Endurtekningar

Mér hafa borist aðfinnslur í vælukenndum kvörtunartón um að ég sé farinn að endurtaka mig. Það þykir mér ekki skrítið, þar sem sömu illfyglin tísta inn í hausnum á mér frá ári til árs. Einhver lagði til að ég færi að lifa lífinu. Hvernig geri ég það? Verður ekki hver og einn að leggja sína eigin merkingu í hvað felur í sér að lifa lífinu? Eða er mér uppálagt að fylgja einhverjum reglusettum um hvernig lífi skal lifað? Einhver sem leggur til að einhver annar lifi lífinu, hlýtur með því að vera að segja að hann sjálfur lifi lífinu, og þeir sem lifi lífinu ekki á sama hátt, séu ekki að lifa lífinu.

Nokkrir málaflokkar koma ítrekað fyrir í ritmáli mínu. Þar ber fyrst að nefna samskipti. Ég velti samskiptum mikið fyrir mér þar sem mér finnst ég sjálfur félagslegt slys. Ég veit ekki hvernig ég á að haga mér í samskiptum við annað fólk, hvað ég á að segja, hvenær mér er óhætt að heilsa fólki sem ég er málkunnugur, osfrv. Ég er svo hræðilegur í samskiptum, að ég stundum tel betur heima setið, en af stað farið. Þess vegna eru samskipti mér mjög hugleikin.

Neðri byggðir er annað sem ég skrifa oft um. Kynbræður mínir bregðast ókvæða við þegar ég skrifa um menn, sem ganga þessa jörð í þeim tilgangi einum að brúka á sér kynfærin. Þeim finnst að ég ætti að hætta þessu kjaftablaðri og fá mér að ríða, líkt og menn fá sér að borða. Þetta get ég ómögulega skilið. Afhverju þarf ég þess? Hvernig er þessu hrint í framkvæmd? Fyrir alla muni. Liggið ekki á þessum upplýsingum eins og ormur á gulli.

Alveg frá því að ég man eftir mér hefur Dauðinn verið eitt af mínum stærstu áhugamálum. Mörgum finnst áhugi minn vera merki um óheilbrigði af verstu sort, en því get ég ekki verið sammála. Það er þegar ég gleymi því að ég er dauðlegur, sem líf mitt tekur að brenglast. Ég á ekki langt að sækja þennan áhuga minn, því pabbi hefur alla tíð rætt við mig teprulaust um dauðann. Hann nálgast nú áttrætt og er hinn sprækasti. Fyrir einhverjum árum, þóttist hann viss um að dauðinn nálgaðist. Hann útbjó því segulband, með tilmælum um hvernig málum skyldi háttað þegar hann væri allur. Inngangurinn hljómaði eitthvað á þessa leið: “Jæja, þá er ég að öllum líkindum dauður…”

Hann pabbi minn er fyrirtaksmaður.

8 thoughts on “Endurtekningar”

  1. Heldur þú virkilega að fáviti eins og ég búi yfir einhverjum sannleik um eitthvað sem skiptir einhverju máli varðandi þessi hjartfólgnu mál þín?

    Ég veit þó að ég get gefið ástinni mín bestu meðmæmli, og að ég elska þig!

  2. Í guðanna bænum haltu áfram að vera eins og þú ert: sannur og ólíkur þessum óþroskuðu drengjum sem aldrei verða eldri en 14 ára.
    Samskipti, neðri byggðir og dauðinn spanna allt litrófið en fæstir hafa burði eða kjark til að ræða þessi mál á einlægum nótum. Og það er ómetanlegt fyrir íslenska þjóð, sem aldrei hefur þorað að tala um sín hjartans mál öðru vísi en sem óttaslegnir táningar, að kynnast þér.
    Keep up

  3. í guðanna bænum ekki láta aðra stjórna þínu bloggi. Bloggsíðan þín er ein af mínum uppáhalds einmitt afþví að þú bloggar um þetta allt saman og ert þú sjálfur. Og þessi er ein að mínum uppáhaldafærslum http://siggisiggibangbang.com/archives/1190
    Lestur þessarar færslu er ávísun á amk bros og oftast hlátur…

  4. Ég sagði EINNI vinkonu minni EINU sinni frá því að það væri ekki heiglum hent að hitta mann! ha ha
    (það eru 2 ár síðan)

  5. Ef það að para sig væri það eftirsóknarverðasta í þessum heimi, þá væri til lítils að vera að þessu.

  6. Tja ég er handviss um að mjög mörgum finnst ástin einmitt vera það eftirsóknarverðasta í þessu lífi.
    ætli hún sé ekki næstvinsælasta stúlkan rétt á eftir pjéningum hún ástin?

    Hvað finnst þér það eftirsóknarverðasta?

  7. Ástin, eða kærleikur er það eftirsóknarverðasta í þessu lífi. Ég þarf ekki að para mig til að finna ástina.

Comments are closed.