indókína

Mér er minnistætt úr 6ta season af Sex And The City, þar sem Miranda er farin að lifa of einhæfu einsemdarlífi. Hún horfir alltaf á sömu sápuna, sækir vinnu og verslar mat í sömu chineese fast food búllunni. Hún fer að hafa það mjög svo á tilfinningunni að hún eigi sér ekkert líf og að starfsfólkið á matsölustaðnum sé mjög svo meðvitað um ástand hennar. Nú er reyndar svo fyrir mér gleðigjafanum komið að ég er farinn að kaupa mér mat á Indókína 4 sinnum í viku. Afgreiðslufólkið allt er farið að kannast við mig og fara viðskiptin fram með öllum aðilum brosandi illkvittnislega út í annað. Já það fer þar nærri að undirritaður sem eitt sinn var mikill djammgosi og “bóhem” er orðinn leiðindardurgur sem missir aldrei af uppáhaldssjónvarpssþættinum sínum og nærist á sama veitingastaðnum. Það er þó mér þvert um geð að viðurkenna að ég sé að bíða hér lægri hlut í lífinu.

10 thoughts on “indókína”

  1. Sem sérlegur ráðgjafi þinn herra promazin legg ég til að þú virðir að vettugi þessa dónalegu athugasemd lesanda þíns hér að ofan.

    Rúnar…..You´re Fired!!

  2. Já ég var einmitt að furða mig á hversu heimakærir allir eru þessir dagana. Þú hefur greinilega komið af stað nýrri tískubylgju. Algjör trendsetter.

  3. Please save my soul Ziggy this is clearly a case of mistaken identity. ZZZZZZZZZzzomeone has mistaken me for somebody who actually cares! (Tí hí hí).

Comments are closed.