóð. Áðan var það krummi gamli er svartur og krummi er fuglinn minn. Sem er eitt af mínum eftirlætum, ég hef minna dálæti á þessu sem er líkt og það sé samið í óráði.

  13. Sestu
    hérna hjá mér,
    systir
    mín góð.
    Í
    kvöld skulum við vera
    kyrrlát og
    hljóð.

    Í
    kvöld skulum við vera
    kyrrlát af
    því,
    að mamma ætlar
    að reyna að sofna
    rökkrinu
    í.

    Mamma ætlar að sofna.
    Mamma
    er svo þreytt.
    – Og sumir eiga sorgir,
    sem
    svefninn getur eytt.

    Sumir eiga sorgir,
    og
    sumir eiga þrá,
    sem aðeins
    í draumheimum
    uppfyllast má.

    Í
    kvöld skulum við vera
    kyrrlát og
    hljóð.
    Mamma ætlar að
    sofna,
    systir mín góð.

  14. Jahérnahér. Þetta er eins og úrdráttur úr sjónvarpsleikritinu og fjölskyldudramanu Glerbrot sem var sýnt á Rúv hér í denn.

  15. Ég veit þú kukkar í kveld hjá mér
    þó kveðjan væri stutt í gær
    Ég trúúúi ekki á kukkið þitt
    Ef annað segir kukkur með flær

    laalaalalal

    Þettað ljóþ var einnig eftir Dafíð von Arfabrekka

Comments are closed.