SiggiSiggiBangBang

burning bridges project

Apr
15

The Burning Bridges Project er þarfaþing og útheimtir alla mína einbeitningu. Ég er viss um að allir geti tekið undir það að einhver þurfi að sinna þessu duglega. Hver á svo sem annar að taka þetta að sér spyr ég? Hver er betur til þess fallinn en undirritaður? Þess ber að geta að ég hef ómetanlega reynslu sem spannar ár og mánuði. Ég hef ekki einungis sinnt þessu hérlendis, heldur einnig erlendis. Ég mun leiða BBP til sigurs á öllum vígstöðvum athafnalífssins. Þið skuluð sko fá að sjá minn kall taka á því. “Taka á því” – eins og það heitir í svitafýluræktinni þegar menn eru alveg einstaklega mikil heljarmenni. Þegar mönnum vex fiskur um hrygg og kalla ekki allt ömmu sína. Standa svo mitt út á gólfi með ógeðið hangandi meðan þeir ræða þau mál sem þarf nauðsynlega að ræða undir þessum kringumstæðum.

tyrkneskt kaffi

Apr
08

Ég tel að myndin Sideways sé stórlega ofmetin. Ég var mjög hrifinn af About Schmidt og gat fundið mig duglega í karlskarfinum í þeirri mynd. Aðalsögupersónan í Sideways er djöfuls auli. Samt sem áður virðist fólk samhæfa með örvæntingunni sem þessi maður gengur í gegnum. Hann gefur sig út fyrir að vera gáfaður með sérstakt vit á vín og vínsmökkun. Þrátt fyrir það að vera ömurleg rola og viðbjóður hefur hann svo til ekkert fyrir því að næla sér í vel gefna, 100%, akkúrat, “þolir ekki neitt kjaftæði”, vel menntaða, fallega og vel gefna konu. Rætur þessa rek ég til ég til þeirrar stundar er ég sat á líbönskum veitingastað í henni Fíladelfíu þar sem mikill aðdáandi myndarinnar pantaði sér 2 glös af Merlot, sem er það vín sem fær alveg hræðilega útreið í myndinni. Merlot er hinsvegar fínt vín fyrir fólk sem horfir alveg einstaklega mikið í allan þann pening sem lagður er út fyrir hverju því svo sem nefnist skemmtun. Það þykir líka alveg sérstaklega flott þegar maður er að presentera sig fyrir nýju fólki að geta pantað eitthvað ákveðið, þó ekki væri nema að einhver af viðstöddum hefði það léttilega á tilfinningunni að einhver vissi eitthvað í sinn haus. Þarna er ég hinsvegar skák og mát, því ég drekk ekki áfengi. Ég er á hinn bóginn mikill kaffisælkeri og það besta sem ég fæ er tyrkneskt drullukaffi. Það er líkara leðju en kaffi, alveg sérstaklega hægðalosandi.
Svo allavega. Til helvítis með ykkur sem haldið það að það eitt að glápa á einhverja mynd um mann sem er lúser og kann að meta góð vín geri ykkur að sérfræðingum um vín og vínsmökkun. Og til andskotans með ykkur sem að ræna mömmur ykkar og haldið síðan reisn í góðra vina hópi.

Mean, selfish and unconscious people.

Apr
04

“Life of illusion – part 1.”
Það er sumt í þessum heimi sem gerir mig alveg gersamlega orðlausan. Það er ekki svo að ég sé eitthvað sérstaklega hneykslaður, en margt af því sem á daga mína drífur verður þess valdandi að ég er fullur undrunar. Það ber ekki að skilja það sem svo að ég sé óánægður með hlutskipti mín, því fer síður. Ég er oft á tíðum í hæstu hæðum yfir þeim verkefnum sem ég fæ að kljást við. Hljómar kannski eins og viðurstyggileg HaHa klysja, en er eigi að síður sannleikanum samkvæmt. Ég hef einnig ákveðið að ég hef engan sérstakan áhuga á að leita eftir kunningsskap við andstyggilegt fólk. Það er til fullt af fyrirtaks fólki í þessum heimi, því í andskotanum að eltast við fólk sem hefur ekkert nema einhvern viðbjóð fram að færa. Ég tel mig sjálfan ekki vera andstyggilegan og ég get ekki séð að mér sé hagur í því að umgangast einhverja viðbjóða. Ég er þess fullviss að þeir sem lifa lífinu uppfullir af viðbjóð og andstyggð deyja aleinir og öllum er alveg skítsama. Það kann einhverjum að þykja það eftirsóknarvert, en ekki mér.

the worst is over

Mar
31


“Staying Alive”

I’ve decided tonight I’m staying alive just kicking & screaming
Blood boiling & steaming
There are things far too dark to comprehend
Sleep on it one more night my sad old friend

Doo do Doo do Doo do Doo do

The worst is over.

www.cursivearmy.com

Mér áður ókunn ánægjutilfinning hefur tekið sér bólfestu í hrjóstugu lundarfari mínu. Ég er uppfullur af Tinna. Tinni er staðfastur, snjall, vinalegur og með umfram integrity. Ég horfi hress og opinn í alla enda á bjarta framtíðina. Ég hef fundið út að grunnurinn að öllu í lífinu er stærðfræði. Það er ekkert sem að stærðfræði nær ekki yfir. Ég hef þess vegna ákveðið að þó svo að ég sé tregur til, þá ætli ég að nota þrákelkni mína til að verða fluent í stærðfræði. Ég er einnig í þann mund að fara að gera félagslegar breytingar á lífi mínu. Ég eyði of miklum tíma einn með sjálfum mér. Þetta gerir það að verkum að ég er oft á tíðum óhæfur til mannlegra samskipta. Þannig að þegar ég stend frammi fyrir því að þurfa að viðhafa mannleg samskipti þá gapi ég og stama eins og vangefni homminn í Húsinu á Sléttunni.

BWI

Mar
30

Ég hata BWI. Djöfulsins drasl flugvöllur uppfullur af drasli, sóttur af drasli í drasl tilgangi. Ekki bætir úr skák að heyra að á næsta borði situr hún Gunna graða ættuð úr fjósi, búinn að hanga hérna í BNA í 2 vikur étandi ekkert nema stökkbreytta hamborga . Ég vona að ég þurfi ekki að sitja við hliðina á helvítis gyltunni.

Ha ég, hva ég er bara hress.

israel ’95-’97

Mar
29

Ég kom við í The Manhattan Mall og hitti þar fyrir Ísraela sem var að selja Death Sea Minerals. Hann laugaði hendur mínar upp úr saltsápu. Við spjölluðum saman í dágóða stund og ég fór að rifja upp veru mína í Ísrael og hvaða áhrif landið hafði á mig. Á því tímabili sem ég var þar varð ég svo hrifinn af landi, þjóð og trúarmálum að ég varð staðráðinn í því að taka trúnna. Ég veit ekki almennilega hvers vegna, það var eitthvað sem hreif mig við þetta samfélag. Kannski var það vegna þess að þetta var svo ólíkt öllu því sem ég hafði sjálfur alist upp við. Kannski voru það jemenísku stúlkurnar uppáklæddar í herbúninga, með uzi við síðuna sem kveiktu í mér það mikinn losta að ég var tilbúinn til að búa í ultra orthodox gettói um ársbil eða svo og stúdera Tora og Talmúd.

Ísrael hefur markað allt mitt líf síðan. Ástæðan fyrir því að ég er hérna staddur í NY 8 árum síðar tengist veru minni í Ísrael beint.

There’s a coldest day in every year.

Mar
29

Þá held ég heim á leið. Fyrir alla muni látið renna í heitt bað fyrir mig því ég þarf að hugsa. Ég kem til með að sakna þessarar borgar. Ég er á því að þetta sé magnaðasta staðsetning sem ég hef heimsótt síðan ég fór til Ísrael. Ég skil að sjálfsögðu eftir mig rjúkandi rústir, ekki hef ég pláss fyrir þær í farangrinum.

Bluescreen í Manhattan

Mar
28

Ég held ég hafi aldrei hrúgað á mig öðru eins magni af fötum. Ég hef um það grun að tískan hafi loksins tekið ástfóstri við mig. Ég er alveg fyrirmynda íslendingur í þessari ferð. Á mig hefur runnið kaupæði sem aldrei fyrr. Talandi um það að vera íslendingur, ég heyrði í einhverjum ógeðslegum landsbyggðaríslendingum hér á götum borgarinnar. Um mig fór hrollur. Ég get ekki sagt að ég hlakki mikið til að fara heim. En hér hef ég svosem ekkert að gera lengur. Ég hef að mestu til haldið mig á Manhattan. Ég hef gengið hér fram og aftur eins og fucking fáviti. Ég er á því að ekkert standist þessari borg samanburð.

Ég hef fallið fyrir Damien Rice í þessari ferð. Að fyrstu var það lagið The Blower’s Daughter úr snilldarmyndinni Closer. Ég er svona c.a búinn að spila það 40 sinnum á einni viku. Myndin Closer situr pikkföst í hausnum á mér. Mér finnst kuldinn í henni passa afar vel við uppákomur síðustu daga. Þetta er allt saman bara kjaftæði. Ég hefði betur mátt átta mig á því fyrir langa löngu síðan. Ég er furðulostinn yfir því hversu mikið djöfuls fífl ég hef hæfileika til að vera. Það er svo gott sem leitin af öðru eins djöfuls fífli. Nema þá kannski _ _ _ _ _ _ _.

sólin er komin upp

Mar
28


Ég tel að það sé orðið töluvert síðan ég var jafn sáttur við líf mitt og tilveru. Það er kominn í mig þartilgerður Tinni, sem er mikil atorku og athafna tilfinning. Ég hef lokið við að skera Morris niður í trog, hann biður fyrir kveðju. Það er skítakuldi í New York og viðbjóðsleg rigning. Ég hef ákveðið að hér vill ég eiga heima. Grunur minn var á rökum reistur. Mér líður eins og ég sé staddur í miðri Woody Allen mynd.

New York

Mar
26

Ég hef lokið einu af erfiðari verkefnum lífs míns. Ég er þreyttur og ég hlakka til að komast heim til Íslands. Ég er merkilega sáttur við málalok. Ég kann vel að meta New York. Andrúmsloftið hér er alveg einkennilegt. Ég hugsa að annað hvort samlagist maður New York á fyrstu klukkustundunum, eða bara alls ekki. Fyrsta klukkutímann fór um mig hrollur og viðbjóðstilfinning. Þegar líða fór á daginn var ég orðinn mun líflegri. Ég hef alveg hug á að eyða einhverjum tíma hér við aðrar aðstæður en þær sem ég er að koma úr.

Neðanjarðalest í Fíladelfíu.

Mar
24

Við komu mína til borgar hins himneska friðar, (eða var það eitthvað annað sem þessi borg er kennd við?) þá neyddist ég til að taka neðanjarðarlest mér til mikils hryllings. Klukkan var seint að kveldi og megnið af því fólki sem var þarna saman komið var meira en lítið einkennilegt. Mér fannst sem ég hefði lallað inn í kvikmynd Martin Scorcese Taxi Driver og átti von á að einhver hæfi skothríð hvað og hverju. Ég var meira en lítið skelkaður, það verður að segjast eins og er. Ég var eiginlega bara felmtri sleginn.

Milesovic er hress gaur.

Mar
17

Milesovic er hress gaur og mér finnst að hann eigi að fá íslenskan ríkisborgararétt. Það er gott í honum kallinum. Hann er bara misskilinn, svona rétt eins og þessi gamli aumingjans maður sem var ofsóttur af Shimon Wiesenthal stofnuninni vondu, hér árdaga. Aumingjans maðurinn orðinn gamall og hokinn, fullgildur íslendingur og þar af leiðandi hjartahreinn með óspjallaðan feril sem altardrengur. Þar að auki var hann pabbi fótboltabullu. Ég vill að Ísland verði einmitt land hinna misskildu. Það hefur hvort eð er verið það hingað til. Ég fæ engan veginn nóg af þessari þrautagöngu velviljaðra manna sem vinna dag og nótt að því að fá gyðinginn og gyðingahatarann hann Bobby Fischer hingað til landsins. Hva gyðingahatur.. Isss… Þetta er bara í nösunum á honum og okkur vantar einmitt fleiri menn með róttækar skoðanir á kynþáttum og trúarhópum. Einhvern kannski jafn hressan og Milesovic.

Frelsum Milesovic!