SiggiSiggiBangBang

Tilgangsleysi og innocence mission

Aug
16

Það er gersamlega enginn tilgangur með þessu helvítis bloggi. Það er samt sem áður ekki ólíklegt að ég hér verði einhverjar færslur, en það verður meira til að vekja athygli á tilgangsleysi þess að pósta blogg-um. Hugsanlega vek ég einungis mína eigin athygli á því hversu litlum kostnaði þetta svarar. Ég á ekki von á neinni óþarfa kátínu hér á þessum vef, enda hef ég lagt mig niður við það að halda þess háttar uppátækjum í algeru lágmarki. Ég er í eðli mínu raunsær maður og hef fyrir löngu síðan áttað mig á því að tilvera þessi er þrautin þyngri. Já, það er talsvert fyrir þessu haft og mun ég jafnvel tíunda það ótæpilega, það ætti að reynast þeim gagnlegt sem að þurf þetta litla sem upp á vantar til að taka í gikkinn.

Kristin Hersh

Aug
15

Sumir eru einfaldlega betur hannaðir en aðrir.

Veflókar Comments Off on Kristin Hersh

Virginia Woolf

Aug
11

Þvílík fegurð, þó víða væri leitið. Þetta dapra yfirbragð er svo aðlaðandi. Konur á barmi taugaáfalls hafa alveg sérstaka útgeislun, líka svona rétt áður en þær drekkja sér.