toxicity
Morgunmaturinn þennan morguninn samanstóð af stökkbreyttu nautabuffi steiktu upp úr svÃnafitu. Eggjahræringur búinn til úr eggjum, úr hænum sem éta sÃnar eigin hægðir à bland við verksmiðjuframleidda loðnu. Brauð ristað à djúpsteikingarpotti. Lak af þvà kopparfeitin. Efna- og litarbætt sulta. Erfðabreyttur appelsÃnudjús. Eftir fyrstu tvo bitana fann ég hvernig slæmskan dældist út à blóðið. Þá hefðið verið eðlilegt að láta staðar numið, en það gerði ég sko ekki. Ég hámaði þessa viðurstyggð à mig og hlustaði á uppáhaldskantrà lagið mitt, spilað à dæmigerðum glymskratta. Það tók mig án efa 8 klst að jafna mig eftir þessa máltÃð. Hún var á leiðinni upp úr mér bróðurpart dagsins. Þetta er morgunmatur sem ég kem aldrei til með að gleyma.