Lífsharmurinn

er kominn í hús. Vorum að taka upp nýja sendingu. Fyrstir koma fyrstir fá. Hinn eldhressi lífsharmur hefir enn og aftur tekið hús á mér. Ég sat í góðu yfirlæti og hlustaði á happy talking talking, happy talk á öldum internetsins þegar barið var að dyrum hjá mér. Hver getur þetta nú verið, hugsaði ég með hausnum mínum hárlausa. Er ég lauk upp dyrunum, stóð hann þar niðurlútur og heilsaði mér með ferskum andblæ af trega og sorg. Blessaður maður, sagði ég kampakátur yfir að sjá þarna gamlan og góðan vin. Komdu inn, ég set köff yfir hlóðir. Lífsharmurinn kom sér fyrir á koll inn í eldhúsi. Himinlifandi dansandi til og frá í ruthma og melódíu hafði ég til köff og sékursnúða. Jæja, Lífsharmur, sagði ég með kumpánlegu röddinni minni; röddinni sem ég hafði tileinkað mér eftir að stúdera hressa útvarpsmenn á hinni lífsglöðu útvarpsstöð Bylgjunni.
Jæja, Lífsharmur, sagði ég og af miklum myndarskap skenkti ég honum gúmmilaðiköff af bestu sort í veðraðan bolla. Eftir að hafa rætt við þennan gamla trausta vin drykklanga stund, komst ég að því að ég hef vaðið villu undanfarna mánuði. Ég hef misst sjónar af sannleikanum, sem er óumdeilanlega sá að lífið er alveg sérstaklega kjánalegt og alveg gersamlega tilgangslaust. Heimurinn er yfirfullur af fáráðlingum sem sáttir eru í hjarta sínu, ef til er nóg af nachos og kóka kóla. Fyrir þeim, skiptir eftirfarandi mestu máli: ríða, éta, skíta, sofa, horfa á sjónvarp, og þá helst í þessari röð. Nú ætla ég með lífsharminum í bíltúr og mega því hresslingar og aðrir fábjánar hafa varann á. Já, það hefur svo sannarlega ræst úr þessum degi.

17 thoughts on “Lífsharmurinn”

  1. já hann leikur við hvern sinn fingur blessaður lífsharmurinn svo mikið er víst, haltu honum ekki of lengi á snatti samt ég þarfnast hans mikið og jafnvel meira en þú hárlausi þunglyndispésinn þinn!

  2. Fyndið…og svo eftir því sem fólk eldist þá breytist þessi forgangsröð. Að horfa á sjónvarp, sofa og kúka verða forgangsatriði og hitt færist aftar. Ertu til í að koma með mér til Máí eða Kanarí?

  3. siggi, have you been in Netzer Sereni ?
    its me, Anja

  4. Anja, what a surpise. You have found me on the internet. 🙂 No, I have not been to Israel since 1997. What an adventure this life is. 🙂

  5. Have you been there? Is Ruti still alive and screaming. If you ever read this Ruti, know that I think of you with foundness in my heart.

  6. Sérðu ekki eftir því að hafa ekki étið bláu pilluna og sleppt þeirri rauðu? Ég er búinn að éta bláar í tonnavís en þær virka bara ekki neitt!

  7. Það er nú ekki hægt að segja annað en að þú hafir tekið vel á móti lífsharminum. Almennilegur þú.

  8. Segurður, elsku Segurður. Er þetta sem sagt leiðin til að fá hjá þér eitthvað dásamlegt kransæðafóður og með því? Að banka bara upp á í suddanum og biðja með eymingjasvep um brauð?
    En farðu til Hawai. Ekki á hverjum degi sem bráðhugguleg kona býður þunglyndum skalladýrum með sér til hlýrra staða.

  9. Til lukku með nýja þunglyndis, megi það lengi lifa, en blessaður gefðu okkur hinum smá lífsharm, við þurfum líka á því að halda. Þú mátt ekki gleyma Litla manninum.

  10. Þunglyndi, átti að standa þarna, en svona að endingu, ekki gleyma því að góðar hægðir eru gulli betri.

Comments are closed.