Vertu til, er vorið kallar á þig,
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út því að sólskinið vill sjá þig
sveifla haka og rækta nýjan skóg.
Þennan vorsöng hef ég flautað og sungið síðan ég vaknaði í morgun. Lífið kemur fram við mig af sérstakri virðingu þessa daganna. Ég heyri Bylgjulestina nálgast.
Bylgjulestin nálgast og ég er bundin föst við teinana.
Sérstalega óaðlaðandi orð: Bylgjulestin…fær mig til að hugsa um dylgjur og lesti.
Eru raðglæpir þá bylgjulestir?
Forðumst bylgjulesti!!!
kræst er ekki nóg að þurfa að hlusta á þetta í vinnunni, hér líka
Við bjóðum góðann daginn
Gangi ykkur allt í haginn
Allt verður gott og gaman………í dag !
AAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGGGHHHHHHHHHH!!!!!!!!!!!!!!
Hey hey hey!
Eru ekki allir hressir hér?